Fálkinn - 11.10.1965, Blaðsíða 5
☆ ☆ ☆ ☆
☆ ☆ ☆ ☆
Fra lesendum þáttarins:
Ég sagði frá því í lok september að reynt yrði að
birta flest þau bréf, er þættinum bærist, en ég er hrædd-
ur um að úr því geti ekki orðið, þar sem bréfafjöldinn
er kominn langt fram yfir það, sem ég hafði þorað að
vona og er þessi skoðanakönnun einkar vel heppnuð.
Hins vegar munu bréf verða valin úr og birt, en þau,
sem eru skemmtilega stíluð, verða látin ganga fyrir.
Það getur dregizt eitthvað að sagt verði frá úrslitunum
í skoðanakönnun þáttarins, þar sem FÁLKINN er unn-
inn töluvert fram í tímann, er úrslitin verða gerð kunn,
eins fljótt og mögulegt er.
ÞÁ er hér bréf frá Svalbarðsströnd:
... Ég vil gjarnan koma hljómsveit Ingimars Eydal i
,,SVIÐSLJÓSIГ sem vinsælustu hljómsveitinni. Það
er enginn vafi á því, að hún er bezta hljómsveit landsins.
Já, þið farið mikils á mis þarna fyrir sunnan, þó út-
varpið hafi leyft hlustendum að heyra svolítið í þessum
snillingum sl. vetur. Að lokum: Hefur enginn reynt að
fá The Beattes hingað?
Á. essgi...
FYRST voru það Swinging Blue Jeans þá voru það
Searchers og nú síðast settu táningarnir met í öskri, að
sögn dagblaðanna, er átrúnaðargoð þeirra, THE KINKS,
frömdu listir sínar í tæpan hálftíma á sviðinu í Austur-
bæjarbíó. Ostaðfestar fréttir herma að reynt hafi verið
að fá brezku Bítlana hingað, en hætt við það vegna of
mikils kostnaðar en miðinn hefði þurft að kosta um 1000
kr., ef sú útgerð átti að bera sig. Einar Jónsson stóð í
samningum við Brian Epstein um hingaðkomu Beatles
og voru brúttótekjur áætlaðar 5 millj. af hljómleikum
þeirra og kom þá helzt til greina sýningarhöllin í Laugar-
dalnum fyrir slikt fyrirtæki, en frá því var þó horfið
... Sem vinsælustu hljómsveitina kjósum við Dúmbó
sextett og Steina frá Akranesi. Þeir eru sérstaklega
smekklegir í klæðaburði og hafa góða framkomu. Allir
eru þeir myndarlegir og spila vel, en syngja ennþá
betur. Annars eru Hljómar líka góðir, en þeir eru ekki
nógu snyrtilegir og eru helzt til of hávaðasamir.
Tvær á hjara veraldar . . .
/
... Ég er einn af aðdáendum FÁLKANS, vegna þess,
að hann gerir öllum jafnt undir höfði, bæði ungum sem
gömlum. Þessar hljómsveitarkosningar, sem ,,SVIÐS-
LJÓSIГ stendur að eru alveg fyrirtak og ég vil ekki
láta mitt atkvæði ósnert, þess vegna greiði ég með minni
uppáhaldshljómsveit Pónik og Einar. Ég vona að þeir
komist á vinsældarlistann, þvi þeir eiga það svo sannar-
lega skilið.
Virðingarfyllst,
Jón Guðmundssou, Keflavík.
. . . Sem vinsælustu hljómsveitinni greiði ég Straumum
frá Borgarnesi mitt atkvæði. Þeir eru að mínu áliti til
fyrirmyndar í klæðaburði og framburður þeirra á ensk-
um textum er góður. Vonandi verða fleiri á sama máli
og ég.
Ágústa Guðmundsdóttir
m oii viíi
ÉG OG MADURlfUN
MIMINi
Kæri Fá'lki!
Ég þarf að segja þér frá
furðulegum hlut, seni kom fyr-
ir mig fyrir nokkru, og hefur
hrjáð mig mikið síðan. Mig
dreymdi það eina nóttina, að
maðurinn væri að halda fram-
hjá mér, og þegar ég svo vakn-
aði, kófsveitt, þá ætlaði ég að
fullvissa mig svo að ég gæti
sofnað aftur svo ég rétti hend-
ina yfir í rúmið við hliðina á
mér. Og viti menn. maðurinn
hafði sofnað við hliðina á mér,
en hann var ekki núna í rúm-
inu. Ég rauk á fætur og fór
niður í stofu, og þá sat hann
þar og reykti sígarettu. Þá var
klukkan hálfsex um rnorgun
en ég sofnaði klukkan tólf. svo
það hefur verið tími til þess
að gera ýmislegt. Segðu mér
nú hvað ég á að gera, Fáiki
minn, mér líður svo hræðilega
illa núna.
Svar:
Ta.laöu viö manninn Jiinn,
kona!
ÁST8N OG ALOURIMIM
Mér finnst skrýtið að ég, 72
Háttvirta blað!
ára gamall og á leiðinni með
að verða langafi skuli setjast
niður og skrifa ykkur bréf eins
og smástelpa. Og það sem
meira er. þetta bréf fiallar um
lcvennamál og vándræði.
Ég er búinn að vera kvæntur
sömu konunni í 51 ár og á með
henni fjögur börn. Aldrei heí-
ur neitt lcomið fyrir í hjóna-
bandinu, allt gengið að óskum.
En fyrir einu ári kynntist
ég ungri fráskilinni konu með
tvö börn. og hef ég heimsótt
hana nokkur kv'öld, og höfum
við verið góðir vinir, og það
skal vöðurkennt, að i fyrsta
skipti hef ég verið konu minni
ótrúr. Eflaust á ég eftir að sjá
eftir þessu, en kvenfólk er nú
einu sinni eins og Það er. og
bað er stundum erfitt að sitja
á sér.
En vandamálið ér það, að
fyrir nokkru bað Þessi kona
mig að giflast sér, og hefur hún
oft verið að tala utan af bví
siðan. Ef ég va-ri ekki svona
gamall myndi ég segja að ég
elskaði hana. og ég get kann-
slci sagt það samt. Nú er ég
alls ekki efnaður, svo ekki er
það það, sem hún er að sækj-
ast eftir. En 51 ára hjónaband,
og að verða langafi, ég veit
sannarlega ekki hvað ég á að
gera.
Simr:
Þú verður aS átta Jna á ]>ví,
hve namall J>ú ert orSinn, og
ennfremur aS átta Mg á því,
aö þú hefur siöferöilegum
skyldum aö gegna. Nú, ef þu
hefur áttaö Jng á þessu tit Mýt-
ar, Jtá hlýturöu aö geta gert
þetta upp viö þig. Annars get-
um viö glatt þig meö því. aö
skriftin var ungleg.
TEMPLARAR OG
TÓBAK
Herra Póstur!
Ég þarf að fá upplýsingar
hjá þér, og ég leita til þín vegna
þess að þú svarar stundum út-
úrsnúningalaust. Ég v'eðjaði við
kunningja minn um það um
daginn hvort templarar megi
reykja. Mega þeir það eða
mega þeir það ekki?
Svar:
Templarar mega nota tóbak.
HJÁLP!
Kæt-i Fálki!
Þú verður að hjálpa mér. Ég
er hríngtrúlofuð. hélt framhjá
í gær og sé eftir þvi í dag. Á
ég að segja kærastanum frá
þvi eða láta lcylfu ráða kasti
og láta hann kannski lcomast
að þ\'í annars staðar? Hjálpaðu
mér!
Ein örvcentingarfnU.
Svar:
Hann livern? Koerastann eöa
vininnf Auövitaö áttu aö segja
kærastanum frá þessu!
TÓMLEGT BRÉF
Kæri Fálki!
Gætir þú sagt mér heimilis-
fang RINGÓ STARR?
Svar:
Nei, því miöur en bréfiö
kemst áreiöanlega til skila ef
Jtú slcrifar Ringó Starr. London
England.
-þú F'/(llR.O£FO(Z
CMMd , éc, HEF ,
S/d/Cf FÆHGHS> HU<x
HÆ. £>/ £H/V/bA !
FALKINN