Fálkinn - 21.06.1930, Page 79
F A L K I N N
79
= Verslunin Vísir, Laugaveg 1.
Fáar matvöru- og nýlendu-
vöruverslanir hjer í Reykjavík
munu vera þektari en verslunin
Vísir. Hefir þar ætiö veriö kapp-
kostað að gera viðskiftavini á-
nægða, bæði með vöruvöndun og
áreiðanleik í viðskiftum, og ckki
livað síst því, live vel liefir verið
gætt alls þrifnaðar og fljótrar
afgreiðslu.
Vcrslunin Vísir er stofnuð 5.
desember 1915 af núverandi cig-
endum liennar, Guðmundi Ás-
björnssyni og Sigurhirni Þorkels-
syni. Starfaði hún til að byrja
með í nokkrum hluta af liúsi því,
er hún starfar enn í, á Laugaveg
1? og var það húsnæði mjög lítið.
Eftir því sem viðskiftin ukust
og vinsældir verslunarinnar fóru
vaxandi, varð nauðsynlegt að
stækka hana, og varð það úr, að
eigendur liennar keyptu liúsið á
Laugaveg 1 árið 1916. Skömmu
seinna fór fram mikil viðgerð á
húsinu, og stækkaði þá sölubúð-
in að miklum mun. Húsið hafði
staðið töluvert framar í götunni,
en um leið og viðgerðin fór
fram, var það flutt innar og í
götulínuna, án þess að búðinni
væri lokað eða afgreiðsla slöðv-
aðist nokkuð. Þennan flutning sá
Guðmundur Ásbjörnsson um að
öllu lcyti. Árið 1923 var bygt
viðbótarhús við verslunarhúsið
að húsi Jóns Þorlálcssonar,
Bankastræti 11. Gat verslunin þá
stækkað sölubúðina jafnframt
því, sem hún fjekk rúmgóða
skrifstofu til umráða. Árið 1928
bygði verslunin stórt tveggja
hæða hús á baldóðinni við versl-
unarhúsið. 1 ár hefir verslnnin
tekið allmiklum stakkaskiftum.
Voru allir ofnar teknir úr lienni
og í hana lögð miðstöðvarhitun.
Vinsældir verslunarinnar eru
alþektar. Hafa þær farið vax-
andi alla tíð síðan verslunin var
stofnsett. Aðal-verslunarvörurn-
ar liafa verið matvörur, nýlendu-
vörur, hreinlætisvörur, tóbak og
sælgæti. Orðlögð hafa viðskiftin
ætíð verið fyrir flýti og áreiðan-
legleik. Hreinlæti liefir altaf ver-
ið liið besta, þannig hefir versl-
unin t. d. aldrei verslað með
steinoliu, til þess að óhreinka
ekki sölubúðina af þeim orsök-
um. — Húsið er hygt árið 1836.
Guðmundur Áshjörnsson er
fæddur á Eyrarbakka 11. sept.
1880. Lærði hann þar trjesmíði,
en stundaði sjómensku framan
af, jafnframt smíðunum. 1902
fluttist liann til Reykjavíkur og
stundaði lijer húsasmíði nokkur
ár. Rjeðist síðan til Völundar og
vann þar til 1913, er hann setti
upp vinnustofu fyrir húsgagna-
smíði og myndarömmun á
Laugaveg 1. Hafði hann verslun
í sambandi við vinnustofuna og
rekur hana enn á sama stað.
Guðmundur var kosinn í bæj-
arstjórn Reykjavíkur í janúar
1918 og liefir átt sæti þar síðan,
síðustu árin, sem forseti bæjar-
stjórnar.
SigurbjörnÞorkelsson erfædd-
ur 25. ágúst 1885 á Kiðafelli í
Kjós og fluttist til Reykjavílcur
1894. Ólst hann hjer upp og rjeð-
ist 1901 til Edinborgarverslunar.
Stundaði liann fyrst allskonar
vinnu, en liafði síðar með hönd-
um pakkhússtörf eingöngu. Ár-
ið 1914 rjeðist hann til franska
firmans Mory & Cie og var þar
verslunarstjóri þar til vorið 1916.
Sigurbjörn var kosinn í niður-
jöfnunarnefnd 1917 og liefir átt
þar sæti siðan.
'STS.^ST2aST2ASV2aSY2^sT2AST5aSY5aSY5/v
Det Bergenske Dampskibsselsskab,
..B er g e n. ..
Fljótustu ferðir frá íslandi til Skandínavíu og megin!andsins
eru hraðferðir »Lyra« milli Reykjavíkur og Bergen.
I tilefni af Alþingishátíðinni er áætlun skipa Bergenske
hagað þannig:
Til Reykjavikur:
Fimtudag 19. júní, frá Bergen: „Lyra“.
Laugardag 21. júní frá Bergen: D. Y. „METEOR“.
Sunnudag 22. júní frá Dunlterque: „STELLA POLARIS“.
Mánud. 23. júní frá Newcastle: M/Y „STELLA POLARIS“.
Frá Reykjavík:
Laugard. 28. júní: M/Y „STELLA POLARIS“ til Nordkap.
Laugardag 28. júní: D/Y „METEOR“ til Bergen.
Fimtudag 3. júlí: D/S „LYRA“ til Bergen.
Farseðlar oo upplýsinpr fást hjá fjelaginn, á feráamamiasMfstofimum og umboðsmanni fjeiagsins
------------ i Reifhjavlh, hr. Nic. Bjarnason. — ---------