Fréttablaðið - 10.10.2009, Side 62

Fréttablaðið - 10.10.2009, Side 62
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög OKTÓBER 2009 Ein mest spennandi sýning haustsins er titluð Pop Life og er í Tate Modern í London um þessar mundir. Sýningarstjórinn veltir fyrir sér hinni áleitnu staðhæfingu Andys Warhol um að „góð við- skipti séu besta listin“ og skoðar arfleifð popplistar og menningar og áhrif Warhols á samtímann. Á sýningunni er sýnt fram á hvernig listamenn hafa notað fjölmiðla, markaðsherferðir og fleira til að skilgreina sig í listaheiminum. Á sýningunni eru, fyrir utan verk eftir Warhol, verk eftir listamenn- ina Jeff Koons, Damien Hirst og Tracey Emin. Sýningin stendur fram í lok janúar. POPPLIST Í LONDON BIÐLISTAR EFTIR TYRKNESKRI SÓL Sólarþorstinn er mikill meðal Íslendinga á haustin. Heimsferðir hafa boðið sólarferðir til Bodrum í Tyrklandi og bættu tveimur auka- ferðum við áður auglýsta dagskrá, 15. október og 24. október, til að anna mikilli eftirspurn. Hratt seldist upp í báðar ferðir og er fjöldi fólks á biðlista, samkvæmt upplýsingum frá Heimsferðum. Bodrum er falleg- ur hafnarbær sem stendur á sam- nefndum skaga á Eyjahafsströnd Tyrklands. Eins og fram kemur á heimasíðu Heimsferða skartar hann fallegum hvítum húsum sem eru víða skrýdd blómum og þröngum heillandi götum. Þar segir jafnframt að í bænum sé endalaust úrval af veitingastöðum, börum, kaffihúsum, verslunum og fjölbreyttu nætur- og skemmtanalífi. A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.