Fálkinn - 17.12.1954, Blaðsíða 49
JÓLABLAÐ FÁLKANS 1954
VERDI. Framhald af bls. 39.
leikkonuna að hún að lokum grét af'
bræði. Mitt í öllu annríkinu var Verdi
stöðugt einmana; aðeins ein kona var
honum handgengin — Giuseppina
Strepponi, sem síðar veitti honum
liugrekkið aftur.
Með Rigoleltó, sem samin var á 40
dögum, var lokið galeiðuþrældómi
Verdis, hún veitti honum peninga og
frægð, og losaði hann við áhyggjur.
Tveimur árum siðar skrifaði hann
Troubadouren á aðeins 29 dögum. Og
áður en hann hélt frumsýninguna var
hann kominn af stað með La Traviata.
Titillinn þýðir glötuð kona, lauslætis-
drós og kvenhetjan í leiknum var sótt
í daglega lífið — ung og fögur Parísar-
daðurdrós, sem nokkru siðar dó úr
tæringu og örlög liennar voru uppi-
staðan í Kameliadamen. Þegar La
Traviata var sýnd, fyrir valinn hóp
áheyrenda í Feneyjum, dundu yfir
hlátrar og fuss. Leikurinn var blátt
áfram of raunsýnn fyrir áhorfendur
sem vanir yoru óraunverulegum ridd-
arasögum. En 14 mánuðum síðar var
leikurinn sýndur aftur, eftir að hafa
verið endurbættur, og þá gáfust hinir
duttlungafullu álieyrendur skilyrðis-
laust upp fyrir tónleikum Verdis. En
nú hafði Verdi séð fram á að lof og
ijósadýrð var ekki allt hér í heimi. Á
æskustöðvum sínum skannnt frá
Busseto keypti liann land, þar sem
hann settist að ásamt Giuseppinu, sem
nú var orðin kona hans. Næstu ár
átti hann annrikt við að laga „eyði-
mörkina“ -sina, sem hann nefndi svo
í spaugi, hina kæru eign sína. Hann
gróðursetti tré, lagði vegi og gróf
framræsluskurði. Hann flutti fyrstu
þreskivélina og fyrsta vélplóginn í Pó-
dalinn. Hann stofnsetti fyrirmyndar
kúabú — á þeim tíma alveg óþekkt —
og var hreyknari af fallegu kúnum sín-
um en af öllum heiðursmerkjunum og
orðunum sem hann liafði fengið frá
keisurum, konungum og frá hinum
rússneska zar.
Þegar kreppa í búnaðarháttum varð
valdandi atvinnuleysi á ítaliu og
fólk neyddist til að flytja í hópum
til Ameríku stofnaði Verdi nokkur ný
nautgripabú og gat á þann hátt veitt
200 manns atvinnu. „Það er enginn
sem flytst burt úr minni sveit,“ sagði
hann lireykinn. Samtimis var liann í
mörg ár meðlimur í öldungadeildinni
og tók þátt í að koma á mikilvægri
lagasetningu til verndar réttindum
tónskáldanna — því að hann var alltaf
duglegur umsýslu- og framkvæmda-
maður. Verdi gat nú sjálfur valið á
milli margra virðingarhlutverka sem
honum buðust. Leðuröskjurnar með
háa hattinum hans voru allar skrám-
aðar og slitnar af mörgum ferðum til
Parísar, London, Madrid og St. Pét-
ursborgar. Þegar átti að opna Sues-
skurðinn lét undirkóngurinn i Egypta-
landi byggja söngleikaliús og bað
Verdi að skrifa óperu við þetta há-
tíðlega tækifæri.
Jólakvöldið 1871 var fyrsta sýningin
á Aita í Cairo og hrifningin ætlaði
engan enda að taka. Verdi hafði nú
skrifað 25 óperur og menn skyldu
ætla að ævistarfi hans væri lok-
ið. En 1887 skýrði La Scala
frá því að hún ætlaði að auglýsa
nýja óperu eftir Verdi. Um þetta
leyti var tónskáldið 73 ára; átti
hann enn hinn hrífandi neista mann-
dómsáranna? Á frumsýningunni var
húsið troðfullt og á svæðinu fyrir ut-
an stóðu þúsundir af söngelskum ítöl-
um. Niðri í hljómsveitargryfjunni sat
meðal annarra blóðheitur ungur tón-
listarmaður við sellóið sitt — hinn
tvítugi Arturo Toscanini. Ljósaröð-
in glóði framan við leiksviðið,
söngstjórinn hóf söngsprotann, gnýr
af tónum þaut frá strengjunum sem
fyrsta aðvarandi vindhviða — og
tjaldið var dregið frá Olliello. Frá
hinu fyrsta inngangshvassviðri og
til hinna sefandi niðurlagshljóma
sátu áheyrendur í fjálglegri lirifningu.
Þetta var liið djúphyggnasta verk
Verdis og ávallt í huga margra sem
hin mikilvægasta ópera sem nokkurn
tima hefir verið skrifuð. Menn héldu
að þetta væri hans svanasöngur — en
nei! Á áttræðisaldri gaf hann heimin-
inum Falstaff, þar sem hann enn einu
sinni tók einn af sjónleikjum Shake-
speares lil fyrirmyndar. Jlér töfraði
Verdi fram hljómlist svo fjöruga, glaða
og ofsafengna sem væri hún skrifuð
af manni á æskuskeiði. En þótt hjarta
Verdis væri ávallt ungt hafði það samt
rúm fyrir umhyggju fyrir þeim sem
ellin bugaði. Alla þá peninga sem hann
fékk fyrir réttindin af óperunum gaf
liann til stofnunar og reksturs hvíldar-
lieimilis gamalla þurfandi tónlistar-
manna. Þessi bygging, sem fremur
líktist höll á Feneyjum en elliheimili,
stendur enn i Milano eins og minnis-
varði yfir Verdi sem listamann og
mann.
Þegar hinni miklu ást Verdis i ann-
að sinn lauk með dauða Giuseppinu
bilaði lífsþróttur hans. Hina síðustu
crfiðu daga sína bjó liann aleinn á
hóteli i Milano og um morguninn 27.
janúar 1901 vaknaði hann ekki af
svefni. ítalska rikisráðið kom sam-
an í djúpri hryggð. 1 heilan mánuð
var La Scala lokuð, auð og tóm. Eftir
ósk Verdis fór sjálf greftrunin fram
án viðhafnar — og án söngs. En hinn
mikli listamaður hafði ekkert ákveðið
um kórsetninguna — sagði einungis,
að hann vildi hvila í því húsi sem
liann liefði byggt fyrir gamla fólkið.
Þess vegna var álitið að menn brygð-
ust ekki siðustu ósk lians, þótt kistan
væri flutt á hvíldarlieimilið og
fylgt af fjaðurskreytlum riddaraliðs-
mönnum, konunglegum stórmennum
með glitrandi gimsteinum og viðhafn-
arklæddum stjórnarerindrekum. Niu
liundruð manna kór sem stjórnað var
af Toscanini hófu raust sina og þús-
undir af rnjög hrærðum áheyrendum
tóku undir hinn gamla lofsöng Verdis:
„Lyft þér, hugur, á gullnum vængj-
um“ I *
ER HANN EKTA? — Minnstu börnin
taka allt fyrir góða og gilda vöru en
þau eldri leyfa sér að efast um hvort
„allt sé gull sem glóir“. Stúlkan á
myndinni efast um hvort skeggið og
nefið á jólasveininum sé ekta og leyf-
ir sér að prófa það.
1904 - 1954
IJagur gripur cr œ íil yndis
Það er forn og þjóðlegur siður, að minnast vina sinna á há-
tíðum með góðri gjöf. Einkum hafa þó jólin þótt kjörinn tími til
þess að rækja vináttu og frændsemi með gjöfum.
Fagur gjafagripur minnir eigandann
stund.
á góðan vin og merka
í hálfa iild hefir alþjóð manna leilað í verslun vora jægar velja
hefir þurft fagran grip i góða gjöf, hvort heldur á jólum eða
við önnur tækifæri. Því að við yerslum með fagra gripi og starfsfólk
okkar hefir þekkingu og þjálfun við gerð og val slíkra gripa.
SKARTGRIPIR: gull, silfur, gimsteinar.
BORÐSILFUR.
ÚR: Rolex og aðrar tegundir.
KLUKKUR: ljónsmerkið.
SJÓNAUKAR.
KRISTALL.
KERAMIK: Laugarnesleir.
POSTULÍN.
Veglegur gripur er varanleg eign og minnisstæð gjöf.
QleðiUg \ol!
jon Spuntísson
Skoripripoverzlun
Sjúið ktte'mig pað 'iemtuk/