Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 6
6 31. október 2009 LAUGARDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Aldrei hafa fleiri
legið inni á Landspítala af völd-
um svínaflensu en í gær. Þá höfðu
átta nýir lagst inn en enginn verið
útskrifaður. Samtals voru 43 inni-
liggjandi, þar af ellefu á gjör-
gæslu. Yngsti gjörgæslusjúkling-
urinn var tveggja ára en sá elsti
rúmlega áttræður.
„Við þolum ástandið,“ segir
Björn Zöega, forstjóri Landspít-
ala, um stöðuna. Hann segir spítal-
ann enn starfræktan á virkjunar-
stigi viðbragðsáætlunar en langur
vegur sé frá að færa þurfi starf-
semina upp á neyðarstig, sem er
efsta stig áætlunarinnar.
„Hvað varðar gjörgæsludeild-
irnar þá rétt sleppur þetta enn þá
en við gætum þurft að stækka þær
um helgina,“ segir Björn. „Staðan
verður endurmetin næst á sunnu-
daginn.“
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru
þrír inflúensusjúklingar í gær,
enginn þeirra á gjörgæsludeild.
Langflest inflúensutilfelli hér-
lendis, undanfarna daga og vikur,
greinast hjá börnum á aldrinum 0
til 9 ára, að því er fram kemur í
tilkynningu frá sóttvarnalækni og
almannavarnadeild Ríkislögreglu-
stjóra. Þetta er marktæk breyting
frá því í júlí og ágúst þegar flestir
sem veiktust voru á aldrinum 15
til 30 ára.
Hvað varðar almenna bólusetn-
ingu við inflúensunni eru horfur á
að unnt verði að hefja hana fyrr en
gert var áður ráð fyrir, það er í síð-
ari hluta nóvember í stað desem-
ber. Ástæðan er sú að meira berst
af bóluefni til landsins næstu daga
og vikur en reiknað var með í upp-
haflegum áætlunum, samkvæmt
upplýsingum Haraldar Briem sótt-
varnalæknis. Um helgina koma
hingað 26 þúsund skammtar og
meira bóluefni síðar í vikunni.
Nú er búið að bólusetja yfir
20 þúsund af alls um 75 þúsund
manns sem miðað er við að séu
í skilgreindum forgangshópum
bólusetningar samkvæmt tilmæl-
um Alþjóðaheilbrigðisstofnunar-
innar, WHO. Neyðarstjórn hefur
verið skipuð í hverju sveitarfélagi
á höfuðborgarsvæðinu fyrir sig
vegna flensufaraldursins, undir
formennsku framkvæmdastjóra
viðkomandi sveitarfélags. Komi til
þess að neyðarstjórn verði virkjuð
starfar hún í samráði við aðgerða-
stjórn almannavarna á höfuðborg-
arsvæðinu. Sveitarfélögin vinna
nú öll eftir samræmdum viðbragðs-
áætlunum sem gerðar voru undir
umsjón Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins til að tryggja órofna
lykilþjónustu á meðan inflúensu-
faraldur gengur yfir.
jss@frettabladid.is
LANDSPÍTALI Spítalinn er nú starfræktur á virkjunarstigi viðbragðsáætlunar. Langur
vegur er frá að færa þurfi starfsemina upp á neyðarstig, sem er efsta stig áætlunar-
innar, að sögn Björns Zöega forstjóra.
Aldrei fleiri flensu-
sjúklingar á spítala
Rúmlega fjörutíu manns lágu inni á Landspítala í gær af völdum svína-
flensunnar. Þar af voru ellefu á gjörgæslu. Neyðarstjórn hefur verið skipuð í
hverju sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu fyrir sig vegna flensufaraldursins.
Mánudaginn 2. nóvember
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
SVÖRTULOFT 3.995.-
HARÐSKAFI fylgir með á meðan birgðir endast.
MIÐNÆTUROPNUN 31.OKT.
Áritaðar bækur og heitt kaffi.
LÖGREGLUMÁL Sterkur grun-
ur leikur á því að kveikt hafi
verið í húsinu Bergþórshvoli á
Dalvík. Tilkynnt var um eld-
inn um klukkan fimm í nótt og
lauk slökkvistarfi um níu leyt-
ið í morgun. Sigurður Jónsson
slökkviliðsstjóri á Dalvík segir
að svæðið verði vaktað fram
eftir degi enda leynist enn glæð-
ur í einangrun.
Ekkert rafmagn var á húsinu
og segir Sigurður allar líkur á
því að kveikt hafi verið í því en
það hefur staðið ónotað í eitt og
hálft ár. Húsið, sem er byggt á
fyrri hluta síðustu aldar er talið
ónýtt.
Eldur á Dalvík:
Hús brann á
Bergþórshvoli
Á ríkisstjórnin að hætta við
fyrirhugaða orku- og auðlinda-
skatta?
Já 61,6%
Nei 38,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú farið á McDonald´s
í vikunni í tilefni af brotthvarfi
staðanna af landinu?
Segðu þína skoðun á vísir.is
KJARAMÁL Björn Zöega, forstjóri
Landspítala, hvetur þá starfsmenn
spítalans sem hafa náð þeim aldri
að eiga lífeyrisréttindi sem hægt
er að taka út, að velta fyrir sér að
minnka starfshlutfall og taka út
lífeyri á móti.
„Þannig gætum við mildað áhrif
kreppunnar á störf yngra fólks og
hjálpað okkur að verja sem flest
störf,“ segir Björn í nýjum pistli
sínum sem birtur er á heimasíðu
spítalans. Hann segir vinnuna við
fjárhagsáætlun næsta árs halda
áfram. Ekki verði hægt að kynna
útfærslur á öllum breytingum
sem verið sé að vinna að nú fyrr
en upp úr miðjum næsta mánuði.
„Stefna okkar og framtíðarsýn
er áfram sú sama; að vera eitt
besta háskólasjúkrahús í Norður-
Evrópu og vera áfram leiðandi í
rannsóknum,“ segir forstjórinn.
Hann segir leiðarljósið vera að
vera innan fjárlaga, öryggi sjúk-
linga og sjúklingamiðuð starf-
semi.
Loks þakkar forstjórinn starfs-
mönnum frábæra frammistöðu
undir því mikla álagi sem dynur á
spítalanum vegna svínaflensunn-
ar og segir brýnt að þeir fylgist
vel með tilkynningum um stöð-
una.
„En brýnast er þó að við höld-
um áfram að standa saman og
efla alla samvinnu milli deilda og
sviða í glímunni við faraldurinn,“
segir Björn. - jss
Björn Zöega, forstjóri Landspítala, vill verja sem flest störf:
Eldra fólk minnki starfshlutfall
DÓMSMÁL Aðalmeðferð fór fram í gær í máli Gunn-
ars Viðars Árnasonar, sem ákærður er fyrir inn-
flutning á um sex kílóum af amfetamíni hingað til
lands.
Gunnar neitar alfarið sök í málinu. Við aðalmeð-
ferðina í gær dró saksóknari fram ýmis sönnunar-
gögn sem áttu að sýna fram á sekt Gunnars í mál-
inu. Meðal sönnunargagnanna eru upptökur af
símtölum Gunnars við Hollendinga sem taldir eru
hafa sent fíkniefnin hingað til lands. Amfetamín-
ið barst hingað í hraðsendingu, sem Gunnar Viðar
sótti.
Hollendingar þessir komu við sögu í risastóru
fíkniefnamáli sem upp kom í Ekvador í vor, þegar
lagt var hald á tugi tonna af kókaíni blönduðu við
melassa, eins konar dökkt síróp, í 600 brúsum.
Gunnar Viðar neitar því hins vegar staðfastlega
að vera sá sem heyrist í á upptökunum. Saksóknari
hefur lagt fram gögn sem sýna eiga fram á annað.
Þrír menn sátu upphaflega í gæsluvarðhaldi
grunaðir um tengsl við málið; Gunnar, Ársæll
Snorrason og Sigurður Ólason.
Einungis Gunnar var ákærður. Ríkissaksóknari
hefur enn til meðferðar önnur mál þeirra Ársæls
og Sigurðar, og ekki er útilokað að þau leiði til
ákæru. - sh
Gunnar Viðar Árnason hafnar því að símtöl sanni fíkniefnasmygl hans:
Segist ekki tala á upptökum
BJÖRN ZÖEGA
Forstjóri Land-
spítala þakkar
starfsmönn-
um frábæra
frammistöðu
undir því mikla
álagi sem dynur
á spítalanum.
KJÖRKASSINN