Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 81
LAUGARDAGUR 10. október 2009 53
LIFÐU VEL!
Ferskur
Floridana
í nýjum
umbúðum
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Börkur Jónsson hefur
hannað sérstaka leikmynd
fyrir verkið Fjölskylduna
í Borgarleikhúsinu. Leik-
myndin er þriggja hæða
hús og segir Börkur þetta
sitt stærsta verk til þessa.
„Það er alltaf gaman að fá svona
verkefni,“ segir Börkur Jónsson
leikmyndahönnuður, sem hann-
ar leikmyndina fyrir verkið Fjöl-
skylduna sem Hilmir Snær Guðna-
son leikstýrir og verður eitt af
flaggskipum Borgarleikhússins í
ár. Leikmyndin er einstök að því
leytinu að þriggja hæða hús er nú
risið á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins og leikararnir ganga um á vír-
netsgólfi. Börkur segir að eitthvað
hafi þurft að vinna í lofthræðslu
sumra leikaranna en vill ekki gefa
upp nöfn þeirra sem voru eitthvað
smeykir við hæðina. „Það eru ekk-
ert allir jafn öruggir með þetta, en
þetta er allt að koma.“
Börkur útskýrir að inn í verkið
sé skrifað ættaróðal, hálfgert fjöl-
skyldusetur, en verkið gerist að
mestu leyti þar inni. Húsið er opið
og hálfgerð beinagrind. „Allir leik-
arar sem koma inn í húsið eru því í
sýningunni allan þann tíma og eru
að leika þótt þeir séu kannski ekki
í sviðsljósinu. Við getum því fylgst
með ferðalagi þeirra um húsið,“
útskýrir Börkur og bætir því við
að þótt leikmyndin sé kannski
martröð fyrir lofthrædda leikara
sé hún draumur fyrir ljósamenn.
„Yfirleitt eru þeir að berjast við
veggi og þök en það eru hins vegar
engir slíkir á þessu húsi,“ útskýr-
ir Börkur en húsið teygir sig yfir
allt sviðsopið.
Leikmyndahönnuðurinn segir
miklar pælingar liggja að baki
þessari leikmynd, eins og reyndar
flestöllum leikmyndum, og verður
eilítið hugsi þegar hann er spurð-
ur hvort þetta sé hans stærsta
verk hingað til. „Leikmyndin við
Woyzeck var nokkuð stór en hún
gerðist öll í stóru rými þannig að
já, þetta er sennilega mín stærsta
leikmynd, þar sem leikarar leika
beinlínis í loftinu líka,“ segir Börk-
ur. Hann segir leikarana hafa tekið
leikmyndinni vel þótt hún sé nokk-
uð krefjandi. „Íslenskir leikarar
eru alveg sérlega góðir í að laga
sig að aðstæðum, þeir eru ekkert
að kvarta. En auðvitað útheimtir
sýningin líkamlegt úthald og rým-
istilfinningu og fólk þarf að vera
vel einbeitt í byrjun meðan það
er að venjast leikmyndinni. Þetta
kemur samt allt bara með kalda
vatninu og æfingunum.“
freyrgigja@frettabladid.is
Ekki fyrir lofthrædda leikara
„Við vorum beðnir um að taka eina
tónleika á Eistnaflugi í sumar,
sem við gerðum. Eftir það ákváð-
um við að klára nokkur lög sem
við höfðum samið en aldrei full-
klárað og þess vegna var hljóm-
sveitin endurvakin,“ segir Agnar
Eldberg gítarleikari um endur-
komu harðkjarnahljómsveitar-
innar Klink sem mun spila á Dill-
on í kvöld ásamt hljómsveitunum
Retrön og Celestine.
Haukur Valdimar Pálsson mun
fylla skarð bassaleikarans Árna
Hauks Jóngeirssonar sem búsett-
ur er í Danmörku. Bassafantur-
inn Þröstur Jónsson verður einnig
fjarri góðu gamni því sá stundar
sjómennsku af miklum móð þessa
stundina.
„Við erum svaka spenntir fyrir
tónleikunum í kvöld, þetta verð-
ur brjáluð þungarokksbomba. Við
ætlum að þrusa í gegnum sjö lög,
það er ekki hægt að spila þunga-
rokk í einn og hálfan tíma, ég held
að það sé bara ekki á færi dauð-
legra manna,“ segir Agnar, sem
lofar gallsúrri stemningu.
Hljómsveitin hefur ekki gefið út
plötu síðan 666 gráður norður kom
út og segir Agnar að verið sé að
vinna að nýju efni. „Við erum að
rifja upp gömul áður óútgefin lög
og erum að semja nokkur til við-
bótar. Þegar það er búið ætlum við
að reyna að koma okkur í stúdíó
einhvers staðar. Ef einhver hefur
áhuga á að aðstoða okkur í þeim
málum má sá hinn sami gefa sig
fram.“
Tónleikarnir hefjast klukk-
an 21.30 og er aðgangseyrir 499
krónur. - sm
Brjáluð þungarokksbomba
Söngvarinn Liam Gallager
hefur lýst því yfir að Oasis
muni ekki starfa áfram án
bróður hans, Noels. „Oasis er
hætt. Við vitum það öll,“ sagði
Liam. „Það er synd en svona
er lífið. Við áttum góðan tíma
saman. Málið er að við stöðvuð-
um Oasis sjálfir, enginn annar
gerði það fyrir okkur, sem er
frekar svalt.“ Enn þá andar
köldu á milli þeirra bræðra
eftir að Noel sagði skilið við
sveitina í París. „Við
eigum langt í land
enn þá, en hver
veit?“ sagði Liam.
Hann einbeitir sér
núna að fatalínu
sinni, Pretty
Green, á meðan
hann íhugar
næstu skref í
tónlistinni.
Oasis heldur
ekki áfram
Álftagerðisbróðirinn Óskar Péturs-
son hefur sent frá sér sína fjórðu
sólóplötu, Allt sem ég er. Tónlistin
er eftir Björgvin Þ. Valdimarson
og gestasöngvarar eru Björgvin
Halldórsson, Guðrún Gunnars-
dóttir og Guðjón Davíð Karlsson,
eða Gói, sem syngur lagið
Neyslu(kv)æði þar sem
gert er góðlátlegt grín
að neysluæði Íslend-
inga.
Björgvin Þ. Valdi-
marsson og Óskar hafa
starfað mikið saman
og hefur Óskar ásamt
bræðrum sínum sung-
ið þó nokkuð af
lögum Björgvins,
þar á meðal hið
vinsæla Undir
Dalanna sól. „Þetta meiðir engan,“
segir Óskar um tónlistina á plöt-
unni og tekur fram að textarn-
ir hafi verið smekklega valdir af
Björgvini. Meðal textahöfunda eru
Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Kristj-
án Hreinsson, Davíð Stefánsson,
Halldór Laxness og Sigurbjörn
Einarsson. Óskar hefur í nógu að
snúast í tónlistinni og er bókað-
ur langt fram í tímann. „Það er
nóg að gera við jarðarfarirnar
og síðan eru það afmælisveisl-
ur og aðrar stórhátíðir,“ segir
hann. - fb
Fjórða plata Óskars
ÓSKAR PÉTURSSON
Álftagerðisbróðirinn
hefur sent frá sér
sína fjórðu sóló-
plötu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
EINSTÖK LEIKMYND Börkur hefur hannað þriggja
hæða hús en gólfið er vírnet sem leikararnir
ganga á. Draumur ljósamannsins, segir Börkur,
en hálfgerð martröð fyrir lofthrædda leikara.
LIAM
GALLAGHER
ENDURVAKIN Harðkjarnahljómsveitin
Klink hefur verið endurvakin og heldur
tónleika á Dillon í kvöld.