Fálkinn - 17.12.1954, Síða 18
10 FÁLKANS 1954
ILLI tveggja vegg-kerta-
stjaka á óðalssetrinu
Skaun, sunnanvert við
Niðarós hangir kross-
mark úr bronsi, svart af elli og und-
arlega skœlt. Maður skyldi halda að
það liefði legið undir rústum öld eftir
öld. Djúpar rákir eru i likama hins
krossfesta frelsara, og önnur höndin
er brotin af.
í hinni fögru stofu, með gullinleð-
ursfóðri á veggjunum, rokokohús-
gögnum og gömlum málverkum, er
krossmark þetta mesti kjörgripurinn.
í meðvitund Skauns óðalseiganda og
fjölskyldu hans er það helgidómur,
tákn œttarhamingjunnar öld eftir öid.
Á sumrin anga fegurstu rósirnar úr
garðinum á liillu undir dýrgripnum
— og á vetrum, þegar samkvæmi eru
á Skaun, þegar allar stofur eru laug-
aðar tjósi og glaðværar ungar raddir
blandast liljóðfæraslætti og glasa-
glaum, gleymist aldrei að kveikja ó
kertunum i stjökunum tveimur.
Á slíkum kvöldum ber það við að
einhver úr fjölskyldunni fari með þig
þarna inn i hornið og segi þér sögu
krossmarksins. Hún hefir gengið í arf
frá föður til sonar í nær fimm hundr-
uð ár, þessi raunalega en um leið fal-
lega saga um tvær ungar sálir sem
elskuðust svo heitt, að ást þeirra lifði
allt af — jafnvel dauðann.
Fyrir suðvestan Niðarós, skáhallt
við Kristskirkju en hinu megin árinn-
ar, er Ágústínaklaustrið Elgesetur. Það
liggur eitt sér, dimmt og skuggalegt
þegar vetrarstormarnir geysa og úlf-
urinn vælir inni í skóginum — er
undursamlega fallegt. á sumrin, með
ána eins og silfurlinda og laufskóg nteð
tærum iitum upp eftir hlíðunum.
Elgesetur á sína sögu. Þar lét upp-
reisnarfullhuginn Skúli jarl lífið ásamt
mönnum sínunt, og undir háaitarinu
í Maríukirkju sefur hinn voldugi kon-
ungur Haraldur harðráði. Blóðugir
bardagar hafa verið háðir á þessum
slóðum og brunar og farsóttir herjað.
En svo komst kyrrð á í klaustrinu.
Betlimunkar eru frómlyndir menn og
hæglátir. Lifsreglur þeirra eru strang-
ar, þeir lifa á ölmusum og starfa að
iíknarverkum. Enginn útlagi eða veg-
farandi drepur árangurslaust á dyr
hjá þeim.
Bróðir Benedikt er frómlyndasti
máðurinn í klaustrinu. Enginn fastar
jafn reglubundið eða iðkar meinlæti
eins og þessi veikbyggði maður.
— Hann á skilið að fá veglegan bú-
stað í himnaríki, er liinn mildi og
vingjarnlegi bróðir Andreas vanur að
segja.
En bróðir Vincent, sem stundum
getur verið neyðarlegur, er á annarri
skoðun. — Fortið hans er svört, segir
hann og ypptir öxlum.
Og báðir hafa munkarnir rétt fyrir
sér.
Bróðir Benedikt, sem heitir réttu
nafni Erlendur Árnason, er kominn
af einni göfugustu ætt landsins —
faðir hans er Árni Erlendsson óðals-
herra á Skaun, ríkur maður og vold-
ugur. Móðirin dó skömmu eftir að
hún átti drenginn, og Erlendur var
einkabarn, síðastur í karllegg ættar-
innar.
Með vaxandi kvíða liafði faðir hans
séð hann vaxa upp og verða mjósleg-
inn og pervisalegan. í Skaun-ættinni
voru kartmennirnir þreknir og herða-
breiðir, en Erlendur hafði erft hið
fingerða vaxtarlag móður sinnar og
falleg dreymandi augu. Snemma hafði
hann orðið sólginn í að lesa, og hann
hafði fengið að ganga í skóla hjá
Dominikanamunkunum i Niðarósi, þó
að faðir hans óttaðist að hann mundi
hneigjast til klausturslifnaðar við það.
Því að svo fór oft um rikra manna
syni, sem voru settir til mennta.
En Erlendur hafði alls ekki ætlað
sér að grafa sig lifandi í klaustri. Þeg-
ar hann var nítján ára var hann vak-
inn og sofinn að hugsa um unga stúlku
með stór, blá augu og hár sem var svo
gullið eins og geislabaugurinn um
enni guðsmóðurinnar á altaristöflunni
í kirkjunni. Hún hét Cecilia og var
fóstursystir hans. Móðir hennar hafði
verið vinnukona á Skaun, og þegar
hún dó hafði Árni Erlendsson tekið
barnið að sér. Cecilia var þrenmr ár-
um yngri en Erlendur, þau höfðu al-
ist uppi saman eins og systkin, en
bernskuvináttan hafði breytst í ást.
Þeim liafði báðum fundist þetta svo
eðlilegt — en Árni húsbóndi var á
öðru máli.
Þegar þau sögðu honum hvernig
komið var varð hann æfur. Cecilia
var faileg stúlka, hún var góð og
myndarleg, en það var líka allur henn-
ar auður. Hann, óðalsherrann á Skaun,
liafði ætlað einkasyni sínum annað
gjaforð. Erlendur átti að fá rikt kvon-
fang, höfðingjaættar. Fátæklingar áttu
ekkert erindi inn í þá ætt. Árni Er-
lendsson var talinn gæfur maður, en
ættardramb hans var óslökkvandi. Svo
var Erlendur sendur til Rostock til
náms, og Ceciliu var sagt að haga sér
skynsamlega — annars yrði hún rekin
af heimilinu.
Cecilia grét mikið, en hún liafði
aldrei vitað af neinum föður nema
Árna Erlendssyni t— hún vissi að
hann hafði ráð hennar í hendi sér.
Þegar Erlendur hafði verið erlendis
tvö ár, ákvað fósturfaðir hennar að
hún skyldi gefin Finni Jónssyni, syn-
inum í Bröttuhlíð, sem var smájörð
um hálfa milu vegar frá Skaun. Og
hvað gat hún gert nema hlýða, þó að
henni fyndist að verið væri að slíta
hjartað úr brjósti hennar? Þvi að
Erlendi gat hún ekki gleymt — nei,
aldrei að eilífu.
Erlendur hafði heldur ekki gleymt
Ceciliu. Margar fallegar stúlkur hafði
hann séð, en enga eins og Ceciliu,
engin liafði jafn blá augu og jafn
mjúkt, gullið hár. Hvar sem hann fór
var hið fagra barnslega andlit fyrir
hugskotssjónum hans og stytti honum
námsárin. Hún hafði lofað að bíða
hans, og þegar faðir hans sæi að þeim
væri alvara, mundi hann láta undan
síga.
Hálfum mánuði fyrir brúðkaup
Ceciliu kom Erlendur heim, öiium á
óvart. Hann hafði allt í einu tekið
það í sig að liann yrði að sjá hana.
En Cecilia var ekki heima, hún hafði
brugðið sér út að Bröttuhlíð. Þegar
faðir hans segir honum frá brúðkaup-
inu verður Erlendur fölur sem nár.
Það er eins og kaldri hendi sé tekið
um hjartað í honum og kreist að.
Cecilia hefir brugðist honum, öðru
vísi getur það ekki verið. Honum dett-
ur ekkí í hug að hún hafi verið þving-
uð í hjónabandið.
Faðir hans reynir að tala um fyrir
honum og nefnir ekki þá hlutdeild,
sem hann hefir átt í málinu. Cecilia
hæfir ekki sem húsfreyja á Skaun.
Hefir Erlendur ekki séð að það eru
til fleiri fallegar stúikur en hún?
Ragnhildur á Baklca og fleiri stúlkur
hafa alltaf verið að spyrja um hann.
Þegar Erendur svarar engu espist
faðir lians æ meira — hann er ofsa-
fenginn, svo grátbænir hann og loks
grætur hann eins og barn.
En Erlendur stendur og starir út í
bláinn. Nú er honum sama um allt.
Hann ráfar að heiman án þess að
segja orð, yfir brúna til Niðaróss og
fær inni hjá gömlu vinunum sínum
í Dominikanaklaustrinu. Hann fær
bókfell til að lesa, læsir sig inni í
litla klefanum, sem munkarnir hafa
léð honum og les nótt og dag.
En eitt kvödið er hann kominn að
niðurlotum. Klausturveggirnir ætla að
kæfa liann, liann verður að komast
út og fylla lungun lireinu lofti. Hann
ætlar sér að ganga lengi — og úti í
skóginum, í einverunni undir háum
guðs himni, ætlar hann að reyna að
komast að niðurstöðu um sjálfan sig,
reyna að sætta sig við orðinn hlut
— að Cecilia hafi brugðist honum.
Hann man ekkert að þetta er kvöldið
fyrir brúðkaup hennar, hann hefir
ekki haft tölu á dögunum.
Bærinn er ekki stór, liann gengur
yfir Elgesetursbrúna og beygir ósjálf-
rátt inn á mjóa skógarveginn út að
Skaun. En ekki fer hann alla leið heim
á bæinn. Hann þræðir stíginn með-
fram læknum, og stansar ekki fyrr
enn hann kemur að stóru eikinni uppi
í hlíðinni — eikinni sem hann afi
hans gróðursetti.
Þarna var það sem Cecilia, bljúg
og barnsleg, tók fyrsta kossi hans,
þarna var það sem hún hét því að
verða hans um aldur og ævi. Það var
hlýtt ágústkvöld þá, alveg eins og nú,
þau höfðu laumast upp í hlíðina eftir
kvöldverðinn og undir eikinni liafði
verið svo skuggsýnt og öruggt. Þetta
verður allt svo skýrt og kveljandi fyrir
hugskotssjónum hans, það svíCur eins
og í opinni kviku, og liann hrópar án
þess að vita af því sjálfur:
— Guð fyrirgefi þér að þú sveikst
mig, Cecilia!
— Bið þú heldur fyrirgefningu þeim
til handa, sem ráðið hefir þessu, Er-
lendur, heyrir hann sagt bak við sig.
Skógarbotninn er vaxinn mjúkum
mosa, svo að hann hefir ekki heyrt
hana koma.
Hann er fljótur að líta við. —
Cecilia!
— Ó, Erlendur — Erlendur!
Hún fleygir sér í faðm hans — allt
hið illa er gleymt, þau faðmast, föl og
skjálfandi. Munnur hans hittir fyrir
mjúkar og fúsar varir — og í fyrsta
algleymingskossinum er eins og him-
inn og jörð hverfi þeim, já, eins og
tíminn hverfi.
Þau hafa ekki aftalað þetta stefnu-
mót, það eru forlögin, sem hafa stefnt
þeim saman. Og þó að leiðir þeirra
eigi að skilja að eilífu þá eiga þau
hvort annað núna. Nú eru þau ekki
börn framar, hún er kona og hann er
maður, og þau elska hvort annað, eins
og manneskjurnar hafa elskast frá
örófi alda.' Stóra eikin breiðir grein-
arnar yfir þau eins og verndarvæng,
og myrkrið — blessað myrkrið verður
þéttara og þéttara.
En nóttina eftir drap Erlendur
brúðgumaefni Ceciliu. Finnur Jónsson
hafði komið að þeim, hann varð
hamslaus af reiði og var ekki seinn
á sér að draga sverðið úr slíðrum.
Erlendur hafði liníf og örvæntingin
jók honum þrótt. Það var dimmt og
viðureignin varð löng. — Erlendur
liélt að hann yrði að gefast upp i
sömu andránni sem honum varð ljóst
að andstæðingur hans hefði fengið
banasár. Finnur Jónsson hneig niður
án þess að í honum heyrðist stuna
eða líósti, og skömmu siðar tók hann
andvörpin.
Erlendur vissi ekki sjálfur hvernig
hann hafði dregist heim í klaustrið á
Elgesetri. Hann mundi ekki að Cecilia
hafði hjálpað honum gegnum skóginn
að griðastað hinna útlægu. Bróðir
Andreas fann hann við hliðið snemma
um morguninn. Hann var illa leikinn,
fötin öll rifin og blóðið lagaði lir
mörgum djúpum sárum. Hann var
milli heims og heljar í marga daga,
en svo var bjúkrun munkanna fyrir
að þakka að hann náði sér. Þeir
spurðu hann einskis, þeir voru ekki
vanir því. En þeir vissu hver liann
var, og þegar þeir fréttu um dráp
Finns Jónssonar hugsaði hver sitt.
í legunni löngu varð Erlendi ljóst
að hann hafði kvatt þennan heim.
Hvað stoðaði það hann þó að valda-
mikill faðir hans fengi frelsi lionum
til handa — hann varð að afplána
synd sína fyrir því. Héðan í frá ætlaði
hann að lifa guði.
Eysteinn ábóti, grandvar maður, tók
fúslega við honum, og þegar undir-
búningsárunum lauk tók hann munka-
vígslu I Maríukirkjunni á Elgesetri.
Hann tók nafnið Benedikt, sem þýðir
hinn blessaði, þvi að enginn hafði
verið jafn frómlyndur á námsárunum
og hann, enginn jafn hjálpsamur og
lítillátur og þessi ungi liöfðingjasonur.
En bróðir Benedikt getur ekki
gleymt. Hvenær sem hann fer að halda
að hann liafi sigrast á seiðandi þrá
Bergliot Qilhuus-TUoe:
KROSSMARKIÐ