Fálkinn


Fálkinn - 16.08.1965, Side 21

Fálkinn - 16.08.1965, Side 21
Gústi hefur fellt kassann, og klifrar nú upp á hann og hoppar síðan ofan á kassanum og bróðurnum. ég gæzlukonuna hvort hann Gústi væri ekki staddur þarna. — Hann Gústi? spurði kona forviða yfir fávizku minni. — Heldurðu að það sé hægt að hafa hann hér. Hann stingur okkur nú alltaf af! Síðan hélt ég áfram að leita Gústa, en með litlum árangri. Átta ára kunn- ingi hans í götunni sagð- ist oft vera með Gústa og oft slást við Gústa, og sagðist nærri alltaf berja hann. Hann sagði Gústa vera kaldasta strákinn í hverfinu, hann stælist nefnilega oft inn í ölbíla. Svo loksins hitti ég Gústa, nokkrum dögum síðar, þar sem hann var að berja fimm ára bróður sinn úti á götu, og að því loknu stakk hann honum niður í pappaskassa og lokaði svo fyrir og hopp- aði ofan á öllu saman. Nú lét ég spurningun- um rigna yfir Gústa, en hann svaraði öllu með ró. Gústi kvað það jú rétt, að hann væri geysisterk- ur en kvað hömlur á því að hann gæti misnotað það. Ekki kvaðst hann vera kvensamur fram úr hófi, og gaf eiginlega lítið út á kvenfólk. — Þær verða alltaf svo hræddar, sagði hann og meinti greinilega hvert orð. Gústa fannst ógurlega gaman að vera kaldur karl, en upp á slagsmálin að gera fannst honum helvíti hart að vera ekki nema þriggja ára. Að- spurður kvað hann það hárrétt, að hann stælist stundum inn í ölbíla, hann sagðist vera að leita að flöskum til þess að selja. Gústi sagði, að nærri allir í hverfinu væru hræddir við sig, en þó virtist það helzt að skilja á honum, að ein- hverjir væru ennþá með ► En bróðirinn slapp út, og þá var ekki að sökum að hortugheit. En Gústi lækkar áreiðanlega rost- ann í þeim áður en langt um líður. Það virtist koma svolítið á Gústa, er hann var spurður, hvað hann ætlaðist fyrir í náinni fram- tíð. Hann var ekki ákveðinn og vildi helzt ekkert um það segja. En líklega er skýringin sú, að lífs- reyndur maður eins og Gústi passar sig á blaða- snápum, og segir ekki mikið. En hins vegar fór ég að efast um sannleiksgildi orða Gústa, þegar hann stakk báðum höndum í vasana, og benti á nærliggjandi bíl og sagðist skyldi bjóða mér í bíltúr, ef hann hefði lykla. Kannski var Gústa ekki trúandi eftir allt saman? En því trúi ég varla. Líklega er Gústi þaulvr.nur bíl- stjóri. Menn eins og Gústi eiga alltaf í sífelldum erj- um, og þurfa að vera varir um sig. Þó að Gústi standi í sakleysi sínu á miðri götu um hábjartan dag getur birzt náungi sem Gústi þurfti að berja í gær. Kannski vill náunginn hefna sín. En Gústi gætir sín og sinna. En einmitt vegna þessa lauk samtali okkar Gústa og síðan hef ég ekki séð hann. Gústi sá á að gizka sex ára gamlan strák inni í nálæg- um garði, og rauk af stað með orðunum: — Þennan verð ég að berja, maður. Og svo hljóp Gústi og síðan ekkert meir.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.