Fálkinn - 17.12.1954, Síða 14
6 *^#^*^*^*^#>*£*>*£**^*^*^*Jk£#^*^*^* JÓLABLAÖ FÁLKANS 1954
ÚN hafði farið úr kápunni
og tekið af sér hattinn
frammi í ganginum og
stóð nú á miðju stofugóif-
inu og horfði á auða blettinn á þilinu
og hlustaði á sína innri rödd. Henni
hafði fundist hún vera að drýgja glæp
þegar hún laumaðist niður stigann og
út úr portinu, hún hafði gotið augun-
um útundan sér þegar hún gekk fram
strætið, eins og hún væri hrædd imi
að einhver mundi þekkja hana og sjá
að liún væri á leiðinni til Roths. Hún
hafði gengið upp slitin stigaþrepin
hjá Roth og lienni fannst líkast og
liún væri að ganga niður stiga — í
eins konar undirheima. Svo liafði hún
gengið sömu göturnar til baka, og
þá fannst henni fólk horfa á sig og
skilja hvar hún hefði verið. Og henni
létti þegar hún var komin heim og
gat læst útihurðinni á eftir sér og
vissi að þarna gátu engin forvitin
rannsóknaraugu séð hana. Sem
snöggvast fannst henni að nú væri
þetta allt afstaðið. En nú stóð liún
inni i stofunni og horfði á auða reit-
inn á þilinu og hlustaði á þögla ákæru
sinna eigin hugrenninga. Það var á-
minning um að þetta væri nú ekki af-
staðið samt, lieldur væri það nú fyrst
að byrja.
Hvað mundi hann Björn segja?
Hann mundi auðvitað taka eftir að
myndin var horfin af þilinu. Það var
eigi aðeins komið tóm eftir myndina
heldur var líka ferhyrndur blettur á
veggfóðrinu þar sem liún hafði hang-
ið, þvi að þar hafði veggfóðrið ekki
litast upp. Á hverjum degi mundi
þessi ferhyrningur verða þögul ákæra
gegn henni fyrir það sem hún hafði
gert .....
Nei, það skyldi ekki verða af því.
Það kom allt í einu kapp í hana, eins
og hún yrði að flýta sér að gera það.
Hún fór að flytja hinar myndirnar.
Það voru foreldramyndir og litmynd-
ir undir gleri og í umgerð. Hún reyndi
að brjóta útlínurnar á dökka blettin-
um, reyndi að gera marga smáreiti úr
stóra reitnum. Hún varð að ná sér
i tæki, og gómarnir urðu sárir er hún
skrúfaði krókana á nýjan stað. Þegar
hún hafði lokið við að flytja mynd-
irnar færði hún sig sem fjærst þilinu
og virti fyrir sér árangurinn. En nú
fannst henni allt þilið vitna gegn sér.
Hún hafði drýgt glæp. Og nú hafði
hún reynt að leyna lionum með nýjum
glæp, hún hafði falsað allt þilið.
Hún varð að setjast. Varð að reyna
að hugsa skynsamlega og rólega og
hlaupa ekki i gönur. Var það í raun-
inni svona ljótt, þetta sem hún hafði
gert. Var það ekki hún sem átti mynd-
ina? Og svo hitt: hún hafði alls ekki
selt hana.
Hún reyndi að halda dauðahaldi i
þá tilhugsun, að liún hefði ekki selt
myndina, og að hún mundi koma á
sinn stað á þilinu aftur. En það var
ekki nema rétt í svip sem henni tókst
að hugsa þannig. Aðrar hugsanir
ásóttu hana og skelfdu liana. Hún
hafði heyrt ýmislegt um Roth. Enginn
sem fór til hans ætlaði að selja dýr-
mætu munina sina, en samt fór ávallt
svo að hann eignaðist þá.
En hún reyndi aftur að varðveita
björtu vonina. Hún hafði ekki selt
Rotli myndina, og hún skyldi aldrei
verða hans eign. Og yfirleitt skildi
liún ekki hvers vegna fólk hallmælti
Roth og hvers vegna það livíslaði allt-
af nafnið lians þegar það minntist á
hann. Hann hafði verið svo þægilegur.
Og svo notalegur í framkomu. Hár
hans var orðið svo fallega grátt, fötin
fóru svo vel óg voru svo snyrtileg,
röddin svo mjúk og hljómfögur. Og
skrifstofan hans í gamla steinliúsinu
mcð slitnu stigunum, var ekki eins
og aðrar skrifstofur, sem liún hafði
séð. Listaverk á veggjunum, og á gólf-
inu var ábreiða — aidrei liafði luin
séð annað eins — svo mjúk að það var
líkast og að stíga á gras. Roth hafði
horft lengi á myndina, staðið langt
frá henni og rýnt. Svo hafði hann
farið nær og litið á nafnið í horninu.
Og svo hafði hann staðið um stund,
eins og Iiann væri að reyna að rifja
eitthvað upp fyrir sér.
-— Hve mikið þurfið þér, hafði ijann
svo spurt.
Henni veittist erfitt að svara þvi.
Hún varð allt í einu svo hrædd við
að nefna fáránlega upphæð — livað
mundi hann halda um hana? Fyr#ta
tilraunin til Svars varð óskiljanlegt
muldur,
— Hvað segið þér? Hann færði
eyrað nær henni.
— Firnrn hundruð, sagði hún skjáif-
rödduð. — En kannske er það of mik-
ið, bætti hún við, svo sem til að af-
saka ósanngjarna kröfu.
— Nei, þér getið fengið fimm hundr-
uð út á málverkið.
Hann tók blað upp úr skúffunni og
spurði hvort hún vildi fá þetta til
eins eða tveggja mánaða. Án þess að
hugsa sig um nefndi hún einn mánuð.
Svo hripaði hann eitthvað á blaðið
og lagði það fyrir framan hana og
merkti með blýanti hvar liún ætti að
skrifa nafnið sitt. Hún gerði það í
eins konar gleðivímu yfir því að Roth
væri svo viðfelldinn og hefði talið
sanngjarnt að lána svona mikið. Svo
tók hann blaðið og las nafnið og
muldraði það í liálfum hljóðum:
Astrid Töge .......
— Eruð þér i ætt við listamanninn,
frú? spurði liann.
Hún sagði eins og var. Að málarinn
Töge væri frændi mannsins hennar
sáluga. Og hún sagði dálitið meira. Að
málarinn Töge hefði dáið ungur og
af engum virtur, og það hefði ekki
verið fyrr en mörgum árum eftir
dauða hans, sem hann fékk viðurkenn-
ingu sem listamaður. Roth kinkaði
kolli. meðan hún sagði frá. Það var
svo að sjá sem hann vissi þetta allt
saman.
Svo hafði hún gengið niður stigann
lijá Roth og tilfinningar hennar liöfðu
verið allt öðruvisi en þegar hún gekk
upp stigann. Roth hafði verið svo al-
úðlegur, já. En samt var liún lirædd
um að einhver mundi skilja hvar hún
hefði verið, þegar hún var á heim-
leiðinni.
Eftir að hún var komin heim í stof-
una sína fann hún vel að það liafði
hvorki verið frekja eða óskammfeilni
að fara fram á 500 krónu lán út á
myndina. Þetta var sú eina af fáum
myndum Severins Töge, sem var i
eigu ættarinnar. „Frið“ liafði hann
kallað liana. Þar sást fátækleg stofa
og nakin þil. Gömul kona situr hokin
yfir rokknum. Konguló hefir ofið vef,
sem er eins og grisjótt slæða yfir
myndinni. Fyrir glugganum er blá-
köflótt tjald. Svo var það eiginlega
ekki meira. Hún hafði ekkert vit á
list. En þegar hún var í dapurlegum
hugleiðingum hafði hún stundum set-
ið og horft á myndina og þá var hún
eins og opinberun. Boðskapur um frið
á heimilinu. Og liún minntist síðustu
stundanrta sem Jóhannes lifði. Þegar
hann barðist við banameinið og þjáð-
ist af tilhugsuninni um að bráðum yrði
hann að skilja við hana og Björn. Þá
kom það fyrir að hann horfði lengi
á myndina. Og það var eins og hann
hresstist alltaf á eftir. Myndin á þil-
inu vafð honum eins konar kopar-
naðra i eyðimörkinni. Hann fékk
enga heilsu af að liorfa á myndina. En
hún gaf lionum fróun og hann fékk
þrek til að verða hugrakkur fram í
dauðann.
Myndin var margra fimm liundruð
króna virði, hún vissi það. Og svo
hafði hún lika annað gildi, sem ekki
varð metið til peninga. En nú var hún
ekki á þilinu lengur, til að boða frið
á heimilinu.
Nei, hún liafði ekki selt myndina,
en hún gat ekki gleyrnt orðunum, sem
liún hafði heyrt einu sinni, það var
eins og þau bergmáluðu í öllu því sem
hún hugsaði: Enginn sem fer til Rotli
ætlar að selja dýrmætu munina sina,
en samt fer alltaf svo að hann eignast
þá. Hún varð að skilja þetta sem að-
vörun um að myndin væri í hættu. En
hún gat ekki skilið það. Þessi þægi-
legi maður ......
Hvað mundi Björn segja þegar hann
sæi að myndin var horfin af þilinu?
Hún hafði að visu búið hann undir
þetta, en samt ....... Honum þótti
vafalaust mjög vænt um myndina
líka. Og hann langaði til að læra að
mála, en hún hafði liaft liann ofan
af því. Hún var hrædd um að hann
hefði fengið gáfuna — þetta var í
ættinni. En hun vildi ekki láta Björn
verða fátækan málara. Hann var
sendill í Hartmanns Magasin, — hafði
verið þar í tvö ár, og í vor yrði hann
sextán. En frú Hartmann, sem var
húsbóndi hans, hafði hvíslað því að
lienni að hún vildi ekki missa hann,
hann skyldi hækka i tigninni og fá
góða framtíðarstöðu hjá lienni. Og
hún hafði sagt Birni hvað frú Hart-
mann hafði sagt, og hélt að hún hefði
eytt úr honum öllum málaragrillun-
um. En hann mundi sakna myndar-
innar af þilinu.
Myndin hefði aldrei lent í hættu ef
frú Töge hefði ekki orðið veik og orð-
ið að fara á spítala. Það varð dýrt að
liggja á spítalanum í margar vikur. Og
þegar henni var sagt á varfærinn hátt,
að hún skyldi ekki vera að gera sér
áhyggjur út af kostnaðinum, því að
hann yrði greiddur af sveitinnj, því
að hún var ekki í sjúkrasamlagi, þá
hefði hún getað hrópað nei! til að
mótmæla því. En hún stillti sig og
sagði að það væri óþarfi — hún mundi
horga fyrir sig sjálf.
Og einn sunnudag þegar Björn heim-
sótti hana á sjúkrahúsinu, hvíslaði
liún að honum að hann skyldi engu
kvíða — hún mundi geta- klofið þenn-
an kostnað. — Við eigum myndina,
sem þú manst eftir. Hún er ekki lítils
virði. Og ég veit um mann, sem heitir
Roth. Hann lánar mér vafalaust út
á myndina. Og þegar ég fæ heilsuna
aftur skal ég sitja við saumavélina
myrkranna á milli. Og þá get ég borgað
lánið aftur.
Björn kinkaði kolli. En eftir á sat
hann lengi þegjandi á stólnum og
horfði út í bláinn. Iiann talaði fátt það
sem eftir var heimsóknartímans ....
Einn mánuð, hafði hún sagt við
Roth í hugsunarleysi. Nú vissi hún að
þó að hún sæti við saumavélina dag
og nótt væri ómögulegt að afla svona
mikils fjár á einum mánuði.
Hún stóð upp og gekk að skatthol-
inu. Tók hundrað króna seðlana fram
úr veskinu sínu og lagði þá í efstu
skúffuna. Þar lá sjúkraliússreikning-
urinn fyrir ......
Þegar Björn kom heim um kvöldið
elti hún hann með augunum. Og hann
liafði ekki verið margar mínútur inni
þegar hann kipptist við og starði á
þiiið, sem hún hafði verið að færa
myndirnar til á. Hann leit af þilinu
og til hennar, augu Jjeirra mættust, en
hvorugt sagði orð. Þau fóru fram í
eldhúsið og settust að miðdegisverðin-
um. J’au töluðu um daginn og veginn
og smávegis viðburði. En hvorugt
nefndi myndina einu orði.
Dagar liðu. En það varð ekki mikið
úr saumaskapnum lijá henni. Hún álti
i harðri baráttu, hún barðist við sjálfa
sig, friðurinn var horfinn úr stofunni.
Hún þorði ekki að koma nærri skatt-
holinu því að í efstu skúffunni lágu
peningarnir og óborgaði reikningur-
inn.
Dagarnir urðu að vikum og enn
þorði hún ekki að nálgast skattholið.
En mánuði eftir að liún liafði farið
til Roth opnaði hún það, dró út efstu
skúffuna og tók fimm liundrað krónu
seðla úr veskinu. Og svo fór hún út
í bæ.
Hún var ekkert undirleit þegar hún
kom út á götuna. Henni fannst ekkert
athugavert við að fara til Roth. Hún
ætlaði bara að borga skuld sína og
sækja myndina.
En nú fannst henni Roth liafa
breytst síðan seinast. Það var eitt-
hvað í augunum á honum — hann
horfði svo einkennilega á hana.
— Ég ætlaði að borga skuldina og
Saga eftir GEORGE TVEIT
Fátækleg stofa og nakin þil.
Gömul kona situr hokin
yfir rokknum.