Fálkinn - 11.10.1965, Blaðsíða 11
★ ÍSLENZKT BORÐSILFUR: Ekki er um sérlega auSugan
garð að gresja með framleiðsluna hér nú, og skapast því engin
heilbrigð samkeppni. Hnífur, skeið, og gaffall, — hvort um
sig kostar mörg hundruð krónur, — en margir kvarta undan
því, að hnífarnir detti af sköftunum. Við urðum líka fyrir
þessari reynslu. Fórum með hnífinn eftir hálfsmánaðar notk-
un og bárum fram kvörtun. Það var gert við hnífinn, — en
kvörtunin ekki tekin til greina.
★ LAUKSKERI er mikið þarfaþing. Þetta undratæki fæst
nú m. a. í verzluninni Hamborg í Reykjavík og kostaði í
fyrri sendingu 98,00 kr. — en nú er komin ný sending, sem
kostar 110,00 kr. Það er þó alls ekki of hátt verð fyrir að
sleppa við að gráta yfir lauknum og sleppa við laukangandi
hnífa og borð.
★ ÞJÓÐRÁÐ fyrir þær, sem ekki hafa möguleika á að
eignast sérstakan laukskera: Þegar þið brytjið lauk, — skuluð
þið stinga upp í ykkur tveim eldspýtum og láta brennistein-
ana vísa fram. Þá fcr Iaukurinn ekki í augun, þótt undarlegt
sé. — Ef þess fer að gæta eftir nokkra stund, er enginn vand-
inn annarr en skipta um eldspýtur.
★ HVÍTIR SOKKAR bæði úr nælon og ull voru mikið í
tizku erlendis sl. vetur. Að sjálfsögðu er smekkurinn misjafn,
en flestum fannst samt þeir naumast klæða nema unga,
fagra fætur.
★ HEKLAÐAR HJÁLMHÚFUR vo^d líka mjög í tízku er-
lendis í fyrravetur. Það er heppileg tízka fyrir íslenzka
veðráttu.
★ KJÓLFALDURINN langt upp fyrir hné segir í fréttum
frá París og Hótel Sögu. Sagt er að María Guðmundsdóttir,
fyrrveiandi fegurðardrottning fslands, — núverandi ljós-
myndafyrirsæta í París, hafi komið á dansleik á Hótel Sögu
fyrir skömmu, í kjól, sem var langt fyrir ofan hné og í stíg-
vélum með gati á tánni. Þetta þótti nýstárlegur klæðnaður,
en nokkrum kvöldum seinna voru nokkrar fleiri komnar í
svona stutta kjóla. Það er auðvelt að stytta kjólana sína, —
erfiðara að fá stígvél með gati á tánni á íslandi, og erfiðast
að sætta sig við þá staðreynd, að það hafi ekki allir jafn
fagra fótleggi og María Guðmundsdóttir.
0
★ SOKKAR í STÍL VIÐ KJÓLINN eru sagðir nýjasta nýtt
frá París. Tízkudrósirnar í höfuðstaðnum eru sagðar farnar að
fitja upp á því við saumakonurnar, hvort þær vilji ekki gjóra
svo vel og sauma sokka við nýja kjólinn, sem má alls ekki vera
síðari en kjóllinn hennar Maríu.
★ HLUTVERK KYNJANNA heitir bók, sem kom út í Svíþjóð
í vor. Þar skrifaði ungt menntafólk um viðhorf sitt til þessara
mála og koma þar fram ýmiss sjónarmið, sem hér myndu þykja
nýstárleg og byltingasinnuð. M. a. segir Björn nokkur Beckman
svo frá, að hann leggi til, að karlmenn jafnt sem konur vinni
hálfsdagsvinnu, ef smábörn séu á heimilinu. Þá geti hjónin
skipzt á að vinna úti og sinna börnunum. — en það sé að öllu
leyti jafnt hlutverk karlmannsins eins og konunnar að annast
þeirra sameiginlega heimili og börn.
★ VIGDÍS JÓNSDÓTTIR, skólastjóri Húsmæðrakennaraskóla
íslands flutti nýlega erindi um þetta mál, sem síðar birtist í
heild í dagblaðinu Tíminn. Þetta erindi var I alla staði mjög
athyglisvert og ættu karlmenn jafnt sem konur að kynna sér það.
☆
Pils, sem eru eins og buxur, — buxur, sem eru eins og
pils. — „Nýtt tízkufyrirbrigði, — sem sem var í tízku
fyrir uin það bil þrjátíu árum! Þessi mynd er úr nýlegu
hefti franska kvennablaðsins ELLE.
FÁLKINN 11