Fréttablaðið - 10.10.2009, Síða 60
10 FERÐALÖG
Í
talíudýrkendur ættu að kætast
yfir þeim fréttum að næsta
sumar tekur Iceland Express
upp beint flug til Mílanó. Borgin
er draumur allra þeirra sem hafa
gaman af tísku og hönnun, enda
verður þar vart þverfótað fyrir
leggjalöngum fyrirsætum í bland
við listaspírur. En Mílanó hefur
upp á margt fleira að bjóða. Þótt
fegurð borgarinnar sé ekki eins slá-
andi og annarra ítalskra borga er
hún „falleg að innan“. Gimsteinar
borgar innar eru margir en oftar en
ekki er svolítið djúpt á þeim.
Einn er svo sá kostur sem Mílanó
býr yfir sem gerir hana all sérstaka
í Evrópu. Ýkjulaust má segja að
þaðan sé stutt í allt. Hvort sem
löngunin beinist til hámenningar,
letilegra sólbaða, í snævi þaktar
brekkur eða alvöru rauðvínsbónda.
Allt er í seilingarfjarlægð. Hér eru
dæmi um áhugaverða staði sem auð-
velt er að komast á frá Mílanó.
Cinque Terre
Suður af Mílanó er Cinque Terre en
það er tilvalinn staður fyrir þá sem
vilja heilsurækt í bland við óvið-
jafnanlega náttúrufegurð. Staður-
inn heitir eftir þorpunum fimm
sem virðast hanga í hlíðunum við
ströndina sunnan við Genúa. Fjöldi
göngustíga tengir þorpin fimm og
liggja þeir um þverhnípta kletta og
skógi vaxnar brekkur.
Feneyjar
Feneyjar eru öðruvísi en allir
aðrir staðir. Skemmtilegast er að
hafa sem minnst á dagskránni þar
en leyfa borginni að leiða sig um
ranghala sína, meðfram síkjum og
um þröngar steinlagðar göturnar.
Ekki þarf að óttast að verða fyrir
bíl því bílaumferð er engin í mið-
bænum. Það er því óhætt að vera
djúpt niðursokkinn þegar þrætt er
milli síkjanna og dáðst að glæsileg-
um gömlum byggingum.
Lago di Como
Como-vatn er ákjósanlegur staður,
bæði fyrir þá sem vilja slappa af
við vatnið og hina sem vilja skoða
allt sem nágrenni þess hefur upp
á að bjóða. Ágætur millivegur er
að kaupa sér pláss í einni af þeim
mörgu ferjum sem sigla um vatnið
á milli lítilla og fallegra bæja. Inni
á milli má svo sjá tilkomumiklar
villur, sem margar hverjar eru
opnar forvitnum ferðalöngum. Þá
er lítið mál að hoppa af ferjunni,
ganga um glæsihýsin og garða
þeirra og láta sig dreyma.
Ítölsku Alparnir
Landslag ítölsku Alpanna er fjöl-
breytt, allt frá miklu fjalllendi
til gróinna dala. Alparnir eru því
vinsæll áfangastaður hjá fjalla-
geitunum, bæði þeim sem helst
vilja renna sér á skíðum niður
brekkur og hinum sem vilja heldur
klifra í fjallshlíðum. Í Ölpunum
snýst lífið einkum um heilsurækt
í bland við hið ljúfa líf. Þar er því
fjöldinn allur af veitingastöðum og
börum sem hægt er að drepa tím-
ann á.
MIÐPUNKTURINN
MÍLANÓ
Il Duomo Dómkirkjan er mikilfenglegasta bygging Mílanó. Í heiðskíru veðri er
útsýnið yfir borgina stórkostlegt frá turninum.
Fegurð Feneyjar eru einstakar. Þangað verða allir að koma einu sinni á ævinni.
Litadýrð Cinque Terre er guðdómlegur staður sem göngugarpar ættu ekki að láta framhjá sér fara.