Fálkinn


Fálkinn - 31.08.1964, Side 25

Fálkinn - 31.08.1964, Side 25
Við vönigeymslu Eimskips í Borgartúni. — Ég má ekki hleypa neinum hingað inn fyrir, fyrr en menn mæta til vinnu á morgnana og mér hafa verið gefin fyrirmæli um að skipta mér ekkert af þeim sem eru á vappi hér utan við, sagði Ingibjartur Jónsson. ið hér óviðkomandi, en þeir koma stundum seint á nóttunni strákamir, ef þeir hafa verið að keyra út á landið. — Ertu búinn að vera í þessu lengi? — Já, ætli það séu ekki 20 ár. Ég var fyrst vakt- maður á Klöppinni, en svo fór ég hingað inneftir. — Og hvernig kanntu við þetta? — O, mér er nú farið að finnast þetta heldur leiðin- legt og hef verið að hugsa um að hætta þessu senn hvað líður. — Ertu utan af landi? — Já, ég er af Suðurnesjunum, en er löngu fluttur hingað í bæinn. Var lengi á togurum, en hætti því í stríðsbyrjun. Það gat verið bölvað púl að vera á togur- unum hér áður fyrr. — Er nokkuð reimt hérna? — Nei, ekki aldeilis. Hér er ekki reimt. Hann fylgir okkur að hliðinu opnar fyrir okkur og við höldum í burtu. Næsti áfangastaður var vörugeymsla Eimskip Við Borgartún. Það var ekki útlit fyrir að gott væri að komast inn þeim megin svo við fórum upp í Sigtúnið. Þar virtust betri aðstæður því spýtur voru þar utan við og með því að reisa þær upp var mögul'eiki á inn- göngu. Fyrir innan hliðið, milli skemmanna var skúr, og þegar ég blístraði einu sinni sást strax hreyfing þar. Sá sem þar var á stjái kom samt ekki út fyrir en þegar við héldum áfram að hringsóla þarna fyrir utan kom hann út og kallaði til okkar, hvað við vildum. — Kurteisisheimsókn. — Hér á enginn erindi fyrr en menn mæta til vinnu. Mér hafa verið gefin ströng fyrirmæli’ um að skipta mér ekkert af þeim sem eru á stjái þarna utan við, og hleypa engum i'nn. Þeim fyrirmælum held ég, og þótt ég sé ékkert tortrygginn í ykkar garð, komið þið ekki innfyrir. Maður verður að halda þessar reglur. Hann hafði gengið út að hliðinu meðan á þessari ræðu stóð og var nú andspænis hinum megin við hliðið. — Hvaða klukku ertu með um hálsinn? — Þetta er klukka sem ég verð að setja í samband á vissum stöðum hér innan girðingar, svo það sjáist að ég hafi gengið hér um. — Er rólegt. hérna hjá þér? — Já, fyrir utan skyldustörfin er rólegt. Hingað koma engir nema menn á morgnana til vinnu sinnar. Annað hafa menn hér ekkert að erinda. — Ertu búinn að vera hérna lengí? — Síðan 8. nóvember. — Ertu héðan úr bænum? — Nei, ég er fæddur í Bolungarvík og var lengi á ísafirði og stundaði sjó. Svo flutti ég suður á Akranes 1950 og 1959 flutti ég hingað í bæinn. — Er nokkuð reimt hérna? — Nei, ekki hef ég orðið var við það. Ég hef aldrei orðið var við neinn reimleika og trúi ekki á slíkt. Þó var ég lengi á bát, sem sagt var að margt sæist á, og menn yrðu þar ýmislegs varir. En ég varð aldrei var við neitt og þeir sem ekkert vissu um þessa reimleika urðu heldur aldrei varir við neitt. Það voru að- . , . . , — Þið hafio ems þeir, sem vissu, sem emhvers ,, . _ . ekkert að gera urðu varir. * * u * — Hvað heitir þú? me.ð að Y'ía hvað — Ingibjartur Jónsson. cg e, !’ ®.ag 1 sa i Voku.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.