Fálkinn - 28.03.1962, Side 19
FYRSTA ÓPERETTAN
LEIKIN Á ÍSLANDI:
LAGLEG STÚLKA GEFINS
Jólasýning Leikfélagsins í ár var
nýmæli í íslenzkri leiklist. Var þá sýnd
í fyrsta skipti hér á landi óperetta og
hafði leikfélagið valið þýzkan leik,
sem á íslenzku er kallaður: Lagleg
stúlka gefins. Þó að hér vanti flest það,
sem þarf til þess að sýna svona leik,
sem sé gott söngfólk, stóra hljómsveit
og íburðarmikið leiksvið, tókst þó sýn-
ingin svo, að mikill sómi var að, og
i áhorfendur skemmtu sér prýðilega.
Hefir hingað til ávallt verið fullt hús á
sýninguna. Hér á myndinni sést dans-
meyjaflokkurinn, sem stjórnað var af
Heklu og Sögu Jósefsson. Sjást þær
sitjandi hér á myndinni.
(1931).
II'
mm
■
STRÆTBSYAGNAR HEFJA GÖNGU SÍNA
Félag hefir verið stofnað í
þeim tilgangi að starfrækja
reglubundnar ferðir fyrir al-
menning um borgina og ná-
grennið. Er þegar tekið til
starfa á leiðinni milli Lækj-
artorgs og Klepps og ferðir
um það bil að hefjast milli
Lækjartorgs og Grímsstaða-
holts og Skildinganess. —
Næst verða teknar upp ferðir
milli Elliðaár og um Lækjar-
torg í Kaplaskjól. Til áður-
nefndra ferða verða fjórar
bifreiðar, en auk þess er í
ráði að hefja ferðir innan-
bæjar, einkum til þess að
samband náist við áðurnefnd-
ar aðalleiðir sem víðast úr
bænum. Félagið ætlar að nota
átta stórar bifreiðar til ferð-
anna, 14 manna og stærri.
Eru það Studebaker-bifreiðar,
en yfirbyggingin er gerð hér.
Einn af þessum nýju og stór-
glæsilegu farkostum sjást á
myndinni hér til vinstri.
(1931).
LAUSAR SKRÚFUR
REYKJAVÍKUR-
ANNÁLSENS
Lausar skrúfur heitir skop-
leikur hf. Reykjavíkurannáls,
sem sýndur er í höfuðstaðn-
um um þessar mundir og er
helzta hláturlind bæjarbúa
eins og raunar alltaf þegar
revíurnar eru á ferðinni. A
myndinni sem hér birtist
sjást allir leikendurnir í
lokaatriðinu, meðal annarra
Gunnþórunn Halldórsdóttir,
Friðfinnur Guðjónsson, Guð-
laugur Guðmundsson, Har-
aldur Á. Sigurðsson, Soffía
Kvaran, Tryggvi Magnússon
og fleiri.
(1929).