Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.10.2009, Qupperneq 68

Fréttablaðið - 10.10.2009, Qupperneq 68
40 10. október 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is „Vissulega má segja að þessi verslun sé orðin að stofnun, enda hefur hún verið hluti af uppvexti og tilveru flestra Hús- víkinga og Þingeyinga,“ segir Friðrik Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bóka- verslunar Þórarins Stefánssonar á Húsavík. Ásamt Magneu Magnúsdótt- ur eiginkonu sinni er Friðrik einnig eigandi verslunarinnar, sem fagnar hundrað ára verslunarafmæli á þessu ári. Af því tilefni verður viðskiptavin- um boðið til veislu klukkan 10 í dag. Bókaverslun Þórarins Stefánssonar var stofnuð árið 1909 og er ein elsta starfandi bókabúð á landinu. Friðrik segir hana í öllu falli vera þá lang- elstu sem ávallt hafi starfað undir sömu kennitölunni. „Þótt Eymundsson hafi byrjað að sýsla með bækur fyrir aldamót hefur ansi oft verið skipt um rekstraraðila og kennitölu hjá þeirri verslun. Það er nokkurs virði nú þegar kennitöluflakk virðist vera venjan í dag,“ segir Friðrik og hlær. Þórarinn Stefánsson, stofnandi verslunarinnar, rak búðina allt þar til upp úr miðri síðustu öld þegar Ingvar sonur hans tók við taumunum. Ingv- ar rak búðina til dauðadags og það var svo fyrir níu árum sem hjónin Friðrik og Magnea tóku við rekstrinum ásamt foreldrum Friðriks. Síðustu þrjú árin hafa Friðrik og Magnea alfarið séð um verslunina. „Móðir mín starfaði hér í heil sjö ár á sjöunda áratugnum og mitt fyrsta starf var sem vikapiltur í búð- inni þegar ég var tíu ára gamall. Það er gaman að því hvernig þetta hefur tengst í gegnum tíðina,“ segir Friðrik. Auk þess að boðin séu til sölu bækur og ritföng er ýmislegt fleira hægt að fá í versluninni hjá Friðriki og Magneu. Þar má nefna gjafavöru, barnaleikföng og vörur sem tengjast ferðamennsku. Þá selur verslunin raftæki í samstarfi við Ormsson og er þjónustuaðili Sím- ans á Húsavík. „Búðin er nánast eins og kaupfélag. Þetta er eina bókaversl- unin á Húsavík, enda ekki markað- ur fyrir margar slíkar búðir í svona plássi eftir að farið var að selja bækur í matvöruverslunum fyrir jólin,“ segir Friðrik. Í veislunni í dag verður viðskipta- vinum boðið upp á veitingar, auk þess sem fjöldi tilboða verður í búðinni í til- efni tímamótanna. „Þetta er afbragðs tækifæri til að gleðjast, breyta til og gera eitthvað nýtt,“ segir Magnea Magnúsdóttir. kjartan@frettabladid.is BÓKABÚÐ ÞÓRARINS STEFÁNSSONAR: FAGNAR HUNDRAÐ ÁRA AFMÆLI HLUTI AF TILVERU HÚSVÍKINGA DAVID LEE ROTH FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1954. „Einu sinni átti ég í vandræðum með eiturlyf. En núna þéna ég nægilega af peningum.“ David Lee Roth er bæði uppruna- legi og núverandi söngvari banda- rísku rokkhljómsveitarinnar Van Halen. Auk þess hefur hann hljóð- ritað fjöldann allan af sólóplötum, ritað ævisögu sína og reynt fyrir sér sem útvarpsmaður. Þennan dag fyrir 37 árum sletti Helgi Hóseas- son skyri á forseta Íslands, biskup og þingmenn við setningu Alþingis. Helgi var þekktur mótmælandi og sem slíkur oft nefndur Mótmælandi Íslands. Það var einn- ig nafnið á heimildarmynd um Helga eftir Þóru Fjeldsted og Jón Karl Helgason sem frumsýnd var árið 2003. Helgi Hóseasson fæddist árið 1919 og hóf að mótmæla af krafti árið 1962. Hann taldi sig hafa verið óréttlæti beittur af íslenska ríkinu frá fæðingu og vildi fá kirkju, dómstóla eða annað yfirvald til að rifta skírnarsáttmála sínum. Helgi hafði ekki fengið kröfum sínum framgengt við andlát sitt fyrir tæpum mánuði. Síðar mótmælti Helgi einnig stuðningi íslensks ríkisvald við stríð og ójöfnuð. Eftir andlát Helga hafa margir lýst yfir þeim vilja sínum að minnisvarði um hann verði reistur á horninu á Langholtsvegi og Holtavegi, þar sem Helgi stóð gjarnan og mótmælti. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort af verður eða hvernig minnisvarða verði um að ræða. ÞETTA GERÐIST: 10. OKTÓBER 1972 Helgi sletti skyri á ráðamenn FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MERKISATBURÐIR 732 Orrustan við Tours, nærri Poitiers, þar sem Karl hamar og Frankar stöðva framsókn Mára inn í Evr- ópu. 1138 Jarðskjálfti verður í Al- eppo í Sýrlandi. Talið er að 230.000 hafi látist. 1945 Sjómannaskólinn vígður á Rauðárholti. 1970 Fídji-eyjar öðlast sjálf- stæði frá Bretum. 1970 Auður Auðuns tekur við embætti dóms- og kirkjumálaráðherra. Hún er fyrsti kvenráðherra Ís- lands. 1974 Norræna eldfjallastöð- in er formlega opnuð í Reykjavík. 2001 Verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi formlega opnuð. AFMÆLI GUY RITCHIE LEIKSTJÓRI ER 41 ÁRS. COLIN FIRTH LEIKARI ER 49 ÁRA. HJÓNIN Friðrik og Magnea hafa starfað í versluninni síðastliðin níu ár. MYND/ÚR EINKASAFNI Umhverfisráðuneytið og Náttúrufræðistofnun Íslands hafa búið til ljósmyndasýn- ingu til að vekja athygli á loftslagsbreytingum og áhrif- um þeirra í náttúru Íslands. Sýningin verður í dag á Hótel Hilton Nordica í Reykjavík en svo er stefnt að því að setja hana víðs vegar upp í haust, þar á meðal í skólum. Á einni af myndunum sem Jóhann Óli Hilmarsson tók má sjá lunda með sænál, sem er einn þeirra suðrænu fiska sem hafa sést í auknum mæli í hafinu í kringum landið undanfarið. Lundinn hefur sótt í sænál vegna skorts á sandsíli, en talið er að hrun í sandsílastofninum stafi af hlýnun sjávar. Sýningunni lýkur á Hótel Hilton Nordica í dag klukkan 13. Sýning á umhverfisþingi SÆNÁL Lundi sækir í þennan fisk vegna skorts á sandsíli. Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Steingrímur Jónasson Hlynsölum 1, Kópavogi, lést mánudaginn 5. október að Dvalar- og hjúkrun- arheimilinu Grund í Reykjavík. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju, fimmtudaginn 15. október kl. 15.00. Rósa Steingrímsdóttir Stefán Hjörleifsson Jón Þór Steingrímsson Sheida Keshtkar Bjarney Kolbrún Garðarsdóttir Tryggvi Garðarsson Rebekka Stella, Tryggvi Þór, Ástþór, Silja, Harpa, Steingrímur Kolbeinn, Róbert Ingi, Andri Snær. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 MOSAIK Hjartanlegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts ást- kærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Önnu Árnadóttur, Bólstaðarhlíð 31, Reykjavík. Innilegar þakkir til starfsfólks deildar D1 á Landakoti og starfsfólks Sóltúns. Jón Tómasson Elinborg Jónsdóttir Valgerður Katrín Jónsdóttir Margrét Jónsdóttir Ragnar Sigurðsson Guðmundur Árni Jónsson Lára Nanna Eggertsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.