Fálkinn - 27.06.1962, Blaðsíða 35
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Þér munuð lenda í deilu við fjölskyldu yðar eða
einhvern af yðar nánustu. Þér munuð eiga mjög ann-
ríkt þessa viku í sambandi við vinnu yðar. Þér
skemmtið yður einstaklega vel í vikulokin.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí).
Þér hafið um langt skeið verið þeirrar skoðunar,
að starf, yðar á vinnustað sé vanmetið. Þetta er að
mest.u leyti ímyndun yðar og þér sjáið síðar þegar á
reynir, að yfirboðarar yðar meta yður mjög mikils.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Þetta verður vika mikils starfs crg gullinna tæki-
færa. Ef til vill munu margir láta freistast af með-
lætinu og taka sér fyrir hendur verkefni, sem er þeim
ofraun. Munið, að flýta yður ekki of hratt..
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Undanfarið hefur mikið verið reynt til þess að
blanda yður inn í ákafa deilu og láta yður dæma í
málinu. Þér skuluð varast þetta mál. Það kemur yður
ekkert við, og þér skapið yður ævarandi óvináttu ann-
ars aðilans, ef þér leggið yðar dóm á það.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. ágúst).
Þér eruð vanur að taka skjótar ákvarðanir á vinnu-
stað yðar, en í einkalífinu og þegar tilfinningarnar
eru annars vegar, eruð þér mjög óákveðinn. Þér mun-
uð sannprófa þetta í vikunni og læra, að ekki síður
á sviði einkalífsins þurfa menn að vera ákveðnir.
Jómfrúarmerkið (2h. ágúst—23. sept.).
Þér fáið í vikunni tækifæri til þess að ferðast og
lifa margt skemmtilegt og rómantískt. Gætið þess þó
vel að móðga ekki óviljandi þá manneskju, sem er
yður kærust af öllum.
Vogarskálarmerkið (2U. sept.—2U* okt.).
Þessi vika verður einkar viðburðarík og skemmtileg
og að mestu laus við öll vandamál. Notið þessa hag-
stæðu viku til þess að hefja verk, sem þér hafið lengi
haft mikinn áhuga á.
Sporðdrekamerkið (2U. okt.—22. nóv.).
í þessari viku gefst. tækifæri til að rétta fjárhag-
inn nokkuð og mun sannarlega ekki veita af. Gætið
þess þó að fylgja málinu vel eftir, svo að ekki verði
pyngjan galtóm aftur fyrr en varir.
Bogmannsmerkið (23. nóv.—21. des.).
Erfitt vandamál mun rísa upp í fjölskyldu yðar í
þessari viku, sennilega er ástæðan ólíkar skoðanir
unga fólksins og hins gamla. Reynið að fá yðar hlut
framgengt í þessu máli með ofurlítilli slægð og klók-
indum.
Steingeitarmerkið (22. des.—20. janúar).
Missið ekki móðinn, þótt illa gangi að fá afgert
mál, sem er yður mjög mikils virði. Reynið að gleyma
þessu máli um stund og hugsa um eitthvað annað.
Ef til vill komizt þér þá líka að raun um að fleiri
strengir eru í hörpunni og ekki er öllu lokið, þótt
áðurnefnt mál fari út um þúfur.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.).
Þér munuð gera vini yðar eða nánum ættingja mjög
mikinn greiða, en gætið þess aö ætlast ekki strax til
of mikils þakklætis frá hans hálfu. Hann mun launa
yður greiðann á sínum tíma.
Fislcamerkið (20. febr.—20. marz).
Vikan verður talsvert strembin til að byrja með,
en á fimmtudag eða föstudag fer að rofa til og þá
finnið þér allt í einu snilldarlega lausn á máli, sem
hefur valdið yður miklum áhyggjum.
FÁLKINN
35