Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 29

Fálkinn - 10.01.1966, Blaðsíða 29
„Maðurinn, sem ég var gift. Hann fór frá mér. Hann kom ekki aftur heldur.“ Hún saup drjúgum af glasinu og hló. „Ég er hamingjusöm núna. Vegna þess ég gizkaði rétt. Ég fegin það fór svona. Það er miklu betra svona, miklu betra. Nú getur hann ekki sært mig og Michael. Heldur þú ekki þetta rétt hjá mér?“ Chiang vissi ekki hvað segja skyldi. Honum fannst heimsku- legt af henni að fara að láta upp- skátt hvað hún hefði verið. „Hvernig fann hann þig?“ spurði hann. „Við skrifuðum saman,“ sagði Aika. „Hann sendi fyrst bréf til Tókíó-garðinn. Svo skrifaöi ég honum og sagði honum nýja heimilisfangið mitt. Hann sagði hann var hættur í hernum; hann vildi finna mig. Svo kom hann til San Francisco. Viltu gefa mér meira vin?“ Chiang hellti aftur í glasið fyrir hana og hún saup á því, en hélt síðan áfram. „Svo ég sagði honum sannleik- ann. Ég er fegin að ég skyldi gera það. Því nú veit ég, hann er eins og Michael. Og nú getur hann ekki sært mig.“ „Sagðirðu eiginmanni þínum einnig, að þú hefðir verið vændis- kona?“ spurði Chiang. „Segja Michael ég var vændis- kona?“ Aika benti með fingrin- um á sjálfa sig og hló. „Nei. Ég er Japani. Asíubúi. Það fannst mömmu hans nógu vont. Uss, nei! Ég engin vændiskona þá! Ég elskaði aðeins einn mann. Við áttum nóga peninga. Við vorum hamingjusöm. Ég siðsöm kona; góð húsmóðir ...“ „Hvers vegna yfirgaf hann þig þá?“ Á sinni stirðlegu ensku og með einstöku sefasýkis upphróp- unum, sagði Aika honum smátt og smátt frá hjónabandi sinu og fyrri ævi. Hún hafði kynnzt Michael í Tókió vorið 1950. Eftir að Michael hafði fengið lausn frá herþjónustunni, giftust þau og fluttust til Los Angeles. En móðir Michaels reyndist mjög andvig hjónabandinu og þar sem hann var einkasonur, varð hug- ur hans strax mjög skiptur milli móður hans og hjónabands- ins, sem toguðust á um hann. Þrátt fyrir þetta varð sambúð hans og Aiku mjög hamingju- söm fyrsta árið. Á tæpum þrem árum eignuðust þau tvö börn. Sumarið 1953 fór Michaei i heimsókn til móður sinnar í San Diego og kom ekki aftur. En hann skrifaði Aiku reglulega og sendi henni peninga. Er frá leið urðu bréfin styttri en peninga- sendingarnar komu mánaðar- lega, án undantekninga. Svo eitt skiptið kom aðeins ávísunin ekk- ert bréf. í desember þoldi Aika ekki einveruna lengur. Hún skrifaði honum bréf og grátbað hann um að koma aftur; hún bað hann um að vera að minnsta kosti um jólin hjá sér og börn- unum tveimur. Michael svaraði um hæl og lofaði að koma. Það var mesta sælustund Aiku árið 1953 — þegar hún fékk svar hans. Dag- inn fyrir jól ræsti Aika íbúðina hátt og lágt og skreytti stofurn- ar. 1 annarri stofunni var lítið en fallegt jólatré og undir því gjafir til Michaels frá henni og börnunum og hverri gjöf fylgdi smá vers, sem Aika hafði verið heilan dag að semja. Hún keypti nokkur kerti, japanskt reykelsi og blóm; sömuleiðis keypti hún úrvals laxasneiðar, en það var eftirlætisréttur Michaels. Um kvöldið lagði hún á borð i litlu, en notalegu dagstofunni. Micha- el ætlaði að koma með lestinni klukkan hálf sex. Þá myndi hann vera kominn til hennar klukkan sex. Klukkan tæplega fimm hafði Aika lokið við að matreiða kvöldverðinn, nema laxasneið arnar, sem hún ætlaði að steikja eftir að Michael kæmi, svo þær yrðu ferskar og heitar. Síðan fór hún í nýjan kjól, sem hún hafði fengið sér í tilefni dagsins, klæddi bæði börnin, kveikti á kertunum og reykelsinu og beið. Klukkan sex var Michael ekki kominn. Hún varð sjö og enn bólaði ekki á Michael. Hún gaf börnunum að borða og lagði þau í rúmið, síðan settist hún aftur við borðið og beið, en ekki kom Michael. Klukkan tuttugu mín- útur yfir átta var dyrabjöllunni hringt. Aika flýtti sér að þerra af sér tárin og hraðaði sér til dyra. Fyrir utan stóð simasendill frá Western Union. Blóm og skeyti til frú Huggins. Aika opnaði skeytið fyrst. GET EKKI KOMIÐ AF ÓFYRIRS J Á ANLEGUM ÁSTÆÐUM. MICHAEL. Hún las það tvisvar sinnum. Svo settist hún aftur við borðið um stund; bar síðan diskana fram, slökkti á kertunum og lagði stólana til hliðar. Rósirnar voru enn ferskar; hún setti þær í vasa og lét hann á borðið. Siðan settist hún aftur og horfði á þær. Hún vissi ekki hve lengi hún sat þannig. Allt var svo hljótt í íbúðinni. Ekkert hreyfð- ist nema loftbólurnar í grænu rafmagnskertunum á litla jóla- trénu. Klukkan hálftólf tók hún sím- ann og hringdi til heimilis Michaels í San Diego. Móðir hans svaraði í símann og rödd hennar var vingjarnleg. Þær heilsuðust og báru fram hinar venjulegu jólakveðjur „Gleðileg jól“ og „Farsælt nýár.“ „Get ég fengið að tala við Michael?" spurði Aika. Frú Huggins hik- aði. „Það held ég ekki,“ sagði hún svo. „Hann á mjög ann- ríkt eins og stendur." Aika lagði simann á. Hún sat þarna og ein- Framh. á bls. 34. LÁTIÐ OKKUR ÞVO ÞVOTTINN OG HREINSA FÖTIN. SÆKJUM — SENDUM. BORGARÞVOTTAHÚSIÐ II.I. Borgartúni 3. Sími 10135. Einsmannssvefnsóli, stœrð 145 cm lengist upp í 185 cm með púðunum, sœngurfata- geymsla undir, stólar fást i stíl við sófann. SEIHUJS sff. húsgagnaverzlun Hverfisgötu 50 — Simi 18830 SEDRIJS sf. auglýsir: FALKINN 29

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.