Fálkinn - 27.06.1962, Blaðsíða 33
KYTitírV
Frh. af bls. 30
— Ég .... ég skil þetta alls ekki,
tautaði hún gersamlega ringluð.
— Nei, auðvitað ekki. Það stafar af
minnisleysinu, sem þú fékkst við slysið,
flýtti sir Richhard sér að segja. — Við
skulum ekki tala meira um þetta núna.
En þú skalt samt geyma teikninguna.
Ég skal sjá um að hún verði innrömm-
uð.
— Takk, sagði hún og hafði ekki
augun af myndinni.
Þegar Harris var farinn úr borðstof-
unni, beygði sir Richard sig í áttina til
Katrínar og hvíslaði:
— Jæja, hvað finnst þér um teikni-
kunnáttu mína?
Af svipbrigðum hans skildi hún
strax samhengið. Auðvitað, þannig
hlaut það að vera. Hann hafði teiknað
myndina sjálfur, — hugmynd af heim-
ili hennar í Afríku! En það hafði fengið
svo á hana að sjá sitt eigið andlit á
myndinni, að hún gat ekki áttað sig á
þessu. Á einhvern dularfullan hátt var
hún dauðhrædd við þessa mynd — ef
til vill stafaði það af því, að hún virtist
vera svo ósvikin.
— Skiptir það nokkru máli, hvað
mér finnst? spurði hún án þess að líta
framan í hann.
Hann svaraði ekki, en hún varð vör
við að honum mislíkaði spurningin.
Þegar Harris kom aftur til þess að bera
fram kaffið, sat sir Richard þögull og
afundinn, en allt í einu sagði hann hátt
og skýrt:
— Það er sannarlega dapurlegt, að
þér skuli enn finnast þú tengd barn-
fóstrunni frá East End svo sterkuum
böndum. Talsmáti þinn sýnir greini-
lega, að þú hefur lært meira af henni,
en foreldrunum þínum sálugu. Hins
vegar var móðir þín náttúrlega útlend-
ingur, svo að þar er kanski skýringin
á málfari þínu.
Katrín vissi ekki, hvort hún ætti að
taka sér þessar háðsglósur hans nærri.
Þetta var hlægileg fjarstæða allt sam-
an. En sér til undrunar og skelfingar
tók hún eftir því, að hún vissi í raun-
inni ekki lengur hvar sú gamla Katrín
endaði, en sú nýja Chaterine hófst.
Henni fannst eins og innra með henni
væru nú þessar persónur báðar.
Eftir hádegsverðinn kvaðst hann hafa
ýmsu að sinna og þyrfti að fara í bæ-
inn. Ef hún óskaði þess gæti ekillinn
ekið henni einn hring. Hann sagði:
— Einn af beztu vinum mínum kemur
hingað að sækja mig. Ég þarf ekki á
hestunum að halda. En ef þú bregður
þér í smá ferð, skaltu fara í gulu dragt-
ina, hvíta hanzka, hvíta regnhlíf og hvít-
an hatt. Þú stanzar hvergi og talar ekki
við nokkurn mann. Þú brosir ekki til
ókunnugra og umfram allt máttu ekki
stara á nokkurn mann. Reyndu að taka
öllu sem að höndum ber með hugarró
og jafnvægi. Mundu það!
Hún stóð aftur í anddyrinu og sá
hann hverfa upp tröppurnar hröðum
skrefum. Á þessari stundu fyrirleit hún
hann, já, hún hataði hann fyrir hina
tvímælalausu yfirburði hans á öll-
um sviðum. Það gagnaði ekkert, þótt
einhver innri rödd skipaði henni að
sýna honum þakklæti. Hana langaði
mest til að hrópa á eftir honum á
mergjuðu og óhefluðu götumáli. Guði
sé lof að hún losnaði við hann um stund!
Það var eins og hann grunaði hvað hún
Kæri Astró.
Mig langar til að biðja þig
að segja mér eitthvað um
framtíðina. Ég er fædd kl.
21.55. Pilturinn sem ég er
hrifin af er fæddur í endaðan
júní eða byrjun júlí 1940.
Mig langar til að vita hvort
ég muni kynnast honum
nánar. Aðaláhugamál mín eru
lestur góðra bóka og teikning
auk ýmissa hannyrða.
Með fyrirfram þökk.
Annaló.
Svar til Önnuló:
Það er skemmst frá að
segja að piltur sá, sem þú get-
ur um í bréfi þínu er fædd-
ur undir merki Krabbans,
þannig að miðað við sólar-
merkin þá fellur hann að
grundvallareðlisfari ákaflega
vel heim við eðli þitt. Hann
er að eðlisfari viðkvæmur og
næmur fyrir umhverfinu og
þú sem ert fædd undir hinu
staðfasta merki Meyjarinnar
hefur róandi áhrif á hann,
þegar hann er niðurdreginn,
en hann hefur einnig heilla-
vænleg áhrif á þig með því
að benda þér á margbreytni
umhverfisins og áhrif þess.
sem sagt þið hafið allar líkur
stjörnuspekinnar til að geta
náð góðum árangri í sambúð-
inni, en hins vegar get ég lít-
ið sagt um velgengni hans í
lífinu, þar sem þú gefur ekki
upp hvenær sólarhringsins
hann er fæddur, hvar eða
fæðingardag, en allt þetta er
nauðsynlegt til að hægt sé að
hafa gagn af stjörnusjá.
Á hinn bóginn má segja að
þú sért alls ekki alveg laus
við einkenni Krabbamerkis-
ins, því það er þitt rísandi
merki og virkar það talsvert
á framkomu þína, þannig að
þú kant að virðast viðkvæm
á yfirborðinu þrátt fyrir að
þú sért alveg laus við það.
Hið rísandi merki bendir hins
vegar til þess að þú þurfir að
læra að tileinka þér við-
kvæmni fyrir öðrum og sam-
úð í lífinu.
Plútó í fjórða húsi bendir
til að á vallt sé hætta á að
heimili þitt leysist upp ein-
hverra orsaka vegna, sem oft
á tíðum er erfitt að segja fyr-
ir um. Þetta geur komið fyrir
einu sinni eða tvisvar um æv-
ina hjá þeim, sem hafa þessa
afstöðu. Stundum virkar
þetta þannig að ung börn
missa foreldra sína í einhverj-
um ,,katastrophum“ sem ekki
er hægt að ráða við. En oft
eru þessar breytingar til góðs
þrátt fyrir að illa horfi þegar
þær dynja yfir.
Eitt það sem mér finnst at-
hyglisverðast við merki þitt
er hve margar plánetur eru í
fimmta húsi. En þar er merk-
úr, Júpíter, Sólí Neptún, Marz
og Venus eða sex. Fimmta
hús stendur fyrir börn, mennt-
un skemmtanir, frístundaiðju,
fjármálabrask eða happ-
drætti, fjárhættuspil, ásta-
málin o. fl. Þessi málefni eru
því undir ágætum áhrifum.
Geisli hússins er í Ljónsmerk-
inu, en það er talið merkja
að þú munir eiga fá en góð
börn, sem sagt að þú hafir
barnalán. Einnig bendir þetta
til að þú ættir auðvelt með
að græða á spilum eins og
Bingó, eða þar sem heppni
hefur allt að segja. Einnig
þykir þetta benda til að þú
sért heppin í ástamálunum
þrátt fyrir að þau verða ekki
mörg ástarævintýrin hjá þér,,
en það verður gott, svo langt
sem það nær og maki þinn
verður myndarlegur, og
margir munu koma til með
að öfunda þig sakir þessa.
Þessar afstöður benda enn-
fremur til þess að þú ættir
auðvelt með að starfa sem
skemmtikraftur, því þú átt
auðvelt með að verða öðrum
til ánægju með skemmtileg-
um athugasemdum þínum,
hins vegar er hætt við að þú
þjáist of oft af feimni og að
það verði þrándur í götu
frama þíns. Ég þættist þess
fullviss að ef þú leitaðir fyr-
ir þér með að þjálfa og rækta
góða framkomu að þú ættir
framtíð fyrir þér í einhverju
leikfélagi, eða þá sem góður
fyrirlesari og fræðari.
Með tilliti til ástamálanna
þá er það skoðun mín að þú
hafir nú þegar mætt þeim
manni, sem mun ganga að eiga
þig og eins og ég ræddi um,
þá eigið þið vel saman, hvað
sólmerki áhrærir svo ekkert
ætti að vera til fyrirstöðu með
að þú látir til skarar skríða.
fXlkinn 33