Fréttablaðið - 10.10.2009, Side 47

Fréttablaðið - 10.10.2009, Side 47
LAUGARDAGUR 10. október 2009 73 ORF Líftækni hf. er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu sér- virkra próteina af miklum gæðum fyrir læknisrannsóknir, og líftækniiðnað. Með þróun og nýtingu á byggframleiðslu- tækni sinni, sem nefnd er sameindaræktun, stefnir ORF markvisst að enn frekari uppbyggingu hátæknifyrirtækis í fremstu röð á alþjóðlegum markaði, með áherslu á að selja afurðir sínar, vaxtarþætti, til rannsóknastofa á sviði frumurannsókna (t.d. stofnfrumurannsókna), frumurækt- unar og þróunar vefjasmíði (regenerative medicine) undir vörumerkinu ISOkine™. ORF er ungt og vaxandi fyrirtæki, þar sem frumkvöðlaandi ríkir með mikla möguleika á framþróun í starfi fyrir dugmikla og áhugasama starfs- menn. ORF Líftækni hf. hlaut Nýsköpunarverðlaunin árið 2008. Umsækjendum er bent á nánari upplýsingar á vefsíðum félagsins: www.orf.is eða www.orfgenetics.com. Einnig má hafa samband við starfsmannastjóra í síma 591 1570 varðandi frekari upplýsingar. Umsóknir skal senda til: starf@orf.is eigi síðar en 25. október 2009. Umsóknum má skila á íslensku en æskilegt er að þær séu á ensku. P IP A R • S ÍA • 9 16 8 8 Starfsmaður í lífefnavinnslu próteina Starfslýsing: Hópur sérfræðinga og tæknimanna starfar við þróun á próteinhreinsitækni félagsins og við próteinframleiðslu þess. ORF Líftækni leitar nú að áhugasömum starfsmanni með menntun og/eða reynslu í próteinvísindum og próteinvinnslu til að efla hópinn. Starfið lýtur að hreinsun á próteinum og almennum rannsóknastörfum, svo sem gerð bufferlausna, innkaup á efnum og áhöldum, vinnu við gagnagrunna og birgðastjórnun. Áhugasamur starfsmaður tæki einnig þátt í uppsetningu á framleiðslukerfum, framleiðslu á líftækni- próteinum og þróun og rannsóknum á prótein- tækni félagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Þjálfun og reynsla í rannsóknavinnu og prótein- vísindum. • Menntun í lífeindafræði, lífefnafræði eða sambærileg menntun og/eða reynsla. • Reynsla í próteinhreinsitækni (chromatography, filtration, fractionation). • Þekking á tækni við greiningu próteina og reynsla í notkun SDS-PAGE og Western blot greininga. Reynsla í notkun annarrar tækni æskileg, s.s. CE, ELISA, HPLC, UV/VIS spectrometry. • Góð tölvukunnátta. • Sveigjanleiki í vinnutíma er æskilegur. • Hæfni til að vinna í samstarfi við aðra. Um er að ræða fullt starf og tungumál á vinnustað er enska. Hjúkrunarfræðingar, Læknar og Geðlæknar. Stórt fyrirtæki innan heilsugeirans í Noregi vantar hjúkrunar- fræðinga, lækna og geðlækna til starfa í lengri og skemmri tíma. Við bjóðum frítt flug og húsnæði. Þú velur sjálf/ur hvar í Noregi, hve lengi og hvenær passar fyrir þig að vinna. Við bjóðum einnig uppá að þú getur komið í viku til okkar til að prófa hvernig þér líkar. Laun eru 170 til 200 NOK per tíma hjá hjúkrunarfræðingum eftir reynslu og sérhæfingu. Þetta er miðað við grunnvinnu sem er 35,5 tímar á viku en tímalaun hækka ef unnið er meira en það. Ef viðkomandi er með E101 skírteini (allir geta sótt um það hjá Tryggingar- stofnun) þá er skatturinn um 22 til 23%. Æskilegt er að umsækjandi sé með kunnáttu í einu af skandinvíu málunum, norsku, dönsku eða sænsku. Ekki er krafist að viðkomandi tali málið reiprennandi. Áhugasamir sendi spurningar á íslensku og CV á ensku eða norsku/dönsku/sænsku á netfangið indridi@xtracare.no www.xtracare.no

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.