Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 25
LAUGARDAGUR 31. október 2009 25
„Ég varð mjög glaður þegar við fengum Flosa til að taka að sér hlutverk í
Laxdælu Lárusar. Það er nú yfirleitt auðveldara að segja sögur af einhverju
veseni og drama. En ég get ekki sagt slíka sögu af Flosa.
Samstarfið var svo meinljúft að það hálfa væri nóg. Flosi
var afskaplega blíður og það var svo mikil hlýja í kringum
hann. Í myndinni leikur hann bónda sem er heldur
leiðinlegur við Stefán Karl, sem leikur aðalhlutverk-
ið. Hann var fagmaður fram í fingurgóma og hafði
skemmtilegar hugmyndir, bæði varðandi senuna sjálfa
og búninginn sinn. Honum var dröslað þarna vestur, þar
sem við vorum að smala og taka upp í fjárhúsun-
um. Það var heilmikið húllumhæ í kringum þetta
og Flosi var ótrúlega fyndinn. Það voru algjör
forréttindi að fá að vinna með þessum manni,
sem hafði verið manni svona mikill innblástur í
æsku. Hann var eitt af ídolunum mínum.“
Ólafur Jóhannesson leikstjóri
„Flosi var fyrir mér, sem grínisti,
svolítið eins og Hörður Torfa var fyrir
hommunum á níunda áratugnum.
Hann þorði að vera grínisti – að
vera fyndinn þótt hann þyrfti að
taka ýmsum afleiðingum af því,
svo sem því að vera ekki tekinn
alvarlega sem leikari. Að vera grínisti
er nefnilega svolítið eins og að vera
hommi. Maður er öðruvísi en annað
fólk. Enda komast fæstir grínistar
í leiklistarskóla, því þeir eru ekki
alveg álitnir leikarar. Mín kynslóð
var brautryðjandi í því að búa til
starfsheitið grínisti. Menn eins og
ég, Þorsteinn Guðmundsson
og Sigurjón Kjartansson
erum af fyrstu kynslóð
viðurkenndra grínista
á Íslandi. En fyrir mér
var Flosi raunverulega
fyrsti íslenski grín-
istinn.“
Jón Gnarr
leikari
„Flosi hafði sérstaka skemmtun af
því að segja auðtrúa, viðkvæmum
leikurum sögur, einkum ef þeir
voru kvenkyns. Einhverju sinni
gerðist það að ljón í Sædýra-
safninu í Hafnarfirði beit í hönd
á konu. Þetta fór fyrir brjóstið
á viðkvæmri, auðtrúa leikkonu
og Flosi barnaði söguna strax í
hennar eyru. Í meðförum Flosa
hafði konan í Sædýrasafninu misst
höndina og það sem meira var;
að dáður og virtur tónlistarstjóri
leikhússins þá, Agnes Löve, sem
og er góður píanisti, hefði orðið
fyrir þessu óláni (vona að Agnes
fyrirgefi mér þessa endursögn).
Nú datt andlitið af auðtrúa
leikkonunni, auk þess sem hún
var í sjokki; „guð minn góður og
hún sem er píanóleikari!“ sagði
þá aumingja leikkonan, en þá
var Flosi fljótur til svars: „Já, þetta
er skelfilegt, en það er huggun
harmi gegn að þeir hjá
Sinfóníuhljómsveitinni
hafa brugðist skjótt
við og boðið einhent-
um píanistanum
að leika með
hljómsveitinni
á þríhorn.“ Féll
þá leikkonan í
öngvit.“
Egill Ólafsson
tónlistarmaður
VIÐKVÆMAR OG
AUÐTRÚA LEIKKONUR
Á ÞJÓÐLEIKHÚSFJÖLUNUM Flosi fór létt með að bregða sér í allra kvikinda líki. Hér
leikur hann ungbarn í kerru í leikritinu Óvitum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Með
honum á myndinni er Örn Árnason og ung leikkona í gervi fullorðinnar konu.
➜ HLÝR OG BLÍÐUR FAGMAÐUR
FYRSTI GRÍNISTINN
Flosi fæddist í Reykjavík og ólst
upp í Kvosinni. Hann útskrifaðist úr
Menntaskólanum á Akureyri árið
1953, lauk prófi í leiklist frá Leiklist-
arskóla Þjóðleikhússins árið 1958 og
lærði leikstjórn og þáttagerð hjá BBC
í London á árunum 1960 til 1962.
Flosi starfaði jöfnum höndum sem
leikari, leikstjóri og rithöfundur allt sitt
líf. Hann stofnaði leikhúsið Nýtt leik-
hús í Framsóknarhúsinu í Reykjavík
árið 1959 og var fastráðinn hjá Þjóð-
leikhúsinu í nær fjörutíu ár. Eftirlifandi
eiginkona Flosa er Lilja Margeirsdóttir
en þau voru gift í fimmtíu ár. Þau eiga
saman soninn Ólaf og barnabörnin
Önnu og Flosa. Dóttir Flosa af fyrra
sambandi heitir Anna og á hún fjögur
börn. Flosi verður jarðsunginn frá
Reykholtskirkju í dag klukkan 14.
FLOSI ÓLAFSSON
27.10.1929-24.10.2009
Vegaaðstoð Sjóvá er í boði á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi, Akureyri, Egilsstöðum,
í Reykjanesbæ, Borgarnesi og Hveragerði. Nánar á sjova.is.
VEGAAÐSTOÐ SJÓVÁ
Þjónusta fyrir viðskiptavini í Stofni þeim að kostnaðarlausu
Bensínlaus?
Straumlaus?
Sprungið dekk?
Tjónaskýrsla?
„Vegaaðstoð Sjóvá?
Ég er alveg rafmagnslaus.
Bobbinn fékk sér Candyfloss.”
CANDYFLOSS
Í BOÐI SJÓVÁ
Í dag, laugardag, verða starfsmenn Sjóvá í
verslunarmiðstöðinni Kringlunni og munu gefa
gestum og gangandi candyfloss.
Þar verður einnig hægt að taka þátt í skemmti-
legum leik með veglegum verðlaunum.
Komdu við í Sjóvá-básnum á 1. hæð í Kringlunni
í dag og fáðu þér candyfloss!