Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Blaðsíða 89

Fálkinn - 21.06.1930, Blaðsíða 89
F A L K I N N 89 Trolle kapteinn. Alt fram á þessa öld var vá- tryggingarstarfsemi hjer á landi aukastarf manna, þannig aö kaupsýslumenn og starfsmenn ýmsra stofnana liöfðu umboð er- lendra vátryggingarfjelaga. Um aðrar tryggingar urðu menn að leita beint til útlanda. En árið 1909 var hin fyrsta eiginlega vátryggingastofa sett á stofn hjer á landi og er það uppruni firmans Trolle & Rothe. C. Trolle kapteinn flultist þá hingað til lands og setti upp stofu, sem tók að sjer allskonar tryggingar fyrir sætjóni á skip- Um og vörum og tók þessi vátrgg- ingarstofa til starfa snemma í janúar 1910, sem sjóvátryggj- andi en sama árið fór kapt. Trolle jafnframt að tryggja fyr- ir bruna. Árið eftir, liinn fyrsta apríl, höfðu störf firmans auk- ist svo, að kapt. Trolle rjeði sjer skrifstofustjóra, Carl Finsen, sem um sama leyti varð skrif- stof ustj óri Samábyrgðarinnar fyrir íslensk fiskiskip. Árið 1915 gekk Rothe kapteinn í sjólier Dana inn í firmað og fjekk það þá nafnið Trolle & Rothe. En 23. apríl 1918 verður sú breyting á, að hlutafjelag er stofnað, sem kaupir vátrygging- arstofuna. Voru þeir stofnend- urnir tvcir aðallilulhafar en nýj- ir hluthafar voru Holger Dehell, August Flygenring, Hjalti Jóns- son og Carl Finsen. Var Finsen þá ráðinn framkvæmdarstjóri firmans lijer og liefir verið það siðan. Illutafjeð var kr. 60.000, alt innhorgað, en þess má geta, að þetta hlutáfje er ekki bundið Ueinni áhættu af tryggingum, með því að önnur fjelög svara til fullrar skuldbindinga af öll- um þeim tryggingum, sem vá- iryggingarstofan selur. Næsta stórbreytingin á innri skipun þessarar stofnunar varð svo árið 1927. Voru þeir þá báðir látnir hinir upphaflegu stofnend- ur, kapteinarnir Trolle og Rothe, og keyptu þeir Carl Finsen og Nigfús Vigfússon liluti þeirrá i fjelaginu og eru aðaleigendur þcss siðan. Nokkrir aðrir hlut- hafar hafa einnig hæst við. Vig- Hí.Trolle&Rothe fús Vigfússon er íslendingur en fæddur í Danmörku. Starfaði hann lengi sem slcrifstofustjóri lijá firmanu Trolle & Rothe í Kaupmannahöfn, en það fjelag er alveg sjálfstætt og ekki i.neinu samhandi við fjelagið hjer, en liefir annast erindisrekstur fyrir það gegn ákveðinni þóknun. Vá- tryggingarskrifstofan Trolle & Rotlie er þvi síðan 1927 orðin al- íslenskt fyrirtæki og eign ís- lenskra manna. Þær tvær aðal-greinar vátrygg- inga, sem kapt. Trolle byrjaði á þegar í fyrstu, nfl. tryggingar á skipum og vörum fyrir stjótjóni og svo brunatryggingar, hafa alla tíð verið aðal verkefni f je- lagsins. Hvað sætjónstryggingar snerti skifti Trolle & Rotlie Núverandi aðaleigemlur nærri nógu há til þess, að nægði kröfum lijer á landi. Var þá tek- ið upp samband við „Forsik- ringsaktiese!skabet National“ í Kaupmannahöfn. Hefir fjelag þetta 6 miljón króna liöfuðstól og setti hámark trygginga sinna svo liátt, að vel nægði fyrir það, sem þörf er á, lijer á landi. Brunatryggingarstarfsemi Trolle & Rolhe veit aðallega að trygg- ingum á vörubirgðum og innan- stokksmunum, því að húsatrygg- ingar í kaupstöðum hjer á landi eru lögbunduar við ákveðnar stofnanir. Á ófriðarárunum kom til sög- unnar ný grein trygginga, sem mikið kvað að meðan yfir stóð: stríðsvátryggingarnar. Þessar trvggingar voru mjög áhættu- samar og sum fjelögin sem þeim : C. Finsen og V. Vigfússon. fyrst við Forsikringsaktiebolaget „Hansa“ í Stockholm í nokkur ár og síðan við Mannheimer Versich- erungs-GeselIschaft i Mannheim. En undir eins i byrjun stríðsins var loku skotið fyrir viðskifti við þetta fjelag og var þá tekið upp samhand við hið alkunna danska vátryggingarf j elag „Skan- dinavia“ i Kaupmannahöfn, sem er eitt hið stærsta og merkasta vátryggingarfjelag Norðurlanda í sinni grein. Er höfuðstóll þess 20 miljónir króna og aðalstjórn- andi þess er hinn nafnkunni vátryggingas j erf ræðingur W. Witzke, sem talinn er einn fær- asti maður í Danmörku í þessum greinum. Hefir Trolle & Rothe jafnan haldið þessu sambandi síðan og mun ekki kæra sig um að breyta til. Hvað brunatryggingar snerti, skifti firmað framan af við „De forenede hollandske Brandfor- sikringsselskaher af 1790“ og síð- ar við ,Forsikringsselskabet Ned- erlandeneV En þessi fjelög höfðu hæði markað starfsemi sinni lijer á landi of þröngan bás og há- marksupphæð þeirra fyrir ein- stökum tryggingum var ekki sintu fóru um koll en önnur græddu of fjár. Trolle & Rothe var svo heppið, að ná sambandi við frægustu og ábyggilegustu vátryggingarstofu lieimsins, Lloyds, um þessar tryggingar. Þar voru m. a. trygð íslandsför- in „Ceres“ og „Vesta“, sem skot- in voru niður af Þjóðverjum. En af venjulegum sætjónum, sem tryggingarfjelög þeirra Trolle & Rothe hafa orðið fyrir, má nefna „Sterling“, sem strandaði á Seyð- isfirði og „Goðafoss“ eldra, sem strandaði við Straumnes; liöfðu Trolle & Rotlie annast vátrygg- ingu á háðum þeim skipum. Af öðrum greinum trygginga, sem þetta firma rekur má nefna bifreiðatryggingar. Hefir firmað rekið þessa starfsemi í nærfelt tug ára og þó að skyldutrygging- ar væri ekki krafist á bifreiðum var þó svo komið, að um lielm- ingur bifreiða í latidinu munu liafa verið trygðar áður en þess- ar tryggingar voru lögboðnar. Það sem af er hefir Trolle & Rothe haft tjón af þessum trygg- ingum, þvi tveir stórir brunar liafa orðið á bifreiðum, sem trygðar voru hjá firmanu, ann- Rothe kapteinn. ar i Hafnarfirði og hinn hjá B.S.R. i Reykjavik. Nú hefir ver- ið lögleidd skyldutrygging á bif- reiðum og trygging gegn mann- tjóni og meiðslum, sem af bif- reiðaakstri hlýst, og er firmað Trolle & Rothe löggilt sem vá- tryggjandi í þessari grein. Ennfremur tryggir firmað sjó- menn fyrir slysum, en lítið hafa aðrir en útgerðir flutninga- og varðskipa gert að þeim trygg- ingum, enda er önnur skyldu- trygging lögboðin, en liún er svo lág, að ýmsir kjósa að bæta við liana annarsstaðar. Sjaldgæfar sjergreinatryggingar tekur skrif- stofán ekki, þannig að hún sjálf gefi út slcírteinið, en vitanlega tekur hún allskonar tryggingar á skirteini gefin út erlendis. Ferðatryggingar selur liún einn- ig. Og það nýjasta i starfsemi liennar er það, að hún er að leit- ast við að fá samhönd um trygg- ingar gegn tjóni af jarðskjálft- um hjá vátryggingarfjelagi . i London. Vátryggingarstofan hefir með höndum skýrslustarfsemi fyrir hina miklu miðstöð allra sigl- ingaskýrslna: L’.oyds i London og lieldur skrá um allar skipa- komur hingað frá útlöndum. Og sætjónserindisrekstur hefir firm- að fyrir 200—300 vátrygginga- fjelög útlend. Þó að firma þetta sje ekki nema rúmlega tvítugt þá hefir það þegar mikinn æfiferil að baki sjer. Má segja að öll vá- tryggingarstarfsemi i landinu liafi gjörbreyst síðan það lióf starfsemi sína, og að liún liafi margfaldast segir sig sjálft, þeg- ar litið er á hina miklu framför í verslun og siglingum, sem síð- ustu áratugir hafa frá að segja. Mun firmað hafa gefið út 30—- 40 þúsund skírteini fyrir sjóvá- tryggíngum og um 7000 fyrir brunatryggingum. I stjórn fjelagsins sitja nú Carl Finsen (formaður), Vigfús Vigfússon (varaformaður) en' meðstjórnendur eru P. A. Ólafs- son, Hjalti .Tónsson og August Flygenring. Umboðsmenn hefir fjelagið viðsvegar um land.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.