Fálkinn - 17.12.1954, Síða 26
18 JÓLABLAÐ: FÁLKANS 1954
p.......................^
! Siðferðileg
bervfeðing |
i Dr. Frank Buchmann og siðferðistefna hans. |
Dr. Frank Buchmann á æskuheimili sínu, Allentown í Pennsylvaníu.
ERVÆÐING og vígbúnaöur
eru hugtök, sem heimur-
inn ' þekkir vel á vorum
dögum, því að s. 1. tuttugu
ár hefir verið látlaust vigbúnaðar-
kapphlaup meðal vestrænna þjóða, og
reyndar um allan heim, með þeim
sorglegu afleiðingum, sem heimsstyrj-
öldin síðasta bar ljósast vitni. Og enn
heldur vigbúnaðurinn áfram af fullum
krafti.
Öllum er þó vcl ljóst, að vigbúnað-
ur og styrjaldir eru engin lausn á
vandamálum mannkynsins, heldur
mun leiða meiri og meiri ógæfu yfir
mennina, eftir því sem tækniþróunin
eykst.
Lausnin á vandamálum mannkyns-
ins liggur ekki á sviði Iiins efnislega
heldur á sviði hins andlega lifs, i
trúarlegum og siðferðilegum þroska
mannsandans. 'Þetta er boðskapur sið-
ferðistefnu Dr. Frank Buchmanns,
sem hann kallar siðferðilega endur-
hervæðingu (Moral rearmament eða
MRA) og þegar er orðin að áhrifamik-
illi andlegri hreyfingu víða um heim,
og á næstu úrum verður væntanlega úr
])ví skorið, hvaða áhrif hún kann að
liafa á andlegt lif og menningu kom-
andi tíma.
Hver er Dr. Frank Buchmann?
Hann er ótvírætt einn af merkileg-
ustu hugsjónamönnum 20. aldarinnar
og hefir verið svo lánsamur að sjá
mikinn árangur af starfi sínu og luig-
sjónabaráttu. Hann er fæddur í Banda-
ríkjunum, í Allentown í Pennsylvaniu-
ríki 4. júní 1878 og varð þvi 76 ára
gamall í júnimánuði s. 1. Forfeður hans
komu frá borginni St. Gallen i Sviss,
fyrir um 200 árum og settust að í hinni
friðsælu byggð í Pennsylvaniu, er
stofnuð var af hinum fræga William
Penn. íbúar nýlendunnar voru trúað-
ir og alvörugefnir, starfsamir og
snyrtilegir, enda höfðu einnig setst
þar að margir Hollendingar, sem al-
kunnir eru fyrir snyrtimennsku.
Dr. Buchmann ólst upp í Pennsyl-
vaniu og eru margar sögur sagðar um
félagslyndi hans og vinsældir frá
æskuárunum og i hvert sinn, sem liann
heimsækir æskustöðvar sínar, þá safn-
ast um hann vinir og kunningjar, til
þess að rifja upp minningarnar frá
æskuárunum.
Eftir að Dr. Buchmann hafði lokið
námi við Múhlenberg CoIIege settist
hann að í Philadelphiu og stofnaði þar
heimili fyrir munaðarlausa drcngi, en
gcfrðist síðan prestur og forstöðumað-
ur fyrir kristilegu starfi meðal stúd-
enta við rikisháskólann í Pennsyl-
vaniu.
Árið 1921 urðu straumhvörf í lífi
Dr. Buclimanns. Enskur vinur hans
bauð honum með sér á afvopnunar-
og friðarráðstefnu, sem haldin var í
Washington. Á þeim árum höfðu menn
trú á því, að hægt væri að koma í veg
fyrir styrjaldir með samningum, af-
vopnunar- og friðarráðstefnum. En
þessi ferð sannfærði hann um það, að
til þess að tryggja frið og öryggi í
heiminum þyrfti annað og meira en
sáttmála og samþykktir, það þyrfti
blátt áfram að breyta mönnunum
sjálfum og skapa hjá þeim nýtt mat á
lífinu og sterka siðgæðis- og ábyrgð-
artilfinningu.
Þegar Dr. Buchmann hafði Ifugsað
mál sitt rækilega, sagði hann lausri
stöðu sinni við rikisháskólann og fór
til Evrópu og tók að starfa meðal
stúdenta í Oxford og Cambridge, þó
einkum Oxford. Hann ræddi við þá
um þeirra eigin vandamál og vanda-
mál lífsins almennt og lagði áherslu
á að þessi vandamál yrðu ekki leyst,
nema á trúarlegum og siðferðilegum
grundvelli.
í fyrstu lét þessi starfsemi lítið yfir
sér, menn ræddust við í smáhópum
hver hjá öðrum eða komu saman á
veitingahúsum, en brátt fór hreyfing
þessi að vekja athygli og breiðast út
og hlaut ])á nafnið Oxford-hreyfing,
og kunnust er hún undir því nafni
hér á landi, þó að hún liafi siðar verið
kölluð siðferðileg hervæðing, og segir
það skýrl til um eðli hennar og stefnu.
Dr. Buchmann hefir verið sjálfkjör-
inn foringi hreyfingarinnar s. 1. 30
ár og ferðast viða um heim og má svo
lieita, að hann hafi verið á stöðugu
ferðalagi síðustu tvo áratugina. Til
íslands hefir hann komið, þó að hann
hefði hér stutta viðdvöl. Það sem ein-
kennir þennan andlega leiðtoga eru
hin persónulegu áhrif, sem fylgja
honum. Hann er mjög mannglöggur
og vinir hans segja, að hann sé mikill
mannþekkjari. Hann á mjög auðvelt
með að kynnast fólki og er alúðlegur
í viðmóti. Hann er allgóður ræðumað-
ur og eru ræður hans jafnan stuttar
og gagnorðar. Honura hefir ekki gefist
mikið tóm til ritstarfa, en ræður hans
hafa verið gefnar út í bók, sem kalla
mætti á íslensku: Nýr heimur (Rema-
king the world). Hins vegar hefir ver-
ið mikið um hann ritað og lireyfingu
hans, bæði til lofs og lasts. Hann hefir
þegið boð þjóðhöfðingja og stórmenna,
verið liylltur af verkamönnum og
verkalýðsleiðtogum, og oftar en einu
sinni hefir nafn hans verið nefnt í
sambandi við friðarverðlaun Nobels.
Haustið 1950 gafst mér tækifæri að
heilsa upp á hann í sumarstöðvum
hreyfingarinnar í Caux. Mér duldist
ekki að þar var óvenjulegur persónu-
leiki. á ferð, og að hann myndi fljótt
kveikja eld í hjörtum þeirra, sem sætu
við fætur hans.
Siðferðileg hervæðing.
Eins og nafnið bendir til, er hér um
trúarlega og siðferðilega hreyfingu að
Sumargistihúsið í Caux.