Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Side 25

Fálkinn - 21.06.1930, Side 25
F A L K I N N 25 Þingtíminn var á þcssu skeiði þingspgunnar sami eða svipaður og áður. Þingið liófst seint i júní. Hefir það haldist nokkurnveginn fram undir 1700 að þing hófst 20. júni, i stað þess að hið forna þing gat liafist 14.—24. júní. Með Alþingissamþykt 1. júlí 1700 var samkomudagur þingsins á- kvcðinn 8. júlí, en með konungs- brjcfi 25. janúar 1754 var hann færður aftur til 3. júlí. Þingstaðurinn var cftir sem áð- ur við Öxará. Því var þingið oft i Jónsbók nefnt Öxarárþing. Ann- ars var algengasta nafnið Al- þingi. Það kemur einnig all- sncmma fyrir (t. d. líka í Jóns- bók) að það cr kallað lögþing og þegar fram i sækir, einkum á 17. öld, verður það heiti æ algengara. Stundum kemur einnig fyrir nafnið landsþing. Þegar lijer er komið sögunni, á sautjándu öld og hina átjándu er Alþingi mjög farið að setja of- an. Þeim fækkar sífelt sem þang- að sækja og völd þess og virð- ingar hafa farið þverrandi. Og þeir sem til þingsins koma þykj- ast varla haldast þar við, svo er þar ömurlegt og ill öll aðbúð. t*ingið hafði frú fornu verið háð nndir bcru lofti, en þcir scm lnngið sóltu annars liafst við i búðum sínum, en á seinni öldum mcst i tjöldum. Það þótti samt óviðeigandi þegar á leið að sitja að þingstörfum úti hvernig sem viðraði og var því reist hús fyrir lögrjettuna 1691. En þegar kom fram undir 1800 var það hús orð- ið svo fornfálegt og lekt og gust- aði í gegnum það svo að ólíft þótti í því. Þing var síðast háð í því 1798, en næstu tvö þing voru háð í Reykjavik. Og með tilskip- un frá 1. jan. 1799 var ákvcðið að flytja þingið alveg frá Þing- völlum til Reykjavíkur. Óánægja með Alþingisstaðinn við Öxará virðist liafa verið orð- in nokkuð almenn um þessar mundir og reyndar talsvert fyr, því 1754 cr í ráði að flytja þingið í Kópavog, en ckkert varð þó úr því. Þcssi óánægja með þingvist við Öxará gaus upp mjög alvar- lega kringum aldamótin 1800 og mun húsnæðisbaslið mjög hafa ýtt undir hana. Þar að auki höfðú sumir það á móti Þingvöllum hve landslag var þar ljótt og leiðin- legt. En þyngst á metunum var húsnæðishrakið og veðráttan „den idelige Regn, Kuldogstercke Stormvinde, som aarligen falde og Rcgicre pa?. Landstinget“ eins og komist er að orði í brjefi einu frá Lafrcntz amtmanni (1736). Niðurstaðan varð sú, að Al- þingi var tckið af árið 1800 og stofnað upp úr því og gamla yf- irrjettinum nýr landsyfirrjettur (með konungsúrskurði 6. jan. 1800). I þessum nýja rjetti varð Magnús Slephensen dómstjóri. Við setningu landsyfirrjetlarins flutti dómstjóri ræðu. Þar kennir einskis saknaðar vegna þess Al- þings eða þeirra Alþingisrústa, sem nú átti að þurka út úr tilver- unni. Magnús Stephensen segist þvert á móti ekki vera í neinum vafa um það, „að vjer óskum oss þó ekki að skifta vorum núver- andi kjörum við fornaldarinnar ímynduðu frægð“. Samt var það einmitt „forn- aldarinnar ímyndaða frægð“,sem fyr en varði knúði alþingismálið aftur fram. Sagan um endurrcisn Alþingis er merkileg saga, og kunn í aðaldráttum og verður einungis drepið á hana. Þegar Raldvin Einarsson fer að fitja upp á endurreisn Alþingis kringum 1830 eru aðstæður orðn- ar talsvert breyttar frá því sem var um aldamótin. Stjórnmála- líf umlieimsins ýtti undir Islend- inga cða rjeltara sagt leiðtoga þeirra, því almenningur var framan af sinnulítill um þessi mál. Konungsvaldið fór einnig að verða hliðhollara Alþingisóskum íslcndinga cn áður fyr. Gangur cndurreisnarmálsins er i sluttu máli sá, að 1831 cr lcitað álits íslcndinga um þingmálin. 15. maí 1834 er ákveðið að út- nefna 3 fulltrúa fyrir ísland á þing Eydana. 20. maí 1840 ákveð- ur konungur svo, að atliuga skuli hvort ckki sje tiltækilegt að stofna sjerstakt þing fyrir íslend- inga, hvort ckki væri rjett að það lijeti Alþingi og sæti á hinum gamla þingstað við Öxará. Loks varð það úr, að Alþingi var end- urreist 1845 og hefir síðan setið i Reykjavik og verksvið þess og valdsvið breyst og eflst eftir þvi sem áfram þokast í baráttunni fyrir frelsi og framförum þjóð- arinnar. Þannig er í stuttu máli saga Al- þingis, megindrættirnir í þúsund ára. þróun þcss. Saga þess er mjög tvinnuð saman við alt líf þjóðarinnar. Margir glæsilegustu og raunalegustu atburðir þjóð- arsögunnar hafa gerst í sambandi við það. Það hefir lifað blítt og strítt, það hefir unnið happaverk og óhappavcrk. Það hefir hlotið ást manna og óvirðingu. Það hef- ir sett skynsamleg lög og lieimsk lög. En það hefir verið svo gild- ur þáttur og svo mikill máttur í íslensku þjóðlífi þúsund ára, að eðlilcgt er að enginn þjóðhátíð sje meiri haldin en minningar- hátíð þcss.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.