Fálkinn - 27.06.1962, Blaðsíða 20
Þeir sem liafa átt leið um miðbæ
inn í vor og eiga ekki svo annríkt,
að þeir gefi sér ofurlítinn tíma til
þess að Iíta á fólkið í kringum sig, —
kannski fyrst og fremst kvenfólkið, —
hafa án efa tekið eftir Týrólahöttun-
um. Þeir eru nýjasta nýtt í heimi tízk-
unnar hér á landi, þessir litríku og
skemmtilegu hattar með stuttum börð-
um og löngum, fjöðrum. Það eru aðal-
lega ungar stúlkur, sem bera þessa
hatta, en nokkru áður voru karlmenn
á öllum aldri farnir að setja upp Týr-
ólahatta, en reyndar nokkuð frá-
brugðna kvenhöttunum.
Tízkan lætur ekki að sér hæða, og
hún verður oft til á undarlegan hátt.
Þannig eru þessir nýju og vinsælu
Týrólahattar brot úr þjóðbúningi
hinna glaðlyndu Týrólbúa, — en hins
vegar eru hattarnir framleiddir í Dan-
nvörku!
Dönsku Týrólahattarnir fást aðeins
á einum stað hér í Reykjavík. Það
er í verzluninni Geysi, og verðið á
þeim er krónur 239.50. Sala þeirra hef-
ur verið geysilega mikil að undanförnu
og farið stöðugt vaxandi.
Nýr faraldur er sem sagt kominn
upp í heimi tízkunnar.
20
FALKINN