Fálkinn


Fálkinn - 21.06.1930, Side 55

Fálkinn - 21.06.1930, Side 55
FÁLKINN 55 _ w Kf. Eimskipafjelag Islands. Þeir rrienn, sem snemma á ár- inu 1913 gengust fyrir því að stofna innlent skipafjelag, sáu greinilega, að fyrsta skilyrði til þess að auka sjálfstæði þjóðar- innar var, að þjóðin gæti sjálf ráðið siglingum sínum. Fyrir ís- lendinga hafa siglingar ávalt verið hin mesta nauðsyn, vegna þess, að vjer byggjum eyland, sem eigi liggja að aðrar leiðir en sjórinn. „Navigare necesse“ — sigling- ar eru nauðsyn — voru því orð- in, sem valin voru sem eink- unnarorð fyrir boðsbrjefi, sem sent var út á meðal þjóðarinnar, til þess að fá menn til leggja fram hlutafje til stofnunar Eim- skipafjelags íslands. Eins og verslun landsmanna fyr meir var í höndum útlend- inga, svo voru og siglingar vor- ar i erlendum höndum og það um all-langan tíma eftir að versl- unin var farin að færast á inn- lendar hendur. En menn fóru brátt að sjá, að því meira sem landinu fór fram, atvinnuvegum þess, framleiðslu, menningu o. s. frv. þvi meiri væri þörfin á á- reiðanlegum og góðum skipa- ferðum. Og eftir því, sem versl- unin færðist meira og meira á innlendar hendur, varð mönnum það ljóst, að brýnasta þörfin var að eignast eigin skip, og að skipa- laus þjóð gæti aldrei átt von á því að verða sjálfstæð þjóð. Stofnun fjelagsins var því elclci nema sjálfsögð framför i lifi vaknandi þjóðar. Hún hlaut að koma. Enda yoru undirtektir þjóðarinnar svo góðar, að þegar a fyrsta árinu safnaðist svo mik- ið hlutafje, að talið var fært að stofna fjelagið og undirbúa smíði tveggja skipa. Hlutir voru ákveðnir svo lágir, að sem flest- ir gætu tekið þátt í fjelagsstofn- uninni, enda varð hluttaka al- niennings, svo mikil þegar í slað bæði hjer á landi og meðalíslend- inga vestanhafs. Mun Eimskipa- fjelagið vera það hlutafjelag á landinu, sem hefirlangflestahlut- hafa, en þeir munu vera um 14000. Undirtelctir Vestur- íslendinga við hluta- fjársöfnunina áttu og mikinn þátt í þvi, að trú manna lijer á landi á slíku l’yrir- tæki ykist, og er það því merkara að Vest- ur-íslendingar skyldu þegar í slað leggja fram svo mikið hluta- fje, sem þeir gerðu (um 200 þús. kr.), að þeir gátu aldrei átt von á því að liafa sjálf- ir neilt gagn af siglingum fje- lagsins, og gerðu þeir það því ein- göngu lil styrktar málefninu og framfaraviðleitni íslendinga hjer heima fyrir. Sama máli er að gegna um ýmsar sveitir hjer á landi, að menn lögðu fram hluta- fje í fjelagið þó þeir vissu að þeirra sveit gat tæplega liaft beint gagn af sigling- um fjelagsins. Það sýndi sig fljótt að nauðsyn hafi veriðaðstofna fjelagið, og að heppilegt var að [)að skyldi stofnað á þeim tíma, sem gert var. Þó mun engan hafa grunáð að þess yrði svo skamt að bíða, sem raun varð á. Á sama árinu og fjelagið var stofnað (1914) braust stríðið út, og snemma á næsta ári (16. apríl 1915) kom fyrsta skip fjelagsins Gullfoss til Reykjavíkur, en með þvi að þá Noru þegar orðnir örðugleikar á að sigla til Danmerkur og Eng- lands, hóf skipið þegar í stað siglingar til Aineriku, og hjelt þeim áfram nokkurnveginn stöð- . ugt um . næstu 4-5 ár. Þá varð . mönniim . fyrst fylli- lega ljóst, hve heppnir vjer vorum, að hafa eignast eig- in skip, þar- eð nú hættu fjelög þau . er áður . höfðu rekið . siglingar . hingað til lands brátt að sigla hingað, méð þvi að skipa- þurðin í . lieiminum. orsakaði að nú gátu þau haft betri arð af skipum sínum á öðr- um siglingaleiðum. Það er óþarfi að að rekja hjer frekar sögu fjelagsins, það hefir verið gert stund- um áður og flestum íslendingum er hún kunn i aðalatriðum. Menn vita að skipa- stóll fjelagsins hefir aukist jafnt og þjett og á þessu ári bætist sjötta skipið við í liópinn. Að sjálfsögðu hafa einnig siglingar batnað stórum og ferðafjöldi milli íslands og útlanda og með ströndum fram aukist i beinu lilutfalli við þá aukningu, sem orðið liefir á skipastól fjelagsins. Þessu til sönnunar mætti geta þess, að fyrir 60 árum (1871) fór eitt skip 7 ferðir milli Islands og Danmerkur. Tíu árum síðar (1881) voru skipin orðin tvö og fóru þau 9 ferðir á ári milli tslands ogútlanda, og lijelst þetta um nokkuð langt skeið. Á þessu ári fara slcip Eím- dcipafjelagsins 52 ferðir milli ís- lands og útlanda, auk töluverðra strandferða, og eru þá ótalin skip þau, sem fje- lagið tekur á leigu í viðbót við fastar ferðir eigin skipa til þess að fullnægja betur flutningaþörf- inni, en það eru 6—8 ferðir. Sömuleiðis eru ótalin öll þau er- lendu slcip sem hingað sigla. Auk þess sem ferðafjöldi liefir aukist svo gífurlega hefir Eim- skipafjelagið hafið sighngar til . erlendra . hafna, sem vafasamt er livort lcomn ar væru á enn ef fje- lagsins hefði eklci notið við. Sumar . af þeim . höfnum eru aukaliafnir, jem komið er við á þeg- ar þörf kref- ur, en aðrar eru aftur fastar við- lcomuhafnir erlendis, svo sem Ham- borg og Hull. Frá Þýskalandi kemur mikið af þeim vörum, sem Islendingar hafa áð- ur keypt frá Danmörku. Nú fá menn þær beint frá framleiðend- um i Þýskalandi töluvert ódýrara en áður var kostur á. Hull er sömuleiðis að ýmsu leyti lieppi- legri staður fyrir verslun við England en Leitli, og þó ennþá sje töluvert flutt frá siðarnefndu höfninni, eykst flutningur til og frá Hull stórum. Báðar þessar liafnir eru mjög heppilegar sem umhleðsluhafnir vegna góðra siglingasambanda við svo að segja hverja einustu höfn í heimi, sem nokkuð kveður að. Það er örðugt að gjöra í stuttu máli grein fyrir hinni marghátt- uðu siglingastarfsemi fjelagsins. Til þess að geta það, þarf að birta fjölmargar skýrslur, sem sýna i tölum bæði aukningu fjelagsins inn á við og út á við, og má vænta þess að það verði gjört síð- ar, en ýmsar tölur eru samt að finna í skýrslum og reikningum fjelagsins undanfarin ár, og það- an eru þær upplýsingar teknar sem hjer fara á eftir. Skip fjelagsins sigla samtals tals rúmlega 180 þús. sjómílur á ári. (Siglingarleiðin kringum jörðina er talin rúmar 22 þúsund sjómílur, og hafa skipin því siglt næstum 8 sinnum kringum jörð- ina á árinu). Mest af þeim sigl- inguin fer i millilandaferðirnar, því leið sú, er skip þarf að sigla i hverri ferð milli íslands og Dan- merkur eða Þýskalands er um 3000 sjómílur, og eru innanlands- siglingar þá ekki taldar með, en innanlandssiglingar skipanna eru um 50 þús. sjómilur á ári. Leiðin sem skipin sigla er þau fara kringum land og koma við á helstu höfnum er um 1000 sjó- mílur, en öll siglingaleiðin um- hverfis landið með viðkomum á aðalhöfnum er um 1500 sjómíl- ur. Á ári hverju liafa skipin 8— 900 viðkomur á liöfnum úti um land. Þessar viðkomur kosta f jelagið auðvitað mikið fje, og er tekin Húsbygging fjelagsins í Reykjavik. í lnisinu eru eingöngu skrifstofur og sölubúðir. Um 40 símaáhöld munu vera i húsinu auk 22 álialda í sjálfvirku innanhússsímakerfi fjelagsins sjálfs.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.