Fálkinn - 10.01.1966, Síða 25
HANN ER IÐINN VIÐ KOLANN
ROGER VADIM, sá hinn sami og gerði Brigitte Bardot
að eins konar evrópskri Monroe, heíur krækt í þriðju
yngismeyna — Jane Fonda dóttur brezka leikarans Henry
Fonda. Hjónin eru sem stendur í Róm, þar sem verið er að
taka kvikmynd með Janc í aðalhlutverki. Barbarella lieitir
myndin, en framleiðandinn Dino di Laurentiis. Leikstjór-
inn heitir hins vegar Vadim að eftirnafni. Þetta verður
fyrsta verk þeirra hjóna á kvikmyndasviðinu og allir eru
að sjálfsögðu ákaflega óþreyjufullir eftir að sjá árangurinn.
Hvort sem Jane á eftir að verða önnur B. B. eða ekki,
þá virðist enginn vafi leika á um hjónabandssæluna, ef
marka má glaðleg andlitin á myndinni, sem vel á minnst
er af Vadim og þriðja hráefninu sem hann gengur að eiga.
GUISEPPINA
OG SANTÍNA
Á GÖNGUFERÐ
Þær voru samvaxnar í ö ár og á fræðimáli voru þær
nefndar síamskir tvíburar. ítalskir Iæknar frömdu á þeim
vandasama aðgerð í fyrra og tókst að skilja telpurnar að,
þannig að báðir lifðu. í fyrstunni kom hin óháða tilvera
þeim hvorri fyrir sig dálítið spánskt fyrir sjónir og þær
hafa orðið að leggja talsvert að sér til að læra að lifa sitt
í hvora lagi. Foreldrar þeirra Guiseppinu og Santínu búa
í ítölsku þorpi, þar sem þau stunda garðyrkjustörf. Á
myndinni eru stúlkurnar á gönguferð, en móðir þeirra
fylgist með.
PHILIPS
JAFNGÓÐ FYRIR TON OG TAL
GERÐ FYRIR BATTERI
OG VENJULEGAN STRAUM - llo/22o
SPÖLURNAR SETTAR I
MEÐ EINU HANDTAKI - (MAGASIN)
FÁLKINN 25