Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 20

Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 20
20 31. október 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Þorvaldur Gylfason skrifar Greinina, sem hér fer á eftir, skrifaði ég 1. maí 1995 til birtingar í Morgunblaðinu í tilefni af myndun nýrrar ríkis- stjórnar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Tveir yfir- lesarar réðu mér frá að birta grein- ina. Ég fór að ráðum þeirra. Þegar greinin var skrifuð, hafði ríkt stöðnun í efnahagslífinu frá 1987, en samningurinn um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) hafði verið samþykktur árið áður, 1994, með 33 atkvæðum af 63 á Alþingi. Í ljósi þess, sem síðan hefur gerzt, þykir mér rétt að birta greinina nú óbreytta og leggja hana í dóm lesandans fjór- tán og hálfu ári eftir að hún var skrifuð. Andrew Lloyd Webber, höfund- ur Evítu, Cats og margra annarra vinsælla söngleikja, er sagður hafa komið til kunningja síns í öngum sínum og spurt hann: „Hvers vegna fellur öllum strax svona illa við mig?“ Kunninginn svaraði að bragði: „Það sparar tíma.“ Nú er ný ríkisstjórn setzt að völdum á Íslandi. Hana skipa tveir stærstu stjórnmálaflokkar lands- ins. Þeir hafa setið að völdum ýmist á víxl eða báðir í einu síðastliðin 65 ár samfleytt, ef utanþingsstjórnin 1942-44 og tvær minnihlutastjórnir til bráðabirgða eru undan skildar. Þeir bera því höfuðábyrgð á þeirri efnahagshnignun, sem hefur átt sér stað hér heima undangengin ár. Þeir bera ábyrgð á því, að Ísland er nú komið í hóp fátækustu landa Evrópu samkvæmt alþjóðlegum hagskýrslum um kaupmátt þjóð- artekna á vinnustund og stefnir neðar. Þetta er þeirra verk. Þeir bera einnig ábyrgð á því, að ofsóknin á Íslandsmið heldur áfram, þótt hættumerkin hrannist upp. Það er þeirra verk, að sjávar- útvegurinn í heild – „undirstöðu- atvinnuvegurinn“, sem þeir þreyt- ast aldrei á að nefna svo – er enn sem endranær á hvínandi kúpunni og ófær um að standa skil á skuld- um sínum við banka og sjóði, enda hafa 50 milljarðar króna farið for- görðum í bankakerfinu síðan 1987. Rögnvaldur Hannesson, prófess- or í Viðskiptaháskólanum í Berg- en, kemst að þeirri niðurstöðu í ágætri grein í síðasta hefti Hag- mála, að „[þ]ví miður bendi[r] flest til þess, að lífskjör á Íslandi fari smám saman versnandi og að Íslendingar dragist verulega aftur úr nágrannaþjóðunum efnahags- lega.“ (bls. 38) Þessir sömu stjórnmálaflokkar hafa líka ráðið landbúnaðarstefn- unni og dæmt hundruð bænda til hungurbúskapar, um leið og heimil- in í landinu eru enn sem fyrr að sli- gast undan of miklum matarkostn- aði. Þeir bera ábyrgð á löngu úreltu vinnumarkaðsskipulagi, sem ber meiri keim af sovézkri miðstjórn en markaðsbúskap og veldur því, að skólar landsins hafa t.a.m. stað- ið lokaðir langtímum saman með reglulegu millibili, svo að fjöldi æskufólks hefur orðið fyrir mikl- um skaða. Þeir bera ábyrgð á lág- launabaslinu, sem mikill og vax- andi fjöldi fólks verður að una við, um leið og stjórnmálastéttin, nóm- enklatúran, heldur áfram að hlaða forréttindum undir sjálfa sig. Meira af hinu sama Forustumenn stjórnarflokkanna sýna engin merki þess enn, að þeir beri nokkurt skynbragð á þann skaða, sem flokkar þeirra eru búnir að valda. Þeir virðast þvert á móti staðráðnir í að bjóða þjóð- inni meira af hinu sama, svo sem stefnuyfirlýsing stjórnarinnar ber með sér. Þeir ætla að ríghalda í rangláta kjördæmaskipan og í rík- isbanka- og sjóðakerfi, sem er bæði óhagkvæmt og spillt. (Þeir segj- ast að vísu ætla að „breyta rekstr- arformi ríkisviðskiptabanka og fjárfestingarlánasjóða“, en þeir hafa engin áform um einkavæð- ingu þeirra, sem er aðalatriðið; á síðasta kjörtímabili gerðist ekk- ert í þessum málum hér heima, á meðan bankar í Austur-Evrópu voru einkavæddir í tugatali, þar á meðal allir bankar Tékklands.) Þeir ætla einnig að halda Íslandi utan Evrópusambandsins. Allt þetta gera þeir auðvitað í eiginhagsmunaskyni. Þeir vita það vel, að réttlát kjördæmaskipan, hagkvæmt og heilbrigt bankakerfi og aðild Íslands að Evrópusam- bandinu myndu svipta þá völdum (og forréttindum), enda er umbót- anna þörf einmitt til þess að dreifa valdi og vernda almenning þannig gagnvart yfirsjónum og afglöp- um innlendra stjórnvalda. Þessi ríkisstjórn getur því miður ekki leitt til annars en áframhaldandi hnignunar efnahagslífsins smátt og smátt og ófarnaðar í þjóðfélag- inu í heild. Því segi ég við lesendur Morgun- blaðsins: Sparið þann tíma, sem í það færi að gefa þessari ríkisstjórn tækifæri til að sýna, hvað í henni býr. Það býr ekkert í henni. Það er auðséð strax í upphafi. Það er búið að reyna þessa flokka til þrautar. Þeir hafa brugðizt. Hættuleg efnahagsstefna Vandinn er sá, að báðir stjórnar- flokkarnir fylgja efnahagsstefnu, sem er röng og hættuleg í veiga- miklum atriðum og hefur reynzt þjóðinni dýrkeypt marga áratugi aftur í tímann. Þeir tóku við gjald- eyriseign, sem var jafnvirði 80- 90% af þjóðarframleiðslunni við lýðveldisstofnunina 1944, eins og Jóhannes Nordal, fyrrum seðla- bankastjóri, hefur rifjað upp í fróð- legri grein í Fjármálatíðindum, en þessi eign hefur smám saman snú- izt upp í erlenda skuld, sem nemur nú 60-70% af þjóðarframleiðsl- unni. Þeir ætla samt bersýnilega að halda áfram sömu braut. Þeir ætla að halda áfram að hlaða undir sérhagsmunahópana og grafa um leið undan afkomu fólksins í land- inu. Þeir ætla að reyna að koma sér undan því að gera almenningi grein fyrir fjárreiðum sínum, þótt þeim hafi af ærnu tilefni borizt opinber áskorun um það frá hópi háskólakennara fyrir hálfu öðru ári. Þeir ætla að halda áfram að troða óhæfum mönnum úr eigin röðum í ýmis mikilvægustu emb- ætti landsins. Þess vegna meðal annars mega þeir ekki til þess hugsa að missa bankakerfið undan yfirráðum sínum. Þeim gæti hæg- lega átt eftir að takast að leggja efnahagslíf landsins í rúst. Nú leika menn sér auðvitað ekki að því að leggja efnahagslíf full- valda ríkis í rúst. Forsprakkarn- ir þræta fyrir ófremdarástand- ið í lengstu lög, enda líður þeim vel í ljóma forréttindanna, sem þeir hafa skammtað sjálfum sér til að firra sig fátæktinni, sem þeir leggja á aðra með auknum þunga. Einmitt þannig fóru aust- ur-evrópskir kommúnistar að, en þeir höfðu þó manndóm til að við- urkenna mistök sín á endanum og biðjast afsökunar. Gerbreytum landslaginu Málsvörn margra þeirra, sem hafa veitt stjórnarflokkunum brautar- gengi fyrr og nú, hefur jafnan verið sú, að betra lið sé ekki í boði. Það er því miður mikið til í því. Við því þarf að bregðast. Annars byrj- ar unga fólkið að flykkjast burt úr landinu í hrönnum eins og gerðist í Færeyjum. Þessa sjást nú þegar ýmis teikn, en þó ekki enn í brott- flutningstölum Hagstofunnar, því að margir halda gjarnan lögheim- ili sínu á Íslandi enn um sinn, þótt þeir flytji búferlum til útlanda. Ef þessi þróun heldur áfram, geta margir Íslendingar á miðjum aldri átt einmanalega elli í vændum. Hví skyldi t.d. háskólakennari kjósa að eyða starfsævinni hér og láta síðan bjóða sér 70.000 kr. á mánuði í eft- irlaunaumslagið, þegar starfsbræð- ur hans í nálægum löndum eiga þrisvar sinnum hærri eftirlaun í vændum fyrir sama ævistarf? Svipuð dæmi er hægt að nefna um flestar aðrar starfsstéttir. Það hljóta allir réttsýnir menn að sjá, að við þetta er ekki búandi. Forustumenn stjórnmálaflokk- anna skulu ekki gleyma því, að veður geta skipazt æði skjótt í lofti á starfsvettvangi þeirra. Þeir skulu ekki gleyma því, að stærsti stjórn- málaflokkur Kanada var nánast þurrkaður út af þingi í einni svip- an fyrir fáeinum árum. Þeir skulu ekki heldur horfa fram hjá því, að stærsti stjórnmálaflokkur Ítalíu, sem hafði stjórnað landinu sam- fleytt í hálfa öld ásamt öðrum, var líka þurrkaður út í einum þing- kosningum. Og úr því að hægt var að ryðja stærstu stjórnmálaflokk- unum úr vegi í einu vetfangi úti í heimi, þá getur það varla verið mikið verk fyrir vaska menn að gerbreyta landslaginu í stjórn- málalífinu hér heima, þegar hætta steðjar að. Ég spyr: Ætlum við að láta þá halda áfram að skipuleggja fátækt á Íslandi og flæma börnin okkar burt? Er þetta ekki landið okkar líka? Höfundur er prófessor. Þetta er landið okkar líka YFIR ESJUNA „Ætlum við að láta þá halda áfram að skipuleggja fátækt á Íslandi og flæma börnin okkar burt?“ spyr greinarhöfundur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Forsprakkarnir þræta fyrir ófremdarástandið í lengstu lög, enda líður þeim vel í ljóma forréttindanna, sem þeir hafa skammtað sjálfum sér til að firra sig fátæktinni, sem þeir leggja á aðra með auknum þunga. ÞORVALDUR GYLFASON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.