Fálkinn


Fálkinn - 11.10.1965, Qupperneq 14

Fálkinn - 11.10.1965, Qupperneq 14
Þegar hjónin komu úr ferðinni, brún og sælleg og með yfirbragð heimsborg- arans, hittum við þau að máli á heimili Steindórs Hjörleifssonar leikara, sem er bróðir Jens. Jens og Kristjana hafa verið gift í tæp sextán ár og eiga f jögur börn. Þau hafa aldrei fyrr farið utan og þess vegna gerðu þau hvorttveggja í senn að kvíða fyrir ferðinni og hlakka til. Ferðalagið gekk eins vel og bezt var á kosið, og var fyrirgreiðsla öll til fyrirmyndar. Upphaf þessa ævintýris var þegar Fálkinn hleypti af stokkun- um snemma í sumar mjög glæsilegri verðlaunagetraun. Hjónin eru fastir áskrifendur blaðsins og voru þegar ákveðin í að spreyta sig á getrauninni og þegar henni lauk, voru þau í vafa um tvö atriði, en þá komu Steindór og Vona hans Margrét í heimsókn til Inífsdals og lej'stu úr vafaatriðunum. Uréfið með lausnunum fór svo express til ísafjarðar og komst í tæka tíð til Reykjavíkur. Ferðasagan er í stórum dráttum á þessa leið: Við flugum fyrst til Osló, en komum um kvöldið til Hafnar og þótti okkur mjög skemmtilegt að sjá alla þessa Ijósadýrð úr lofti; það var eiginlega eitt ljósahaf alla leiðina frá Osló, því að við sáum lika yfir til Svíþjóðar. í Kaupmannahöfn tók kunningi okkar á móti okkur og ók hann með okkur til Hróarskeldu og fór með okkur í Tívolí, en þar var mikið um að vera, svokall- aður blaðamannadagur, og var dregið í miklu happdrætti um kvöldið. Þá voru flugeldarnir stórkostlegir og annan eins mannfjölda höfum við ekki séð fyrr. Það vakti auðvitað athygli okkar, að alls staðar var vín á borðum, en við sáum engan drukkinn mann. Við fór- um svo aftur í Tívolí daginn eftir og skoðuðum staðinn í björtu, en komumst ekki í neitt skemmtitæki, þar sem bið- raðirnar voru svo langar. Nú var komið að því að gefa sig fram á ferðaskrifstofunni. Við vorum þátttakendur í svonefndri „Stjerne- rejse“ og voru flestir þátttakenda Sví- ar. Hópurinn var milli 70—80 manns og flugum við með Caravelle þotu til Barcelona. Ferðin tók ekki nema tæpa þrjá tíma og fór mjög vel um okkur. Þegar við komum til Barcelona tóku fararstjórarnir á móti okkur og eftir það vorum við að öllu leyti undir þeirra umsjá. Frá Barcelona var tveggja tíma akstur til Calella á Costa Brava, þar sem við höfðumst við það sem eftir var ferðarinnar. Hótelið okkar var alveg niður við ströndina og fengum við þar ágætt herbergi með baði og svölum sem snéru niður að ströndinni.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.