Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 74
46 10. október 2009 LAUGARDAGUR
Það eru byltingarkenndar þreif-
ingar við nýjar línur í verslun
hinna geðþekku hjóna, Svav-
ars Péturs og Berglindar Häs-
ler, Havarí í Austurstræti 6. Þar
er nú kominn kimi fyrir mynd-
list, Gallerí Havarí, og að auki
eru Havarí og Café Haítí komin í
samstarf. Havarí hefur stimplað
sig rækilega inn í verslunar- og
menningarlíf miðborgarinnar.
Í dag klukkan tvö opnar Gallerí
Havarí og munu tíu framsækn-
ustu myndlistarmenn þjóðarinn-
ar sýna og selja verk.
Að sjálfsögðu mun óreiða og
hentistefna einkenna sýningar-
stjórn Havarís eins og gera má
ráð fyrir í stefnufestu nafnsins.
Samfara þessari nýbreytni hefj-
ast kaffiveitingar á staðnum en
Havarí hefur gert samstarfs-
samning við Café Haítí, minnsta
(og besta?) kaffihús landsins
sem hefur aðalstöðvar sínar á
Tryggvagötu. Nú geta gestir og
viðskiptavinir Havarís sopið
kaffið kræsilega meðan þeir
njóta tónlistar og myndlistar.
Á veggjunum frá laugardegi
verða verk eftir Lóu Hlín Hjálm-
týsdóttur, sem gerir myndasögur
í Reykjavík Grapevine og syngur
með FM Belfast. Sindri Már Sig-
fússon, meistarinn í hljómsveit-
inni Seabear og Sin fang bous á
þar verk.
Ísak Óli Sævarsson var greind-
ur einhverfur um fjögurra ára
aldur og hefur alla tíð teiknað
daginn út og daginn inn. Hann
teiknar næstum bara þekktar
teiknimyndapersónur úr sögum
sem lesnar hafa verið fyrir hann
og málar þær á striga.
Ingibjörg Birgisdóttir hefur
gert albúm fyrir múm og Sea-
bear sem hún starfar í. Davíð
Örn Halldórsson hefur verið að
gera það gott í listheimi undan-
farið, litrík málverk hans virð-
ast falla í kramið. Þrándur Þór-
arinsson nam meðal annars
málaralistina hjá Odd Nerdrum.
Þrándur sækir viðfangsefni sín
í íslenska sögu, þjóðsögurnar og
Íslendingasögurnar.
Bjargey Ólafsdóttir hefur
komið víða við á viðburðaríkum
ferli. Bjargey sýnir teikningar
í Havaríi. Halldór Ragnarsson
hefur hannað plötuumslög meðal
annars fyrir Curver, Kimono,
Borko og Hudson Wayne. Hann
er bassaleikari Seabear.
Hugleik Dagsson þekkja allir.
Sigtryggur Berg Sigmarsson er
fæddur á Akureyri og er fræg-
ur fyrir gjörninga, myndlist og
innsetningar auk þess að hafa
starfað með hljómsveitinni
Stilluppsteypu um árabil.
Bætist við í búðinni Havarí
MYNDLIST Listabúllan Havarí tekur upp myndlistarsýningar og kaffiveitingar. Frúin Berglind þrífur glugga en Svavar Pétur segir til.
Melodía, sem kom út á diski í fyrra og geymir lög sem varðveitt eru
í svokölluðu handriti, fær heldur betur hrósið í nýjasta blaði hins
virta breska tónlistartímarits Gramophone. Þar er diskurinn sem
Árni Heimir Ingólfsson á stóran heiður af sem stofnandi og stjórn-
andi söngsveitarinnar Carminu, valinn af ritstjóra og fær heiðursess
í umfjöllun blaðsins um nýja diska. Blaðið er leiðandi í umfjöllun um
sígilda tónlist í hinum engilsaxneska heimi. Lokaorð Davids Fallows
í umsögn hans eru lýsandi: Allt safnið er sigur.
Melodía geymir safn veraldlegra og andlegra lagasmíða sem hafa
í tengslum við útgáfuna verið raktar til fjarlægra frumheim-
ilda sumar: hér eru lagboðar eftir Senfl og Hof-
heimer frá um 1500 og Lofgjörð Maríu sem
aðeins er kunn annars staðar í katalónsku safni
frá síðari hluta fjórtándu aldar.
Með umfjöllun, sem hefur þær Kristínu
Ernu Blöndal og Mörtu Guðrúnu Halldórsdótt-
ur til skýjanna fyrir raddfegurð, er birt viðtal
við Árna þar sem hann gerir grein fyrir sér og
framtakinu. - pbb
Melodíu hrósað
TÓNLIST Árni Heimir Ingólfsson og diskurinn lofaði.
Stjórnandi er kanadíski Vestur-Íslendingurinn Richard Gillis
Einleikari er Björn Thoroddsen, gítarleikari
Flutt verður tónlist eftir þá Björn og Gillis í nýjum útsetningum Gillis,
en þeir tveir eiga að baki langt og mikið samstarf, m.a. í hljómsveitinni
Cold Front. Björn Thoroddsen er löngu landskunnur gítarleikari, en
Richard Gillis er prófessor við Tónlistarháskólann í Winnipeg og
stjórnandi The Winnipeg Jazz Orchestra.
Ráðhús Reykjavíkur
Sunnudag 11. okt. kl. 16:00
Aðgangur ókeypis
Björn Thoroddsen
Richard Gillis
& STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR