Fálkinn


Fálkinn - 06.12.1961, Page 35

Fálkinn - 06.12.1961, Page 35
Það var ekki fyrr en seint um kvöldið, að hann vék sér að mér. Um leið og hann fór framhjá mér sagði hann „Mademoiselle“, og konan hans fræddi mig á því, að þetta væri eina orðið, sem hann kynni í frönsku. Seinna fékk ég oftar en einu sinni tækifæri til þess að tala við Stalin á rússnesku. f fyrsta skiptið var það sam- tal um Vassili, en hann hafði miklar á- hyggjur af honum. Stalin boðaði mig kvöld nokkurt eina niður í dagstofuna. — Árig 1903, sagði hann við mig, — fæddi fyrsta eiginkona mín, Katarina, elzta son minn. Ég hafði þá verið flutt- ur til Solvitchgesk í Mið-Rússlandi. Drengurinn heitir Yasha og er ónytj- ungur. Stalin hafði raunar enn þá sterkari orð um son sinn. í þá ellefu mánuði, sem ég dvaldist í villunni, sást Yasha aðeins einu sinni. Hann var þá að ljúka námi í handverksskóla og seinna fór hann til Kákasus til þess að iðka vetr- aríþróttir. Þannig hljóðaði að minnsta kosti hin opinbera tilkynning um brott- för hans, en hún varð tilefni ýmissa sögusagna. — Ég get ekki þolað pabbadrengi eða ungt menntafólk, hélt Stalin áfram. — Þér megið samt ekki misskilja mig þannig, að ég sé að ráðast á menntun- ina og bóklega vitneskju yfirleitt. En ég kæri mig ekki um, að unga fólkinu sé innprentuð of mikil vitneskja. Vassili hefur áhuga á sínum fyrirmyndarbú- garði, og það er eins og það á að vera. Hann bauð mér sígarettu af sérstakri tegund með pappamunnstykki, sem á var þrykkt lítil gullstjarna. Hann reykti fjörutíu af þessum sígarettum á dag. Læknir hans sagði mér, að tóbaksnotk- un Stalins væri sjálfsmorð fyrir hann, jafn veikur og hann væri. Þegar ég fór, var hann búinn að minnka reykingarn- ar niður í 20 sígarettur á dag. — Síðan ég var fimmtán ára, útskýrði hann fyrir mér, — allt frá þeim degi sem ég hætti í skólanum, þá hef ég aldrei nokkru sinni leitað neinnar að- stoðar hjá neinum kennara, en eingöngu aflað mér vitneskju úr bókum. Það, sem ég vil biðja yður um er, að minnka hvert einstakt lestrarefni eins og hægt er. Enga sígilda höfunda! Engan Corn- eille! Engan Shakespeare! Þér segið mér, að Svetlana sé sérstaklega gáfuð — gott og vel: kennið henni þá að iaga mat! Hann hló sjálfur að þessu spaugi sínu. Hann leit mjög elskulega til mín og full- yrti, að hann væri ánægður með starf mitt, og þegar við gengum út úr dag- stofunni, gekk hann eitt skref aftur á bak og sagði: — Pojalouista (Eftir yður!) Þetta var í fyrsta skiptið, sem ég sá Stalin víkja fyrir konu og ég er enn þeirrar skoð- unar, að hans álit á konum hafi verið það, að æðsta hlutverk þeirra væri að gæta heimilisins. Nadia Allelievna, Sjá næstu blaðsíðu. Endurminningar eina núlifandi farandsveinsins á íslandi. Smiðsins sem ferðaðist um Evrópu með smíðatólin á bakinu, og varð stðan kennari við Iðnskólann í Reykjavík í ncestum hólfa öld. Meðal kaflaheita eru þessi: Æsku- og unglingsár. — Um Ara afa minn og syst- kini mín. — Til útróðra. — Snemma beygist krókur- inn. — Til náms í Reykjavík. — Iðnskólinn 1904— 1905. — Heima á bernskuslóðum. — Til Kaup- mannahafnar í skóla. — Smiður í Danmörku. — Aftur í skólann. — Farandsveinn í Þýzkalandi. — Farandsveinn í Sviss. — Kennari við Iðnskólann. — A gömlum slóðum og nýjum. BÓKAÚTGÁFAN LOG/ Sími 3 82 70

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.