Fálkinn


Fálkinn - 11.10.1965, Síða 4

Fálkinn - 11.10.1965, Síða 4
»«> 4t ÞEGAR þetta birtist er frestur til að skila atkvæðum í umræddri skoðanakönnun útrunn inn, en fresturinn var til 1. okt. Það var áber- andi, að í meirihluta bréfanna var sérstak- lega lýst yfir velþókn- un á klæðaburði við- komandi hljómsveitar, ef hann gaf tilefni til þess. Það væri gieði- legt, ef íslenzkir tán- ingar mynduðu sér sín- ar eigin skoðanir í þess- um efnum, en öpuðu ekki eftir brezkum að- dáendum Rolling Ston- es, Pretty Thing og fl. sem hirða ekki um í hverju þeir ganga. Sidney Poitier heitir blökkumaðurinn og hann hefur getið sér mjög gott orð sem kvikmyndaleikari. Hér heima höfum við séð hann m. a. í myndinni Flótti í hlekkjum, en þar lék hann á móti Tony Curtis, Porgy og Bess og í myndinni Sól fyrir alla, sem Stjörnubíó sýndi nú fyrir skömmu. Sidney fékk Oscarsverðlaun- in 1964 fyrir leik sinn í myndinni Liles of the ficld og var hann vel að þeim verðlaunum kominn. * BENEDIKT VIGGÓSSON SKRIFAR FYRIR UNGA FÓLKIÐ * HÁSTEMMT FJÖR í EXALON Við erum stödd í hinum vinsæla dans- stað í Kaupmannahöfn, EXALON.- Stór salurinn er þétt setinn af fólki á öllum aldri; reykjandi, talandi, syngjandi, nú og auðvitað dansandi. Þetta er orðið svo andríkt hjá mér, að það er varla vogandi að bæta við, að sumir náðu tæpast and- anum fyrir bjórþambi. Hljómsveitin var að leika JENKA-lag, en þessi nýi og skemmtilegi dans hefur náð miklum vin- sældum í Evrópu og viðar. Lagið, sem nú var verið að stappa eftir var einkar fjörugt Ég var alveg hlessa á þessari óvenjulegu spurningu, en brátt kom upp úr dúrnurn, að þjónninn hafði haldið, að mig langaði til að spila með hljómsveitinni, en þessi skemmtilegi misskilningur var skjótt leið- réttur. Er þjónninn komst að hinu sanna erindi mínu, kvaðst hann skyldi hafa tal af hljómsveitarstjóranum. Áfram hélt dansinn og áfram var drukkið, allir í góðri stemningu á sumarkvöldi í kóngsins Kaup- mannahöfn. Þegar hljómsveitin hafði leik- ið síðasta lagið, gaf hinn síbrosandi þjónn og bar nafnið LET KISS og mun vera franskt að uppruna. Þegar fólkið gekk að borðunum, uppgefið eftir þennan erfiða dans, mátti heyra bæði danskar og islenzk- ar upphrópanir, því hér var mikið af íslend- ingum, en Exalon er mikið sóttur af ís- lendingum, bæði búsettum í Höfn og þeim, sem hafa þar skamma viðdvöl. Er ég hafði fengið mér vænan sopa af bjór, gaf é'g þjóninum merki og hann kom óð- ara til mín. Ég spurði hann á ensku, hvort ég gæti ekki fengið að tala við með- limi hljómsveitarinnar og sýndi ég honum skilríki mín til frekari áréttingar. Hann varð allur eitt bros og kinkaði kolli í sí- fellu, en hvarf við svo búið, því skyldu- störfin kölluðu. Nokkru seinna kom hann aftur og virtist nú ekki alveg með á nót- unum, því hann spurði mig. hvort ég tal- aði dönsku. Ég kvað r.ei við, en ferða- félagi minn gat bjargað málinu og túlkaði hann það, sem okkur fór á milli. Fyrst spurði þiónninn á hvaða hljóðfæri ég léki. wjivmm|J-^ mér bendingu um að ganga yfir til þeirra, hvað ég gerði. Hljómsveil n reyndist heita The Gordons og var vesturþýzk, nánar tiltekið frá Berlín. Hljómsveitarstjórinn sagði, að það væri gott að leika fyrir Dani en hljóm- sveitin hafði leikið víða um Danmörk, en var nýbyrjuð að leika fyrir dansi í Exalon. Allir hljómsveitarmeðlimirnir báru annað hvort hökutopp eða alskegg (myndin er tekin áður en þeir fóru að safna skeggi) og þegar ég spurði, hvort þetta ætti að vera stæling á Manfred Mann, brostu þeir og sögðu að svo væri ekki. En hvað músíkinni viðkemur, sagði hljómsveitar- stjórinn, að þeir reyndu að leika lög við flestra hæfi, svo allir gætu verið ánægð- ir og það var ekki annað séð á gestun- um þetta kvöld en að þetta hefði tekizt. Samferðafólk mitt var tekið að biða eftir mér, svo að ég þakkaði piltunum fyrir þetta stutta spjall og brosti breitt til þjóns- ins um leið og ég gekk út. > <i 4 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.