Fálkinn - 27.06.1962, Blaðsíða 26
Hve lengi þurfum við að sofa?
Atta klukkustundir er meðaltalið, en
er.gin regla er án undantekninga, svo að
sumir vakna óþreyttir og endurnærðir
eftir aðeins 6 stunda svefn og enn aðrir
láta sér ekki nægja skemur en 10 stund-
ir. Staðhæft er að stundirnar fyrir mið-
nætti séu helmingi meira virði en aðrar.
eitt er víst að við erum betur úthvíld,
ef við höfum sofið frá klukkan 22 til
kl. 6 að morgni, en frá klukkan 2 að
nóttu og fram á morguninn.
Athugið að viðra vel til herbergið,
sem sofið er í. Sofið fyrir galopnum
glugga á sumrin en minna á veturna.
Lítið gagn er að rifu á glugga bak við
lokuð hansagluggatjöld, sem er algeng
sjón. Sofið aldrei með hita á miðstöð-
inni.
Margir eru þeir, sem ekki geta sofið,
þótt í rúmið sé komið. Er þá gripið til
ýmsra ráða, telja upp að 1000, telja
kindur í haga o. s. frv.. Þetta eru mein-
laus meðul, sem hjálpa ef til vill sum-
um. En sé maður reglulega yfir sig
þreyttur og taugaspenntur, hrökkva
þær skammt. Farið heldur í heitt steypi-
bað, áður en gengið er til náða, látið
vatnið dynja sérstaklega vel á hálsinn
að ofanverðu og hrygginn. Núið yður
26 FÁLKINN
svo vel með frotti-handklæði, þar til
þér eruð vel þurr. Drekkið svo glas af
heitri mjólk með hunangi um leið og
farið er upp í rúmið — drekkið það
hægt og sé rúmið mjög kalt, er ágætt
að ylja það með hitapoka. Látið fara
vel um yður og reynið að slaka á öllum
vöðvum.
Hvernig veit maður, hvort
slakað er á?
Þér hafið þá fyrst slakað á, þegar
allir útlimir eru þungir og máttlausir
og þér eruð hættar að hugsa um eitt-
hvað sérstakt. Þetta er ekki eins auðvelt
eins og það hljómar, því hvíli eitthvað
þungt á huganum og við höfum mikið
að brjóta heilann um, er ekki svo auð-
velt að má allt burt.
Reynið að fara þannig að: Andið
nokkrum sinnum djúpt og rólega, lyftið
þvínæst vinstri handlegg og látið hann
þvínæst detta máttlausan niður. Gerið
það sama með þeim hægri. Beygið síðan
vinstri fót, réttið alveg máttlaust úr
honum á ný. Endurtakið þetta með
hægra fæti. Haldið stöðugt áfram, þar
til útlimirnir eru orðnir þungir sem
blý. Slakið einnig á kviðarvöðvunum
á þann hátt að þrýsta hendinni á mag-
ann„ láta magavöðvana spennast á
móti og slaka svo á. Gerið hreyfing-
arnar með öxlunum og slakið síðan á
þeim. Sumir róast við að tala við út-
limina t d.: ,,Nú er hægri handleggur-
inn máttlaus og þungur, hægri fóturinn
máttlaus og þungur og sígur niður í
undirsængina o. s. frv. Segið þetta
hægt og rólega, eins og ætlunin sé að
dáleiða sjálfa yður.
Sé heppnin með og þér sofnið eftir
að hafa slakað á, eru miklar líkur fyrir
því, að þér hafið góða og draumalausa
nótt, og vaknið því hressar og úthvíldar.
Mjög mikilvægt er að rúmið og rúm-
fötin í heild séu þægileg. Sængin ekki
of þung, koddarnir ekki of margir og
of mjúkir — þeir hindra eðlilegan
andardrátt, auk þess verðið þér hrukk-
óttar og pokóttar í andlitinu, sé það á
kafi í koddum að næturlagi.
Þegar farið er á fætur, skal þess
gætt að gera það ekki of harkalega.
Stökkvið ekki út úr rúminu um leið
og þér losið svefninn. Gefið yður tíma
til að teygja vel úr yður. Andið nokkr-
um sinnum djúpt og geispið, ef þér hafið
löngun til þess. Sé blóðrásin léleg í
fótunum: kastið sænginni ofan af yður
og hjólið rösklega upp í loftið.