Fálkinn - 06.06.1962, Side 35
ÍSABELLA
Kven-sokkar
eru viðurkenndir fyrir
endingu og úílitsfegurð
Fást
í verzlnnnm
ISABELLA
lækkar
sokka-
kostnaðinn
*
tízknlitum
landallt
i
11 m
*
Heildsölubirgðir: Þórður Sveinsson & Co. h.f.
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Hamra skal járnið meðan heitt er, segir máltækið
og það á einmit.t við núna. Verið samt ekki of fljót-
fær og íhugið allt vel, sem þér ráðist í þessa dagana.
Færizt ekki meira í fang, en þér getið annað.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí).
Þaö dugar ekki að lifa í eintómum draumórum.
Þér verðið að sýna meiri sigurvilja, ef þér eigið ekki
að verða undir í samkeppninni, sem ríkir á öllum
sviðum mannlífsins. Verið raunsærri, ef þér viljið
ná takmarki yðar.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Einhverjir erfiðleikar verða í sambandi við heim-
ilislífið, en þeim getið þér vísað frá með vingjarn-
legu brosi og léttri lund. Það verður sitthvað um að
vera og yður skal ráðlagt að hafa augun hjá yður.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Þér hafið staðið í erjum, sem sennilega verða úr
sögunni strax í byrjun vikunnar. Þér munuð fá viður-
kenningu, sem þér áttuð alls ekki von á, en mun
ylja yður mjög um hjartaræturnar. Vikan krefst
mikillar vinnu.,
Ljónsmerkið (23. júlí—23. ágúst).
Þér hafið margvíslegar fyrirætlanir á prjónunum,
sem yður ætti að heppnast að framkvæma, ef þér
athugið málin með nægilega mikilli rósemi. Eitt.hvað
mun rætast úr fjárhagsvandræðum yðar.
Jómfrúarmerkið (2k. ágúst—23. september).
Eftir aðstöðu stjarnanna ætti rólegur tími að fara
í hönd. Látið ekki starfslöngunina leiða yður út í
ógöngur, en reynið að njóta þess að eiga rólega og
náðuga daga nú um skeið.
Vogarskálarmerkið (24. september—23. október).
Ef þér einbeitið yður að þeim verkefnum, sem þér
hafið nú undir höndum, mun árangurinn verða mun
betri en þér haldið. Fullkominn friður og samræmi
í einkalífi er nokkuð, S'em yður er mikils virði, ekki
sízt nú.
Sporðdrekamerkið (24. október—22. nóvember).
Þeir, sem fæddir eru undir þessu merki munu þurfa
á hæfileikum sínum og dómgreind að halda 1 vikunni,
þar sem þeir munu standa andspænis erfiðu vali.
Föstudagurinn verður happasælastur.
Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember).
Manneskja, sem vill yður vel, mun bjóða yður upp
á einhvers konar samstarf, og þér ætt-uð að hugsa
yður um tvisvar, áður en þér hafnið því. Yður hættir
til að vera stirður í umgengni.
Steingeitarmerkið (22. deseber—20. janúar).
Þér fáið allt í einu tækifæri til þess að koma í
framkvæmd þeim áformum, sem þér hafið lengi haft
í huga. í sambandi við það þurfið þér á reynslu yðar
og talsverðu fjármagni að halda.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar).
Það getur oft verið erfitt að taka ákvarðanir, þegar
um tvo ólíka kosti er að ræða. Látið innsæi yðar ráða,
því að ekki er víst að þér veljið betur, þótt þér athugið
málið gaumgæfilega.
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz).
Látið ekki slæmt skap og svartsýni ná tökum á
yður og draga úr yður allan mátt. Skapsmunirnir geta
valdið yöur óþægindum og yður hættir t.il að láta
smámuni setja yður út af laginu.
FÁLKINN 35