Fálkinn


Fálkinn - 27.06.1962, Síða 17

Fálkinn - 27.06.1962, Síða 17
rauða hár sitt, mikil fórn. Er hún eign- aðist fyrsta barnið sitt voru hjartaslög hennar tekin upp á hljómplötu, og not- uð í laginu „That is what your heart is for“. Árið 1946 birtist sú fregn í blaði einu, að ýmsir háralitarframleið- endur væru nú orðnir milljónerar og væri það Ritu að þakka, — allar kon- ur vildu vera rauðhærðar. Það virðist fyrst og fremst vera lík- amlegt aðdráttarafl Ritu Hayworth, sem gert hefur hana svo fræga sem raun ber vitni. Útlit hennar er fullkom- ið, húðin hrein og fögur og næstum gyllt, og fer sérlega vel við háralit hennar og augnalit. Bros hennar er og mjög seiðandi og allar hreyfingar henn- ar fullar yndisþokka, og á hún það ef til vill spænskum uppruna sínum að þakka. Fr,amkoma Ritu endurspeglar eftirstríðsárin að vissu leyti, lífsgleðina og kæruleysið. En umboðsmenn hennar voru ekki ánægðir. Þeir reyndu að skapa per- sónuleika, en ekki heppnaðist það. Ymis konar slagorð voru reynd, en það var ekki fyrr en hún giftist Orson Welles, að góð hugmynd í því efni leit dags- ins ljós: „Fegurðin giftist gáfunum“. Sama varð uppi á teningnum, er Mari- ]yn Monroe giftist Arthur Miller. Beztu ár ævi hennar voru árin sem hún var gift Welles, — er Aly Khan kom til sögunnar urðu viðhorfin önnur og það reyndist svo, að hún flaut ekki langt á hæfileikum sínum. Hún mátti ekki dveljast langdvölum frá Hollywood — jafnvel þótt hún væri gift Aly Khan. Er hún giftist Dick Haymes fór fyrir alvöru að halla undan fæti. En samt sem áður er Rita ekki stjarna á sama hátt og hinar auglýstu stjörnur háborgar kvikmyndanna. Oft Söngvarinn Dick Heymes er fæddur í Argentínu. Hann kvæntist fyrst fyrrver- andi eiginkonu Errol Flynn, Nora Eddington, en skildi við hana til þess að kvænast Ritu Hayworth. og tíðum hefur hún sýnt mikinn vilja- styrk og hugrekki og lífsgleði hennar var ódrepandi. Stundum virtist sem hún væri ein þessara kvenna, sem barðist vonlausri baráttu við aldurinn, en í kvikmyndum sem ,,Trinidad“ og „Pal Joey“ hefur hún sýnt, að hún er ekki hrædd við þessa staðreynd, — ár- in færast yfir. Hið sama má segja um „Regn“, en þar lék hún fölnandi feg- urð. — Öðru hverju hneykslar hún al- menning með því að dansa í of stuttum kjólum og skemmta sér fram undir morgun. En nú býr hún í húsi sínu í Beverly Hills og elur upp dætur sín- ar — Yasmin er reyndar í skóla í Sviss. Öðru hverju gluggar hún í kvikmynda- handrit, sem henni eru send. Hún vakti nokkura athygli, er hún kom til Ítalíu með Gary Merrill og var nú ljósmynduð þar sem hún sat í Gon- dól með honum klædd stuttbuxum. Hún vildi ekki ræða mikið um þessa vin- áttu við mann, sem um árabil hafði verið kvæntur annarri. Bette Davis var mjög samvinnuþýð við hjúskaparslit- in og varpaði sökinni ekki á mann sinn og heimtaði ekki mikið í sárabætur, hins vegar nokkra upphæð handa þeim börnum, sem þau höfðu tekið að sér. „Gary Merrill fær frelsið ef hann bara vill,“ sagði hún. Ástæðan fyrir hjónaskilnaðinum var fjarvistir eiginmannsins og er hjóna- bandinu var formlega slitið, lék Gary í leikhúsi í Englandi. Þau höfðu kynnst fyrir mörgum ár- um, þá er Bette Davis lék í kvikmynd fyrir Darryl Zanuck. Brátt kom í ljós, að Gary var einrænn og stundum hvarf hann og fór til bústaðar síns á Atlants- hafsströndinni. Þangað fór hann, er Eiginmaður númer fimm, James Hill, á skemmtigöngu í Rómaborg með sinni fögru eiginkonu, Ritu Hayworth. — Skömmu síðar fóru þau bæði til Spán- ar og léku þar saman í kvikmynd. hann hafði lokið við kvikmynd eða leik- sýningu, gleymdi konu sinni og börn- um og undi sér í einverunni. Það er vafamál, hvort hann hefði viljað skilja, ef hann ekki hefði hitt Ritu. Hún og Bette eru á svipuðum aldri. Rita á ekki margar minningar frá fyrsta og fjórða hjónabandi sínu. Hún eignaðist dætur sínar með öðrum og þriðja manni sínum, og húsið eignaðist hún er hún skildi við James Hill. Ef til vill giftist hún aftur, hún verður að vera ástfangin, annars er hún einmana og óhamingjusöm, en hún hefur aldrei verið fjárgráðug og yfirgaf eiginmenn sína án þess að heimta nokkuð af þeim. Hún hefur aldrei verið verulega góð kvikmyndaleikkona. Henni hefur heppnast að ná tökum á fjöldanum og hún varð að vissu leyti tákn eftirstríðs- áranna. Gilda var fyrir fimmtán árum síðan ósköp venjuleg stúlka, kvikmynd- in var í meðallagi góð, en hún gleym- ist seint. Ef til vill er það atriðið, er hún dansaði með háu, svörtu hanzk- ana — manni dettur kannske „Blái engillinn“ í hug. Er hún hóf kvikmyndaleik að nýju árið 1956, var hún ekki lengur sú Rita, sem við þekktum eftir stríðið. Hún lýsti því reyndar yfir, að hún væri ekki hrædd við aldurinn, en það leyndi sér ekki — hún var farin að láta á sjá. Margt hefur breytzt — rauða hár- ið er horfið. Hún er reyndar ekki göm- ul ennþá, aðeins 44 ára, en hana vant- ar eitthvað til þess að geta lagað sig eftir aldrinum, hún losnar ekki við Gildu, Konuna frá Shanghai og Sally. Síðasta hlutverkið sitt' fékk hún vegna þess að hún var gift kvikmynda- Framh. á bls. 34 Atriði úr kvikmyndinni „Gilda“, sem átti mikinn þátt í að gera Ritu Hay- worth heimsfræga. Meðleikari hennar var Glenn Ford, sem er ásamt Ritu á myndinni hér að neðan. FÁLKINN 17

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.