Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 4

Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 4
Indriði G. Þorsteinsson, ritstjóri Tímans. Jón Magnússon, fréttastjóri útvarpsins. Gylfi Gröndal, ritstjóri Alþýðublaðsins. MESTA INNLENDA FRÉTTIN 1965 HVER var mesta innlenda fréttin árið 1965? Þessa spurningu hefur FÁLKINN lagt fyrir fréttastjóra dagblaðanna og ríkisútvarpsins eða ritstjóra er um fréttir fjalla. Úrslitin eru þessi: SAMÞYKKTIN UM AFHENDINGU HAND- RITANNA 2 atkvœði: Tíminn og Fréttastofa útvarpsins. SKAW)SBÓK TIL ÍSLANDS 2 atkvœði: Alþýðublaðið og Vísir. FUNDUR NORÐURLANDARÁÐS Á ÍSLANDI 1 atkvœði: Morgunblaðið. STÖÐVUN SÍLDVEIÐANNA I MAÍ 1 atkvceði: Þjóðviljinn. Fréttastjóramir nefna í svörum sínum ýmsa fleiri viðburði og fram kemur sú skoðun að árið 1965 hafi ekki verið sérlega viðburða- ríkt. Svörin birtast hér á eftir, og var varpað hlutkesti um röð. 4 FÁLKINN Tíminn: STÆRSTA innlenda fréttin það sem af er þessu ári er tvímælalaust samþykkt danska þjóðþingsins miðvikudaginn 19. maí, þegar 104 þingmenn greiddu atkvæði með því,; að íslendingum skyldi fengin handritin í hendur. Aðeins 58 atkvæði voru á móti afhend- ingu og þýðir það fullan sigur íslendinga í þessu viðkvæma máli, hvað sem öllu málavafstri líður. Að vísu hafa orðið þrenn tíð- indi önnur, sem verða að flokk- ast undir innlendar fréttir, og hafa vakið alþjóðarathygli, en þar á ég við mótmæli manna á síldarflotanum gegn bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinnar nú í sumar, birtingu Yale University Press á Vínlands- kortinu og kaup íslenzku bank- anna á Skarðsbók. Engin þess- ara frétta skyggir þó á sam- þykktina um afhendingu hand- ritanna. Manni koma í hug annálar og jafnvel söguritunin í framtíðinni, þegar þannig fréttir berast. Þessarar sam- þykktar danska þjóðþingsins verður lengi minnst, og óhætt er að taka undir þau orð dr. Gylfa Þ. Gíslasonar, mennta- málaráðherra, sem sagði um ákvörðunina, að hún væri eins- dæmi í samskiptum þjóða. í sögubókum íramtiðarinnar, jafnvel stuttum ágripum, verð- ur alltaf málsgrein um hand- ritamálið og þá víðsýni sem réði lausn þess. Með þessum lokum hafa Danir skrifað stór- an eftirmála við þann aðskiln- að íslands og Danmerkur, sem var óhjákvæmilegur. Þeir sem starfa á blöðum þurfa .daglega að vega og 'meta fréttir. Flesta daga er þetta fremur erfitt verk og vanþakk- látt. En atburðir eins og þeir, sem gerðust í danska þjóðþing- inu 19. maí í vor ritstýra sér sjálfir. Þar er sagan sjálf að störfum. Fréttastofa ríkisútvarpsins: 'É'G man nú ekki eftir að það hafi nein ein innlend frétt staðið upp úr á árinu, en ég vildi þó fyrst og fremst nefna fréttina um samþykkt danska þingsins í maí í fyrravor, að af- henda handritin. Það var frétt um ákvörðun sem varðar okk- ur öll svo miklu. í framhaldi af því vildi ég nefna samþykktina í sumar sem leið, er samþykkt var að flytja hluta handritanna úr stofnun Árna Magnússonar til vörzlu Háskóla íslands. Og 1 framhaldi af þessu tvennu vildi ég nefna það þegar bankarnir festu kaup á Skarðsbók og gáfu hana ís- lenzku þjóðinni. Alþýðublaðið: EGAR spurt er um frétt árs- ins kemur mér strax í hug sá nýlegi atburður, er bankar landsins keyptu Skarðsbók á uppboði og færðu okkur hana að gjöf; heimtu aftur til ís- lands þetta merka skinnhand- rit, sem verið hefur í fórum erlendra aðila í naér fjórar ald- ir. Að minni hyggju hverfa aðrir atburðir í skugga þessa,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.