Fréttablaðið - 10.10.2009, Side 94
66 10. október 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. elds, 6. kringum, 8.
skammstöfun, 9. viljugur, 11. drykkur,
12. skipastóll, 14. einkennis, 16.
fyrirtæki, 17. áþekk, 18. námstímabil,
20. frú, 21. vangi.
LÓÐRÉTT 1. sælgæti, 3. tímaeining,
4. nennuleysi, 5. atvikast, 7. dýr, 10.
soðningur, 13. mál, 15. listi, 16. sam-
ræði, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. báls, 6. um, 8. rek, 9. fús,
11. te, 12. floti, 14. aðals, 16. ms, 17.
lík, 18. önn, 20. fr, 21. kinn.
LÓÐRÉTT: 1. buff, 3. ár, 4. letilíf, 5.
ske, 7. múlasni, 10. soð, 13. tal, 15.
skrá, 16. mök, 19. nn.
„Gleraugun eru póst-módernísk tilvísun í
afa,“ segir rapparinn, grínistinn og lista-
háskólaneminn Halldór Halldórsson, best
þekktur sem Dóri DNA.
Dóri hefur vakið athygli fyrir reffilega
framkomu undanfarið og vilja einhverjir
þakka það nýjum gleraugum á nefi rappar-
ans. Gleraugun er mjög lík þeim sem Nóbel-
skáldið Halldór Laxness, afi Dóra, bar á efri
árum sínum og það er engin tilviljun.
„Erum við ekki alltaf undir áhrifum?
Þetta er samt bara eitthvað pís of sjitt sem
ég fann í einhverri draslverslun. Þau eru
samt svipuð og afi var með,“ segir Dóri um
gleraugun sem eru meira fyrir stílinn en
notagildið, enda ekki með sjóngleri. Fyr-
irmyndin er geymd á heimili Nóbelskálds-
ins að Gljúfrasteini, en Dóri leggur ekki í
að setja þau upp. „Málið er að hann sá ekki
rassgat, gleraugun hans voru svo þykk að
það er nánast eins og að vera með sjónauka
á sér.“
Dóri er þekktur kjaftaskur og segir að
alla ævi hafi hann glímt við að vera ekki tek-
inn alvarlega, en nú sé það úr sögunni. „Fólk
hlustar núna,“ segir hann og játar að
gleraugun skemmi ekki fyrir skapandi
skrifum, en Dóri stundar nám í fræðum
og framkvæmd í LHÍ. „Gleraugun setja
mig í ákveðnar stellingar. Svo hjálpa
þau líka við að setja í kellingar.
Eins og sést á myndinni þá er
ég sláandi myndarlegur með
þau.“ - afb
Póst-módernísk tilvísun í afa
EINS OG AFI Dóri segist ekki eiga í vandræð-
um með að fá athygli frá kvenþjóðinni með
gleraugun á nefinu.
FYRIRMYNDIN Það er erfitt
að skera úr um hvor var
reffilegri með gleraugun,
Halldór eldri eða Halldór
yngri.
„Þeir eru að undirbúa samning
fyrir mig sem ég er væntanlega að
fara að skrifa undir,“ segir tónlist-
armaðurinn Berndsen.
Danska útgáfufyrirtækið Good
Tape Records hefur mikinn áhuga
á Berndsen eftir að hafa séð vel
heppnaða tónleika hans á hátíð-
inni Réttum á dögunum. Hug-
myndin er að koma myndbandi
hans við lagið Supertime í danska
sjónvarpið og einnig að nota lagið í
sjónvarpsþáttum. Dreifing á vænt-
anlegri plötu hans er einnig fyrir-
huguð í Skandinavíu og tónleikar
sömuleiðis.
„Það væri helvíti gott,“ segir
hann um mögulegan samning við
Danina. „Þetta er eiginlega búið að
vera hálfskrítið hvernig allt er búið
að þróast. Það er eiginlega eins og
það sé búið að ákveða þetta fyrir
mig og ég er einfaldlega að taka
þátt í þessu.“
Berndsen segir að tónleikarnir
á Réttum hafi gengið framar
vonum. „Það var rugl stemning
þar og fólk var syngjandi með lög-
unum mínum,“ segir hann. „Ég var
dálítið stressaður því þetta voru
fyrstu tónleikarnir mínir en það
voru bara allir búnir að sjá mynd-
bandið mitt sem voru þarna.“
Auk Supertime hefur Berndsen
gert myndband við lagið Lover in
the Dark. Einhver bið verður eftir
þriðja myndbandinu en hollenskur
náungi hefur þegar lýst yfir áhuga
á að taka það upp. - fb
Dönsk útgáfa vill Berndsen
BERNDSEN Samningur við danska fyrirtækið Good Tape Records er í bígerð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Anna Sigríður Pálsdóttir
Aldur: Verð þrítug 20. október.
Starf: Hárstofueigandi.
Fjölskylda: Á dóttur sem heitir
Ísmey Myrra Bergmann Aronsdóttir.
Foreldrar: Sigríður Ólafsdóttir,
héraðsdómari í Reykjavík, og Páll
Sigurðsson, prófessor í lögfræði við
Háskóla Íslands.
Búseta: 101 Reykjavík.
Stjörnumerki: Vog.
Anna Sigríður hefur sent frá sér
fyrstu íslensku hárlínuna, Psychobilly.
„Jú, þetta er rétt, annars erum
við bara rétt að byrja og það er
varla tímabært að tala um þetta,”
segir stórleikarinn Gunnar Eyj-
ólfsson. Hann er nú farinn að
leggja drög að ritun ævisögu
sinnar ásamt sveitunga sínum,
Árna Bergmann. Upphaflega
stóð til að Illugi Jökulsson myndi
skrifa sögu Gunnars en hann féll
úr skaftinu vegna anna og Árni
hljóp í skarðið. Illugi sagðist í
samtali við Fréttablaðið hafa
mælt með Árna og kvaðst vera
ánægður með að hann hefði
fengist til verksins.
Gunnar tekur í sama streng,
er sáttur með skiptin þótt vissu-
lega sjái hann eftir Illuga. „Árni
er Keflvíkingur eins og ég og
Keflvíkingar eru Keflvíking-
ar, þeir eru öðruvísi en annað
fólk,“ segir Gunnar og bætir
því við, fólki til upplýsingar, að
Bergmann-fjölskyldan sé ein af
kjarnafjölskyldunum í Keflavík.
Svo sé Árni líka góður rithöfund-
ur. „Ég hef kynnst Árna mjög vel
hin síðari ár,“ skýtur Gunnar að
en Forlagið hefur þegar tryggt
sér útgáfuréttinn að bókinni.
„Jóhann Páll, JPV, er áhugasam-
ur maður sem fylgist vel með,“
útskýrir Gunnar.
Stórleikarinn verður hálf
kjaftstopp þegar hann er spurð-
ur hvort þetta sé rétti tíminn til
að skrifa ævisöguna. „Það hafa
GUNNAR EYJÓLFSSON: EFTIRSJÁ AÐ ILLUGA EN ÁRNI ER GÓÐUR
Árni Bergmann skrifar ævi-
sögu Gunnars Eyjólfssonar
ÆVISAGA Í
SMÍÐUM Gunnar
Eyjólfsson er ákaflega
leyndardómsfullur og dulur
yfir ævisagnaritun sinni
en Árni Bergmann hefur
tekið við keflinu af Illuga
Jökulssyni og saman fara
þeir Gunnar yfir snældur
sem Gunnar á með hug-
renningum sínum.
margir yngri menn en ég skrif-
að sína sögu, en við erum bara
að byrja og ég veit ekkert hve-
nær þessu lýkur. Er ekki ævin
öll þegar maður fer yfir móðuna
miklu?“ spyr Gunnar og leyfir
sér að efast um að einhverjir bíði
í ofvæni eftir því að þessi ævi-
saga hans komi út. Og verður að
hryggja þá sem það gera með því
að það verði í það minnsta ekki
fyrir þessi jól. „Góð bók má svo
sem koma út hvenær sem er en
auðvitað finnst mörgum gaman að
gefa út bók um jólin,“ segir Gunn-
ar, dulur og leyndardómsfullur um
þessa ævisögu sína.
Augljóst er að þessi ævisagnarit-
un hefur staðið til lengi því Gunn-
ar upplýsir að hann hafi tekið upp
hugrenningar sínar á snældur og
hann og Árni séu að fara í gegnum
þær þessa dagana. „Það er ýmis-
legt sem hefur á daga manns drif-
ið, maður er búinn að rifja ýmsa
hluti upp og þá er margt sem
kemur í ljós.“
freyrgigja@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Veðurofsinn í gær setti
strik í reikning fjölmargra
Íslendinga. Stórleikarinn
Ingvar E. Sigurðsson
þurfti að fresta för
sinni til Vestfjarða
þar sem hann ætlaði
að sýna einleikinn
Djúpið, eftir Jón Atla Sveins-
son. Tónleikum Mannakorna á
Skagaströnd var frestað og tökulið
kvikmyndarinnar Kóngavegur 7 eftir
Valdísi Óskarsdóttur tók enga
áhættu og flutti tökudaginn inn
í hús. Enda hefðu aðalleikararnir
sennilega tekist á loft.
Eins og fram kom í þessum dálki
í gær kom Haffi Haff heim frá
Argentínu í vikunni, en þar tók
hann þátt í sjónvarpsleiknum
Wipeout. Ingó Veðurguð
og Ívar Guðmunds voru í
sama hópi og deildu meira
að segja hótelherbergi í
Buenos Aires. Líkamlega
heilbrigðari menn en
Ívar eru vandfundnir
og hefur hann vafa-
laust gefið Ingó góð ráð varðandi
heilbrigðan lífsstíl fyrir svefninn
– þótt einhverjir telji reyndar að sá
yngri hafi ekki sett sér jafn strangar
útivistarreglur og sá eldri.
Áhugamenn um tísku og tónlist
geta farið að hlakka til marsmán-
aðar á næsta ári. Útlit er fyrir að
þá verði haldin úti á Granda ný og
vegleg hátíð þar sem tíska, hönnun
og tónlist verða í hávegum höfð.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins mun hugmyndin að þessu
hafa sprottið upp eftir Iceland
Fashion Week, en mikil óánægja
var með framkvæmd hennar meðal
íslenskra fatahönnuða. Meðal
þeirra sem skipuleggja
eru Eldar Ástþórsson
og Steinþór Helgi
Arnsteinsson, sem
skipulögðu Réttir
fyrir skemmstu, og
Steinunn Sigurðardóttir
fatahönnuður. - afb, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
30%
afsl.
5.480,-
3.836,-
Helgar-
tilboð