Fálkinn


Fálkinn - 16.03.1964, Blaðsíða 19

Fálkinn - 16.03.1964, Blaðsíða 19
 þess að leita skjóls. Margir urðu illa úti af kalsárum og oftlega varð að taka hendur og fætur af þeim sem harðast voru leiknir, skurðtækin ekki önnur en rýtingur og skæri, vitaskuld var engin leið að deyfa eða svæfa sjúklinginn, þó heyrð- ist enginn æmta né skræmta, það var talin skömm að kveinka sér. í minni herdeild voru 1600 manns, þar af voru 284 stúlkur. þær urðu að vinna öll sömu verk og karl- mennirnir, stóðu við hlið þeirra í eldlín- unni unz yfir lauk og auk þess urðu þær að vinna öll störf sem ætluð eru kvennmönn- um, gera við fata- garma, elda og sjóða, útvega í matinn. Þegar stríðinu lauk eftir 4 ár, þá vorum við 41 stúlka, sem eftir lifð- um, hinar voru falln- ar . .. Börn og unglingar sóttu mjög að komast í flokk skæruliðanna í heimaþorpi mínu komu ítalskar hersveitir fyrstar á vettvang í stríðsbyrjun og hernámu héraðið. ítalir voru litlir hermenn en miklir á lofti og höfðu viðhöfn í flest- um hlutum. Á morgni hverj- um þrömmuðu þeir um bæ- inn með lúðrablæstri og námu staðar á aðaltorginu þar sem þeir drógu að hún ítalska fánann og hljóm- sveitin lék hergöngulög meðan athöfnin fór fram með pomp og prakt. Nokkrir drengir tóku sér stöðu fyrir framan hljóm- sveitina, sakleysislegir á svip og sugu sítrónur, virtu fyrir sér það sem fram fór. ítalirnir ömuðust alls ekki við drengjunum, voru þvert á.'móti kátir og glaðir yfir þeim áhuga, sem þeir sýndu. En í miðjum klíðum fór músikin öll út um þúfur, lúðrablásturinn varð falskur og lognaðist út af, ítalirnir komu ekki upp nokkru pípi úr hljóðfærunum. Þeir botn- uðu ekkert í því hvernig á þessu stóð og það fór á sömu lund tvo morgna í röð. En þriðja morguninn höfðu starf okkar fólgið í því að kenna þeim og leiðbeina, veita þeim almenna menntun. Við settum víða upp skóla og reynd- um að veita börnunum þann yl, sem þau þörfnuðust eftir ástvinamissinn. Við bjuggum við stöðuga hættu og áttum sífellt á hættu að missa lífið. Þó var það ekk- ert hjá því að falla lifandi í hendur óvinanna. Einkum fyrir okkur stúlkurnar, við vissum hvað beið okkar... Ég sá hrottalega leikin lík ungra stúlkna sem gripnar höfðu ver- eigingirni viku fyrir samhjálp og félagsanda. Og ekki má gleyma hlut- verki unglinganna. Þeir gerðu sér að vísu enga grein fyrir gangi heimsmála, þau vildu að- eins gera sömu hluti og full- orðna fólkið. Þau urðu brátt snillingar í því að leika á Þjóð- verjana, komust í samband við fólk sem átti að flytja í fanga- búðir, færðu þeim matarpakka og seldu frímerkjasöfn sín til að kaupa vistir handa skæru- liðum. Það voru engin takmörk fyrir uppátækjum þeirra. ið af Þjóðverjum og svívirt- ar áður en þær voru skotnar. Ég særðist eitt sinn og var skilin eftir ein míns liðs, um annað var ekki að ræða mörg dægur bjó ég við stöð- ugan ótta um að Þjóðverj- ar fyndu mig og þá yrði ekki að sökum að spyrja. Við horfðumst í augu við dauðann dag hvern í fjögur ár. Það varð þó ekki til að buga okkur, þvert á móti, beztu eiginleikarnir komu í ljós og með okkur myndaðist órjúfandi tengsl bræðralags og samvinnu. Sérhyggja og og þau komu að miklu liði. Það var eftirtekt- arvert að börn sem misst höfðu foreldra sína af völdum stríðs- ins, og ef til vill þurft að yfirgefa brennandi heimili sitt, þau komu flest á okkar fund. Við tókum þeim vel enda urðu þau að miklu gagni við ýmis störf og öðrum þræði var þeir komizt að raun um hvr 1 ósköpunum olli og þá voru strákarnir teknir og hýddi \ Þegar hljómsveitarmenr.- irnir horfðu á strákana sjúga sítrónurnar fóru munnvatns- kirtlar þeirra sem sé ósjálf- rátt að starfa og framleiddu svo mikið munnvatn að þeir.i var ókleift að blása í lúó - ana! Ég minnist þess einn ; þegar Önnur alþýðuhersve t skæruliða átti afmælisda ;, hátíðahöld fóru fram í því tilefni í bænum Durvar cg Tító marskálkur var sjálf- ur viðstaddur, framkvæmdi liðskönnun og tók v ð skýrslu frá foringjum her- sveitarinnar um ástand hennar og afrek. Þorpið stendur í hringlaga kvos og eru ávalar hæðir og ásar allt um kring. Þegar athöfn- in stóð sem hæst verður vart við þéttan mannhring upp á hæðunum. Okkur datt strax í hug að óvinirnir væru komnir á vettvang og njósnaflokkur var sendur á vettvang. En þarna voru þá drengir í hundraðatali, vopnaðir tré- byssum og öðrum tiltækum vopnum. Þeir höfðu sem sé myndað sína eigin hersveit og áttu raunar afmælisdag og þarna fór einnig fram liðskönnun og alit tilheyr- andi. Það varð úr að drengjahersveitin marséraði niður í þorpið og Tító sjálf- ur tók við skýrslu af for- ingjanum, þeir settust að hátíðaborðhaldi með full- orðna fólkinu og það varð mikið um dýrðir. Þegar frú Stana Tomase- vic hafði sagt okkur frá þátttöku sinni í skæruhern- aðinum vék hún lítilsháttar að högum lands síns eftir stríðið. Þá var ekki fallegt um að litast í Júgóslavíu. Landið var lítið annað en rjúkandi rúst, Þjóðverjar höfðu sprengt upp allar brýr, eyðilagt alla vegi, jafn- að við jörðu 65 af hverj- um 100 byggingum, brennt skjalasöfn og skilið listasöfn eftir í ljósum logum. Þó var þetta efnalega tap lítið hjá því afhroði, sem þjóðin hafði goldið í blóði. — Blómi þjóðarinnar hafði fallið, segir frú Tomasevic, menntamenn, iðnverkamenn og námsfólk. Þeir höfðu jafnan staðið í eldlínunni, verið í fylkingar- brjósti og orðið að láta lífið. Bezta fólkið féll, við sem Framhald á bls. 28. FÁLKINN 19

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.