Fálkinn - 21.06.1930, Qupperneq 7
F A L K I N N
7
Kveðjur forsætisráðherra og Alþingisforseta.
0>MUi>-0'“lUt,0'*,IU^ ©■•%.• ©."ila.'© •"(«>'••UlM'©',Ml>.'©'"(ti*© ® •.■(«.• ©-"Hm-OOC •"1Ií.'0'"«m'©'"IIm'©"II...©.,,I«.'©"Ui.'©.*%.'0',,IU.'0'"I|i.'©.,,I1m'©',,«i.'©"Um'©.*%.©.*%.'©.«I«.'©."Ui..©'"«i.'0',,«i.'© •"!«*©-"1«.'©'"Ui.'©
j
í
0'"H|.'0"H||.'0'"I||. 0'"lli^0',,lli.'0'"l(t.' 0'"íIkO'hUi>'0'"Ui.'0'"IIi.'0',!llt>'0'"lli.'0'"lli>'0',|ili^0',|iU^ 0'"l|i.'0’"iU.'0',Hb.'O'"ili.'0'"lh>'0^%^0',|lli>'0-*"Ii.'0'"Ui.'0'HUi.'0'"ili.'0',,iU."><Ui.'0',Uii.'0',Hi«‘0'"lli.'0',l>l«'0 •*"!..'0'"íI»'0'"ÍIm'0'*H|m'0'"ÍIi.'O^"Ih'O',M|i.'0'"I|i^0',|I|i^0 •"I|4..0h,IIi.'0'*N|*^0'"Hi^O',U|i^O'"IIi.'0',HIm'0',H|i.'0'"Hm'0."I|i.'0"H|i^O.*HIi.'0
Fáir að vísu, en þó nokkurir,
lifa það að taka þátt í báðum
þúsund ára hátíðunum á ís-
landi til minnitu/ar um upphaf
landnámsins H7’t og stofnun
allsher jarríkisins 930, í loklarid-
námsaldar hinnar fornu.
En enginn nær að lifa nema
lítinn hluta hinnar nýju land-
námsaldar á íslandi.
Með nokkrum rjetti má telja
að hið nýja landnám hefjist
þjóðhátíðarárið, því að hið nýja
landnám stendur i beinu sam-
bandi við endurheimt frelsi og
sjálfstæði og hefir tekið fjör-
kippina með vaxandi orku við
hvern fjöturinn, sem af var
högginn.
En þó að hin nýja landnáms-
öld sje þegar að árum orðin
jafngömul hinni fornu þá er jeg
niss um að nýja landnámsöld-
in er svo sem aðeins að hefjast.
Og þó að núlifandi kgnslóð Is-
lendinga hafi lifað að sjá hið
nýja landnám verða stórfeng-
legra en nokkur gerði ráð fgrir,
°g þreifað á því í verkinu
hversu mikil gæði landsins í enn
i'ikari mæli en jafnvel bjartsýn-
ustu skáldin sáu í anda, þá er jeg
viss um að hin unga kgnslóð
hinna alfrjálsu Islendinga á eft-
ir að lifa enn stórfeldara nýtt
landnám á íslandi og ennþá
voldugri opinberun gæða lands-
ins.
Bjart var gfir landnámsöld
Islands hinni fornu og stofnun
hins íslenska allsherjarríkis fgr-
ir þúsund árum.
En það er trúa mín að gfir
hinni nýu landnámsöld íslands
ríki enn meiri heiðrikja.
Heill þjer unga Island, sem
átt það í vændum að sjá og fá
að taka sem lengstan þátt í hinu
nýja landnámi — i endurreisn
hins þúsund ára gamla íslenska
allsherjarríkis.
TRYGGVI ÞÓRI7ALLSS0N.
Það er eftirtektarvert að höf-
uðstaður Islands hefir risið upp
einmitt á þeim stað, þar sem
Ingólfur, hinn fgrsti landnáms-
maður, seltist að, það er og eft-
irtektarvert, að Alþingi Islend-
inga er sproltið upp af því hjer-
aðsþingi, sem háð var í land-
námi Ingólfs. Gifta Ingólfs og
hans bggðar er mikil.
1 Regkjavík hefir nútíðin tek-
ið sjer bólfestu. Þar er meslur
vöxtur og þroski íslensks þjoð-
lífs. Alþingi stendur þar nú föst-
um fótum. En þó er annar stað-
ur sjálfkjörinn, þegar minnast
skal þúsund áira þingsögu. Til
Þingvalla stregma þúsimdirn-
ar í sumar um það legti árs, er
Alþingi hið forna var sett. Leið-
in gfir Mosfellsheiði er sviplitil
eins og miðaldasaga þingsins,
en þegar austur er komið blasir
við ímgnd fornaldarinnar, Þing-
vellir við Öxará. Þar var Alþingi
háð í nærfelt níu aldir. Þar lifa
minningar fortíðarinnar í svip
náttúrunnar. Á Þingvöllum býr
fortíðin ennþá og vekur huganti
til umhugsunar um glæsilega
fortíð og atburðarrika sögu
hinnar göfugustu og elstu stofn-
unar þessarar þjóðar, Alþingis
Islendinga. Sú taug er römm,
sem dregur þúsundir iil hins
forna þingstaðar á þessu sumri.
Enginn atburður er betur fall-
inn til að vekja þjóðrækni og
kveikja trú á framtíðinni í
brjóstum íslendinga. Það er ekki
rótlaus þjóð, sem á þúsund ára
þingsögu. Rætur nútíðarinnar
standa vítt og þær munu skjóta
þróltmiklum sprotum um langa
framtíð. Göfug og glæsileg for-
tið skuldbindur, og þjóð, sem á
slika sögu, hefir sjer þroska-
skilyrði. Löng þingsaga á að
leiða til stjórnmálaþroska og
festu um alla stjórnarhætti. Vits-
munir Snorra goða og göfug-
lyndi Halls af Síðu eru hyrning-
arsteinar þjóðfjelagsins.
Enn geymir íslenskt þjóðlíf
ýms þau einkenni, sem spá góðri
framtíð. Fortíðin leggur nútíð-
inni þær skyldur á herðar að
varðveita öll þau cinkenni, sem
varðveitt hafa íslenskt þjóðfje-
lag um þúsund ár. Endurheimt
sjcilfstjórn leggur alla ábyrgð-
ina á eigin herðar.
Það eru verðleikarnir einir,
sem varðveita þjóðirnar, ekki
síst hinar smæstu. Af ofbeldi
hafa þær einskis að vænta. En
göfugt og glæsilegt þjóðlif mun
skapa oss tilverurjett enn um
þúsundir ára. Til þess er þús-
und ára minningarhátíð Alþing-
is fallin, að vekja þá ábyrgðar-
tilfinning og þjóðrækni, sem
varðveitir frá glötun. Guð gefi
að sá verði árangur hins milda
afmælisfagnaðar. Þá mun gifta
Ingólfs fylgja þjóð vorri um ó-
komnar aldir.
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON.