Fálkinn - 07.02.1966, Page 24
FLJÓTAIMDI ÍBLDARHIJS
Þetta fjótandi íbúðarhús sem myndi vera það stærsta, sem til er,
var náttúrlega smíðað í föðurlandi fljótabátanna, Hollandi. Húsið var
smíðað fyrir spánska og ítalska verkamenn, sem ekki var hægt að hýsa
á annan hátt. Húsið er 41 meter á lengd, 17 metra breitt og í því eru 61
herbergi á fimm hæðum. Það heitir Casa Marina, eða Sjóhúsið. Nú er
spurningin hvort forsvaranlegar stöðugleikaprófanir hafi farið fram á
fleytu þessari!
Anamaðkar erij kjarnafæða
Allir kannast við kenjakrakkann sem vildi ekkert nema ánamaðka
að éta. Faðirinn, sem var uppeldisfræðingur fór út í garð og náði ' ána-
maðk. Krakkinn heimtaði þá að faðirinn æti helminginn af maðkinum
og hann lét undan, eins og sjálfsagt er af uppeldisfræðingi. En þá kom
í ljós að hann hafði einmitt étið þann helming ánamaðksins, sem krakk-
inn vildi og það varð grátur og gnístran tanna
Bandaríski stúdentinn hér á myndinni er ekki frýnilegur á svipinn,
enda er hann að vinna veðmál og til þess varð hann að slafra í sig kúf-
aðan disk af þessu ,,lostæti“. Það tókst með aðstoð ölglass.
KONUR OG KAMPAVKIM
Eftir að Soraya fyrrum keisarafrú í íran
hafði freistað gæfunnar sem kvikmynda-
stjarna, varð það óskadraumur Iru af Fúrsten-
berg, sem er fráskilin í tvær evrópskar aðals-
ættir (Hohenlohe og Pignatari) að sýna sig
á hvíta tjaldinu. Hún flekaði Dino di Laur-
entiis til að lofa sér hálft í hvoru aðalhlut-
verkinu í Barbarella, sém er eins konar
teiknimyndahetja og fræg um víða veröld af
mörgum blöðum og á nú að festast á filmu.
Þrátt fyrir uppörfandi reynsluupptökur, hef-
ur verið hætt við allt saman. Konan hefur
samt sem áður ekki misst kjarkinn og vonast
til að fá annað tækifæri. Á meðan gleður
hún sig við nýjan aðdáanda, kampavínskrón-
prinsinn Francois d’Aulan markgreifa og með
honum er hún hér á myndinni á rómantísk-
um labbitúr á veðhlaupabrautinni við Deau-
ville. Nú en kampavín er nú ekki svo slæmt.
24
FALKINN