Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 8

Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 8
Shapiro horfði vandlega á myndina. „Þetta hjálpar,“ sagði hann. Hann settist aftur í stólinn. „Það var ekkert sem benti til hver stúlkan væri,“ sagði Shapiro eins og hann yrði að segja eitthvað. „Við verðum að biðja þig að staðfesta hver hún er, ef þú treystir þér til þess. Var hún skyld þér?“ „Oh,“ sagði hún. „Við vorum báðar af Titus ættinni. Mjög fjarskyldar í rauninni. Ættin greindist í svo margar áttir. — Auðvitað mun ég staðfesta að þetta sé hún, hr. Shapiro. Það var til þess, sem ég kom frá Bradenton. Ebenezer mun aka mér í bæinn á morgun. Þú munt sjá um nauðsynlegan undir- búning?“ Shapiro lofaði því. Hann stakk myndinni í vasann. Það hafði verið hugsað fyrir öllu. Tekið fyrir allan leka. Mánuðum saman hafði einhver gengið til verks með fyrir- hyggju og vandvirkni, svo að núna, þegar nýjar leiðir virt- ust opnast, leiddu þær eingöngu til frekara öngþveitis. Og John Hayward var enn ekki viss um til hvers þetta hafði verið gert. Var það til þess að koma John Hayward fyrir kattarnef, eða var það til þess að myrða rauðhærða stúlku? Um þetta var hann að hugsa, þegar hann gekk heim til sín þetta kvöld, eftir að hafa lagt bílnum. Á leiðinni heim þessa vornótt höfðu þau orðið ásátt um það, að þetta væri gildra, sem þau botnuðu ekkert í. Og John hugsaði með sér, að þau gætu aldrei gert sér vonir um að finna morðingjann fyrr en þau vissu ástæðuna fyrir morðinu. Hann gekk inn í litlu forstofuna í fjölbýlishúsinu, sem hann bjó í. Andstæðingurinn hlaut að hafa gengið þar um nokkrum sinnum. Andstæðingurinn hafði lykil. Það var greinilegt. Það var ekki eins greinilegt, hvernig hann hafði komizt yfir hann. Það var líka óskiljanlegt hvernig hann hafði getað gengið hér út og inn án þess að Harry næturvörður eða lyftudreng- urinn tækju eftir honum. Það voru aðeins fjórar íbúðir á hverri hæð. Ef það kæmi oft fyrir að þeir færu upp — upp á fimmtu hæð — með ókunnugan mann, þá hlyti það að vekja forvitni þeirra. Að minnsta kosti hlaut andstæðingur- inn að hafa viljað forðast —. Jafnvel áður en John var kominn inn úr dyrunum vissi hann, að hann þyrfti að bíða eftir lyftunni, sem var ekki niðri. Það var hægt að sjá lyftudyrnar gegnum glerið í úti- hurðinni — og sjá að lyftudyrnar voru ekki opnar, eins og þær voru alltaf þegar lyftan var ónotuð á neðstu hæð. John hafði vitað þetta í mörg ár, en aldrei hugsað um það fyrr en nú. Það skrölti hátt í lyftunni einhvers staðar á leiðinni. John varð að bíða. Svo ætlaði hann að spyrja Harry hvort hann myndi eftir •—. En þá datt honum annað í hug. Neyðarstiginn. Neðsti hluti stigans sást frá lyftudyrunum — svo að Harry — annaðhvort úr lyftugatinu eða bekknum við hliðina á lyftunni, gat séð hann. En Harry gat ekki séð stigann þegar hann var með farþega á upp- eða niðurleið. John gekk að stiganum, opnaði neyðardyrnar og labbaði upp. Þetta var auðvelt. Þá var hann búinn að finna út, hvern- ig morðinginn hafði komizt inn. Hann fór inn í íbúðina sína reiðubúinn til að mæta árás. Hann var aðeins nokkrar sekúndur að finna út að íbúðin var mannlaus. Að minnsta kosti hafði ekkert gerzt hér síð- ustu klukkustundirnar. Þá mundi hann eftir því, að hann hafði ekki gáð inn í fata- skápinn. Hann opnaði skáphurðina og kveikti. Sportjakkinn var horfinn. Ég verð vitskertur ef þessu held- ur mikið lengur áfram, hugsaði hann með sér. Jakkinn hafði verið þarna í morgun. Nú var hann horfinn. Einhver hafði komið og tekið hann. Hann setti keðjuna fyrir dyrnar. Hver sá, sem gekk hér út og inn að vild — hvort sem það var andstæðingurinn eða lögreglan — skyldi ekki ónáða hann í nótt. John Hayward fór í rúmið og sofnaði á sama augabragði. Hann vaknaði laust fyrir átta. Hann vissi hvar tréð var. Það var ekki flóknara en það. Hann bara vissi það. Hann fór í sturtu, rakaði sig og borðaði morgunverð. Síminn hringdi. „Hvernig hefur þú það?“ spurði Barbara. „Mér heyrist þér líða ágætlega.“ „Ég veit hvar tréð er,“ sagði John, og sagði henni hvar það var. „Ég bið eftir þér á beygjunni,11 sagði Barbara. John fór út og læsti íbúðinni — til hvers svo sem það væri —. Hann gekk í áttina að lyftunni. Þegar hann var kominn nær henni, heyrði hann skröltið í henni. Hann opn- aði því dyrnar á neyðarútganginum og fór niður stigann. Svona er það, sem andstæðingurinn kemst út óséður. John hélt áfram niður stigann og hlustaði. Lyftan, sem hafði áðan verið á uppleið, var nú að koma niður. Hann beið úr aug- sýn í stiganum, þangað til hann heyrði lyftudyrnar lokast og lyftan fór upp aftur. Þá flýtti John sér út, ánægður að hafa sannreynt hvernig morðinginn komst út óséður. Morg- uninn var bjartur, og hann gekk þennan spöl að bílastæðinu. Hann renndi Corvettunni út í sólskinið. Barbara beið bókstaflega eftir honum á beygjunni. Hún var í gulri dragt, og guli liturinn virtist vera sá sami og á þessum bjarta vormorgni. Þau óku norður til Westchester. Grady hringdi bjöllunni. Hann hélt áfram að hringja þeg- ar enginn svaraði. Shapiro, sem var þreytulegur og enn sorg- mæddari en venjulega, hallaði sér upp að veggnum. „Hann virðist ekki vera heima,“ sagði Grady ánægjulega. Síðan tók hann lykil upp úr vasa sínum og opnaði dyrnar. Þeir fóru inn og kölluðu upp nafn Johns. Enginn svaraði. „Hann hefur verið hér ekki alls fyrir 'löngu," sagði Sha- piro, „og fengið sér eina sígarettu.“ „Oh, þú með þínar leyni- lögreglugáfur. Har,n hefur líka sofið hér í nótt og ekki búið um rúmið, ha-ha,“ sagði Grady. Grady opnaði fataskápinn. „Ah-ha,“ sagði hann, og tók út sportjakkann. Hann fór með hanp út að glugganum og þeir athuguðu hann gaumgæfilega. Jakkinn var rifinn á bakinu, og það vantaði smápjötlu. Grady tók upp umslag, og náði í örsmáan efnisbút, sem féll alveg í rifuna á jakkanum. Þetta var sama efnið. „Þetta var svei mér fínt, finnst þér það ekki, Nate?“ 8 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.