Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 10.10.2009, Blaðsíða 86
58 10. október 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Hinn tvítugi Gylfi Þór Sigurðsson hefur brotið sér leið inn í byrjunarlið enska b-deildarfélagsins Reading á yfirstandandi keppnistímabili og var á dögunum valinn leikmaður septembermánaðar hjá Woking- ham Times. Gylfi Þór var í byrjunarliðinu í fjórum af fimm leikjum Reading í september og þótti standa sig vel; hann skoraði til að mynda glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu gegn Peterborough. Gylfi Þór er eðlilega ánægður með að fá að spila en vonast jafn- framt til þess að Reading geti farið að klifra upp stigatöfluna þar sem félagið er í 21. sæti deildarinnar eftir ellefu leiki. „Ég vissi ekki einu sinni að það væri eitthvert val á leikmanni mánaðarins en það er alltaf gaman að fá verðlaun. Þetta er búið að ganga vel hjá mér persónu- lega en eins og stigataflan gefur til kynna gengur liðinu ekki allt of vel. Það stendur vonandi til bóta því við erum að spila mun betur núna en í upphafi tíma- bilsins. Ívar [Ingimarsson] er líka kominn aftur núna eftir meiðsli og hann er gríðarlega mikilvægur liðinu, líkt og Brynjar Björn [Gunnarsson], því Reading er að byggja upp nýtt lið og þeir eru báðir með mikla leikreynslu,“ segir Gylfi Þór, sem dvaldi í láni hjá Shrewsbury og Crewe í síðustu leiktíð og kveðst hafa lært mikið af reynslu sinni þar. „Ég fékk náttúrlega að spila reglulega þegar ég var hjá Shrewsbury og Crewe á láni og ég lærði sérstaklega mikið af tíma mínum með Guðjóni [Þórðarsyni, þáverandi stjóra Crewe] því hann hjálpaði mér mikið,“ segir Gylfi Þór. Athygli vekur að hann hefur ekkert spilað fyrir U-21 árs landsliðið síðan Eyjólfur Sverrisson tók við stjórn liðsins síðasta sumar en Gylfi Þór kveðst þó gefa kost á sér í liðið. „Það er nú ekki rétt sem kemur fram í einhverjum viðtölum við Eyjólf að ég gefi ekki kost á mér. Ég gef áfram kost á mér og er stoltur að spila fyrir Ísland en ég baðst reyndar undan því að spila vináttulandsleik gegn Danmörku í sumar. Ég var bara búinn að spila stíft með Crewe og var þreyttur og bað Eyjólf um frí en hann vildi það ekki og hefur ekki valið mig síðan. Ég veit ekkert hvort hann hafi misskilið mig eða hvað en vonandi leysist þetta mál því ég vil spila fyrir liðið,“ segir Gylfi Þór að lokum. GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON: VALINN LEIKMAÐUR MÁNAÐARINS HJÁ READING EN ER EKKI Í U-21 ÁRS LANDSLIÐI ÍSLANDS Gef kost á mér og er stoltur að spila fyrir Ísland FÓTBOLTI Í dag fara fram fjölmarg- ir leikir í undankeppni HM sem fer fram í Suður-Afríku næsta sumar. Ellefu þjóðir hafa þegar tryggt sér þátttökurétt í úrslitakeppninni en fjórtán þjóðir til viðbótar eiga nú möguleika á að bætast í þann hóp. Þónokkrar stórþjóðir eru þó ekki í þeim hópi og eiga því á hættu að komast alls ekki í úrslitakeppnina. Meðal þeirra má nefna Frakkland, Portúgal og Argentínu. Frakkar og Portúgalar eiga aðeins raunhæfa möguleika á því að tryggja sér sæti í umspili en Argentína gæti enn sloppið við það. Diego Maradona og hans læri- sveinar í argentínska landsliðinu mæta Perú í kvöld og þurfa nauð- synlega á sigri að halda. En jafn- vel þótt Argentína vinni Perú í dag þarf liðið helst einnig á sigri gegn Úrúgvæ að halda á miðvikudaginn kemur. Frakkar hafa einnig verið í miklum vandræðum í sínum riðli í undan keppninni en ættu að eiga sigurinn vísan gegn Færeyingum. Margir óttast að heimsmeistara- keppnin verði ekki söm ef menn eins og Argentínumaðurinn Lion- el Messi og Portúgalinn Cristiano Ronaldo verða ekki með í Suður- Afríku í sumar. Sjálfur var Ronaldo tæpur fyrir leik Portúgals gegn Ungverjaland í kvöld en hann segist vera klár í slaginn. Hann hefur ekki skorað í landsleik með Portúgal síðan í úrslitakeppni EM árið 2008. „Ég hef engar áhyggjur af því. Ég vil bara að Portúgal vinni leik- inn og mér er sama hver skorar,“ sagði hann. „Ég er að spara mig fyrir HM.“ Danir leika í sama riðli og Portúgalar og geta tryggt sér efsta sæti riðilsins með sigri á Svíum í dag. eirikur@frettabladid.is HM-sæti býðst 14 þjóðum Fjórtán þjóðir geta í dag tryggt sér sæti í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu þegar fjölmargir leikir fara fram í undankeppnum víða um heim. Augu margra beinast fyrst og fremst að leikjum í Evrópu og Suður-Ameríku. KÁTUR Á ÆFINGU Cristiano Ronaldo bregður á leik á æfingu portúgalska landsliðsins í gær. NORIDC PHOTOS/AFP GETA KOMIST Á HM Í DAG Keppt er í fjórum heimsálfum í dag. Evrópa: Danmörk, Sviss, Slóvakía, Þýskaland, Serbía og Ítalía. Afríka: Kamerún, Túnis og Alsír. Norður- og Mið-Ameríka: Mexíkó, Bandaríkin og Hondúras. Suður-Ameríka: Chile og Ekvador. FÓTBOLTI Ísland vann í gærkvöldi 8-0 stórsigur á San Marínó í und- ankeppni EM 2011 hjá landsliðum skipuðum leikmönnum 21 árs og yngri. Eins og gefur að skilja voru yfirburðir Íslands miklir í leikn- um. Staðan í hálfleik var 4-0. Jóhann Berg Guðmundsson skoraði þrjú mörk íslenska liðsins og Rúrik Gíslason tvö, þar af eitt úr víti. Hólmar Örn Eyjólfsson, Almarr Ormarsson og Kristinn Steindórsson skoruðu eitt mark hver. Ísland er nú í öðru sæti síns riðils með sex stig eftir tvo leiki. Tékkland er í efsta sæti með fullt hús stiga eftir fjóra leiki. - esá Stórsigur hjá U21-landsliðinu: Jóhann Berg með þrennu > Helena tekur við Selfossi Helena Ólafsdóttir var í gær ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 1. deild kvenna. Hún skrifaði undir tveggja ára samning. „Það er mikill metnaður fyrir fótboltanum hér á Selfossi og það hafði mikil áhrif á mína ákvörðun. Þetta var líka hluti af fótboltanum sem ég átti eftir að prófa enda hef ég hingað til þjálfað Val, KR og landsliðið,“ sagði Helena við Fréttablaðið. „Ég lít þó ekki á þetta sem skref niður á við. Mér fannst þetta spennandi tækifæri og það er gaman að geta gefið eitthvað af sér hér. Ég tel mig hafa mikið fram að færa.“ JÓHANN BERG Horfir á eftir boltanum í markið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.