Fálkinn - 21.06.1930, Side 52
52
F Á L K I N N
0. Johnson & Kaaber.
Þó íslendingar liafi í orði
kveðnu haft verslunarfrelsi í
nærfelt 80 ár, þá er það ekki fyr
en á þessari öld, að verslunin
varð frjáls í raunverulegri merk-
ingu. Gamla hefðin var rik, svo
rík að fyrstu 50 árin, sem íslend-
ingar höfðu verslunarfrelsi að
lögum, voru verslunarhættirnir í
flestu nauðalikir því, sem verið
hafði áður. Stórkaupmenn í
Kaupmannahöfn, flestir danskir
eða liálfdanskir, önnuðust mest-
an hluta verslunarinnar og ráku
margir þeirra verslanir hjer á
landi. Og þegar islensk kaup-
mannastjett fór að vaxa upp,
höfðu flestir hinna innlendu
kaupmanna þann sið, að versla
við stórkaupmennina í Kaup-
mannahöfn. Svo rík var gamla
venjan, að lieita mátti að Danir
væru einir um hituna, að sjá Is-
lendingum fyrir vörum og selja
afurðir þeirra.
Þegar ísland fjekk símasam-
band við útlönd haustið 1906 opn
uðust skilyrði fyrir því, að stór-
kaupmenn gætu verið búsettir í
landinu og rekið kaupsýslu sina
þar. Og um sama leyti, sem sim-
inn tók til starfa er hin fyrsta
heildverslun stofnuð í Reykjavík
af þeim Ólafi Þ. Johnson og Lud-
vig Kaaber, firmað Ó. Johnson
& Kaaber. Byrjaði það störf
20. sept. 1906, í húsi í Lækjar-
götu 4. Ólafur hafði fengið versl-
unarmentun sína í Englandi og
dvalið þar árin 1898—1900, en
gerðist þá skrifstofustjóri versl-
unarinnar Edinborg, þangað til
haustið 1906, að hann stofnaði
heildverslun sina. Var hann þá
25 ára gamall, fæddur 29. maí
1881.
Hinn stofnandinn var Ludvig
Kaaber, núverandi bankastjóri í
Landsbankanum. Hann er fædd-
ur í Kolding í Danmörku, en liafði
dvalið hjer á landi í allmörg ár,
lengst af sem fulltrúi Thomsens-
verslunar. Var Kaaber annar
eigandi firmans og stjórnandi til
ársins 1918, að hann gerðist
bankastjóri.
Árið 1912 rjeðist Arent Claes-
sen fulltrúi til firmans. Claessen
er fæddur á Sauðárkróki 31. jan.
1887, sonur Valgarðs Claessen,
sem þá var kaupmaður þar, en
síðar fluttist til Reykjavíkur, er
hann varð ríkisfjehirðir, þegar
landfógetaembættið var lagt nið-
ur, 1904. Fluttist Arent Claessen
suður þann vetur og rjeðist til
verslunarinnar Edinborg, sem
deildai-stjóri nýlenduvörudeild-
arinnar. Þar var hann til ársins
1912, að liann gerðist fulltrúi hjá
Ó. Johnsoli & Kaaber, eins og áð-
ur er sagt og meðeigandi í firm-
anu frá 1918. Eru þeir Ólafur
Johnson og Arent Claessen ein-
ir eigendur firmans.
Framan af rak firmað einkum
umboðssölu, bæði inn-ogútflutn-
ingsverslun en síðan heildsölu
jafnframt og hefir hún orðið að-
alþátturinn í starfi þess. Var það
ýmsum erfiðleikum bundið, að
hyrja þessa verslun og ekki litu
stórkaupmennirnir íKaupmanna-
liöfn hana hýru auga framan af.
Þegar firmað leitaði fyrir sjer
um samhönd í Danmörku var oft
lieldur stirt um undirtektir, eins
og m. a. má marka af svari eins
stórkaupmannsins við málaleit-
un firmans um viðskifti. „Tror
De Verden vil konnne til at staa
paa Hovedet fordi Island liar
faaet Telegraf ?“ var svarið. Slíkt
mundi ekki heyrast núna, en ber
góðan vott um, hverjum augum
var litið erlendis á þá breytingu,
sem var að hefjast fyrir 24 árum
og kollvarpað hefir verslunar-
háttum íslendinga.
En mönnum varð hrátt skilj-
anlegt, að hjer var um nýmæli
að ræða, sem ekki var liægt að
ganga þegjandi framlijá. Sam-
böndunum fjölgaði og það var
hægt að velja úr þeim. Bein
heildsöluviðskifti liófust við
firmu í Englandi, Þýskalandi, á
Norðurlöndum og i Ameríku.
Var það firmað Ó. Johnson &
Kaaber, sem fyrst opnaði bein
viðskifti við Ameríkumenn og
seldi m. a. mikið af ull þangað
um langt skeið. Þau viðskifti
munu m. a. liafa valdið því, að
þegar stríðið skali á og yfirvof-
andi var að allar leiðir lokuðust
austur á bóginn, var Ólafi Jolin-
son falið að fara til New York
til þess að kaupa matvörur og
aðrar nauðsynjar, svo að birgðir
væri til í landinu ef gömlu við-
skiftaleiðirnar lokuðust. Fór
hann vestur í stríðsbyrjun ásamt
Sveini Björnssyni, núverandi
sendiherra, til þess að semja um
viðskifti þar, fyrir landsins hönd.
Síðari stríðsárin liafði firmað
skip í förum er það keypti,
„Frances Hyde“ að nafni, Skipið
var keypt árið 1917 og var um
1200 smálestir að stærð. Árið áð-
ur liafði firmað keypt tvö minni
skip, „Venus“ og „A. H. Friis“.
Seldi firmað „Frances Hyde“
árið 1919 en hin tvö skipin fór-
ust af völdum ófriðarins. Voru
skip þessi að staðaldri í förum
og fluttu einkum matvörur.
Skrifstofur sínar liafði firmað
í Lækjargötu 4 til ársins 1915,
en þar var húsnæðið orðið mikils
til of lítið þá. En þegar Brydes-
eignirnar voru seldar snemma á
því ári, keypti firmað þær og
gerði skrifstofur í austurenda
aðalhyggingarinnar í Hafnar-
stræli 1. Nokkrum árum áður
hafði farið fram gagnger breyt-
ing á húsinu, svo að það var um
það leyti einna eftirtektarverð-
asta verslunarhús bæjarins, og
býr enn að þeirri gerð.
Geta má þess, að á stríðsárun-
um hafði firmað á hendi starf,
sem einstakt er, að íslensk firmu
hafi rekið. Þegar kafbátahernað-
urinn liófst urðu Færeyingar
vitanlega undir sömu sökina
seldir um aðdrætti eins og ís-
lendingar. Gerðu þeir þá út
nefnd hingað til þess að leitast
fyrir um vörukaup og sömdu
við Ó. Jolinson & Kaaber um, að
firmað sæi Færeyingum fyrir
þeim vörum sem þeir þurftu.
Óþarft er að fjölyrða um, hve
geysimikla þýðingu flutningur
íslenskrar heildverslunar inn i
landið, hefir liaft fyrir þjóðina.
Nýr bragur komst á alla verslun-
arhætti, gömlu selstöðuverslan-
irnar lognuðust smám saman út
af en íslensk kaupmannastjett
reis upp. Kaupmennirnir gátu
farið til heildverslananna og
keypt vörurnar eftir hendinni,
en voru ekki bundnir við að gera
innkaup sín langt fram í timann.
Má sjá merki breytingarinnar í
liverju kauptúni og kaupstað um
land alt og ekki síst i Reykjavík.
Verslunarhættirnir færðust í það
horf, sem tíðkast lijá þroskuð-
um þjóðum, verslunin varð raun-
verulega frjáls og nýtt fjör færð-
ist í athafnir þjóðarinnar. — Það
þykir ekki sæta miklum tiðind-
um nú á tímum, þó ný heilsölu-
verslun sje sett á stofn. En fyrir
24 árum var þetta viðburður, og
stofnun firmans Ó. Johnson &
Kaaber var viðburður, sem ítar-
lega verður minst í íslenskri
verslunarsögu, þvi hún markar
þar algerð tímamót.
--------Firmað liefir jafnan
rekið bæði innflutnings- og út-
flutningsverslun, þó meira kveði
að liinu fyrnefnda. Mun það vera
stærsta innflutningsverslun á
landinu, og fjölbreyttust livað
vörufjölda snertir.
Ólafur Johnson var einn af
stofnendum Verslunarráðs ís-
lands og liefir átt sæti í því í 11
ár, uns liann á siðasta ári baðst
undan endurkosningu. Rússnesk-
ur vicekonsúll varð liann árið
1912, en það umboð var ekki
formlega lagt niður fyr en árið
1923. Spánskur vicekonsúll varð
hann árið 1928, eftir fráfall
Gunnars heitins Egilson og gegn-
ii nú því starfi.
Arent Claessen hefir í síðustu
átta ár gegnt ræðismannsstörfum
fyrir Holland, fyrst sem kon-
súll frá 1922 til 1925 en siðan
sem aðalkonsúll.