Fálkinn - 07.02.1966, Blaðsíða 39
HVOLFKAKA MEÐ EPLLIll
3 egg
1V2 dl sykur
100 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 msk. vatn.
Smyrjið eldfast mót eða tertumót með föstum botni, bræð-
ið smjörlíkið í mótinu, stráið púðursykrinum ofan á, látið
hann einnig bráðna. Kælt. Eplin flysjuð, skorin þunnt, raðað
í mótið, rúsínunum stráð ofan á.
Eggjarauðurnar þeyttar með sykrinum og vatninu, hveiti
og lyftidufti hrært saman við. Að síðustu er stífþeyttum
eggjahvítunum blandað varlega í. Hellt yfir eplin í mótinu.
Kakan bökuð við 180—200° í 35—40 mínútur.
Látið kólna dálítið í mótinu.
FRÖIXISK EPLAKAKA
% kg epli 100 g muldar tví-
100 g smjörlíki bökur
1% dl sykur Þeyttur rjómi.
Eplin flysjuð skorin í báta. Raðið eplabátum, smjöri, sykri
og tvíbökumylsnu í lögum í smurt eldfast mót.
Kakan bökuð við 150° í 1—iy> klukkustund. Borin fram
volg með þeyttum rjóma.
MAREMCSEPLI
Flysjið 3 epli, kljúfið þau og takið kjarnahúsið úr. Sjóð-
ið eplin í vanillu-sykurlegi, þannig að þau haldist alveg
heil. Setjið hvern eplahelming í smurt eldfast mót yfir
stóra útbleytta sveskju, þar sem mandla er sett í stað
sveskjusteinsins.
3 eggjahvítur stífþeyttar með 100 g af sykri, sprautið
þessu eggjahvítufrauði fallega yfir eplin. Mótið sett inn í
heitan ofn 150°, þar til það er fallega ljósgult.
2 msk. smjörlíki
3 msk. dökkur púður-
sykur
3 epli
50 g rúsínur
FÁLKINN 39