Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 32
32 31. október 2009 LAUGARDAGUR Sögur um blóðsugur og Drakúla greifa hafa getið af sér ótal kvik- myndir. Þar má nefna Hammer Horror-myndir sjötta áratugarins með Christopher Lee sem Drakúla. Árið 1972 kom svo svört útgáfa af Drakúla í kvikmyndinni Blacula. Árið 1979 kom kvikmyndin Salem‘s Lot og sama ár Nosferatu þýska leikstjórans Werners Herzog. Kvik- myndin Blade og sjónvarpsserían Buffy The Vampire Slayer fjalla um vampíruveiðara en blóðsugur eru hetjurnar í kvikmyndum eins og The Hunger (1983) og Interview with the Vampire (1994) sem byggði á The Vampire Chronicles eftir Anne Rice. Svíar sendu frá sér vampírumynd- ina Låt den rätte komma in árið 2008 en hún fékk afbragðsgóða dóma. Frægasta bókmenntaverk um vampírur er Drakúla eftir Bram Stoker, en hún var byggð á sögu- sögnum um hinn skelfilega Prins Vlad hinn þriðja í Rúmeníu sem var uppi á fimmtándu öld. Prins- inn var þekktur sem „Vlad the Impaler“ vegna þess að hann stjaksetti fórnarlömb sín og pynti þau á hryllilegan hátt. Vamp- írusögur voru mjög algengar á þessu landsvæði og Stoker kaus að byggja sögu sína um Drakúla greifa í Transylvaníu á prinsin- um. Í verkinu fremur ástkona Vlads sjálfsmorð og harmur hans leiðir til þess að hann ákallar hin myrku öfl um að öðlast eilíft líf handa dauðans. Drakúla getur því ekki dáið og leitar að brúður sinni öldum saman sem leiðir svo til þeirrar æsispennandi atburða- rásar í eltingarleik vampíruveið- arans Van Helsing við skrímslið. Mikil rómantík er einnig í verk- inu um ást sem aldrei gleymist, hina eilífu ást handan dauðans. Bók Stokers um Drakúla hefur veitt enda- lausan innblástur og hefur meðal annars verið kvikmynduð árið 1931 með Bela Lugosi í aðalhlutverki, og árið 1992 af Francis Ford Coppola. VAMPÍRAN Verkið „The Vampire“ eftir Sir Philip Burne-Jones sem málað var á hátindi gotneskrar rómantíkur á 19. öld. DRAKÚLA GREIFI Bela Lugosi í hlutverki sínu árið 1931 EILÍF ÁST Vampírurnar Lestat og Louis úr Interview with a Vampire eftir Anne Rice. Blóðug rómantík Sannkallað vampírufár hefur gripið um sig í Hollywood í kjölfar „Twilight“ og „True Blood“ og það teygir anga sína víða inn í dægurmenninguna. En hvaða fyrirbæri eru eiginlega þessar rómantísku en hryllilegu blóðsugur? Anna Margrét Björnsson fór á stúfana í tilefni hrekkjavökunnar. Kynlíf, eiturlyf og hómóerótík Árið 1819 birti rithöfundurinn John Polidori stutta sögu sem nefndist The Vampyre. Sagan var byggð á aðdáun hans á Lord Byron, skáldinu sem síðar öðlað- ist sess sem táknmynd rómantíska tímabilsins og þeirri ákveðnu kyn- lífsbyltingu sem þá átti sér stað. Enginn veit hvort raunverulegt samband átti sér stað milli Polid- oris og Byrons þar sem dagbæk- ur þeirra fóru á bálið en það er augljóst að mikill hómó-erótismi er til staðar í sögunni. The Vamp- yre er einnig fyrsta vampírusag- an þar sem vampíran er sýnd sem heillandi og rómantísk andhetja. Bækur bandaríska rithöfundarins Anne Rice um vampíruna Lestat sem urðu gífurlega vinsælar á níunda áratugnum eru einnig upp- fullar af ást og erótík milli karl- manna. Spekúlantar vilja meina að vampíruæðið sem á sér reglulega stað tengist ávallt einhvers konar kynlífsbyltingu eða krísu í heim- inum og nefna sem dæmi að Dra- kúla eftir Bram Stoker hafi verið skrifuð á miðju tímabili þar sem frjálsar ástir og notkun vímuefna eins og kókaíns og ópíums tröll- riðu ákveðnum stéttum. Á níunda áratugnum varð til dæmis ákveð- ið vampíruæði með bókum fyrr- nefndrar Anne Rice og kvik- myndum eins og The Hunger og The Lost Boys sem mætti tengja við útbreiðslu eyðni í heiminum – vampírur sem eru fallegar, töff og gáfaðar en dæmdar til eilífðar- nóns. Vampíruæðið sem nú ríkir með bókunum og kvikmyndunum Twilight, og sjónvarpsþáttunum True Blood er uppfullt af hómó- erótískum tilvísunum. Í Twilight heillast stúlkan Bella af vampír- unni Edward. Edward er dásam- lega fagur en virðist hræddur og fyllist jafnvel viðbjóði í návist hennar. Ekkert kynlíf á sér stað á milli þeirra og má draga þá álykt- un að sagan sé ákveðin fantasía stúlkna um að vera með samkyn- hneigðum mönnum í sambandi sem er kynferðislega hættulaust. Í sjónvarpsþáttunum True Blood er talað um að vampírur „komi út úr líkkistunni“ og í byrjunar- titlunum sést skiltið „God Hates Fangs“ (Guð hatar vígtennur) sem er væntanlega bein tilvísun í „God hates fags“ skilti í biblíubeltinu. Blaðamaðurinn Stephen Marche skrifaði í tímaritið Esquire nýlega að vampírur hefðu herjað á dæg- urmenninguna hreinlega vegna þess að ungar gagnkynhneigðar konur vilji fara í rúmið með sam- kynhneigðum karlmönnum. Hann segir að þorsti ungs fólks í vamp- írubókmenntir og kvikmyndir séu táknmynd kynlífsbylting- ar í Bandaríkjunum þar sem það óvenjulega er samþykkt, hvort sem það eru hjónabönd samkyn- hneigðra, transgender einstakl- inga eða „gotharar“ sem þrá það heitast af öllu að vera vampírur. Eins einkennilega og það má virðast þá hafa sögur og goðsagnir um verur sem nærast á blóði hinna lifandi verið til í flestöllum menn- ingarheimum jarðkringlunnar í mörg hundruð og jafnvel þúsundir ára. Á Indlandi eru sögur um „vetala“, eins konar djöfla sem taka sér bólfestu í líkama fólks. Indverska gyðjan Kali er sýnd í myndmáli með vígtennur og háls- festi búna til úr hauskúpum og hefur ávallt verið tengd við blóðdrykkju og mannfórn- ir. Í Egyptalandi til forna drakk ljónagyðj- an Sekhmet blóð. Persar áttu sér djöfla sem líkjast mikið vampírum seinni tíma og Babýl- óníumenn rituðu sögur um Lilitu sem seinn- ar varð að hinni hebresku Lilith, fyrstu konu Adams. Lilitu nærðist á blóði manna, kvenna og ungbarna. Rómverjar trúðu á vængjaðar verur sem nefndust Lamia og drukku blóð úr börnum og ungum karlmönnum að nætur- lagi. Einnig má benda á tengsl sögusagna um vampírur við kristnina, en þar er talað um að neyta blóðs Krists og lík- ama í táknrænni merkingu. Orðið vampíra eða „vampyr“ kemur svo úr miðaldasögum Austur-Evrópu þar sem ákveðin móðursýki og hræðsla myndaðist um blóðsugur sem áttu að herja á heilu þorpin. Hver er uppruni vampíra? Drakúla – frægasta vampíran Vampírukvikmyndir LILITH Hebresk vera sem drakk blóð ungbarna. NÍUNDI ÁRATUGURINN Catherine Den- euve í The Hunger. Flestum vampírusögum ber saman um eftirfarandi einkenni: ■ Vampírur þurfa blóð til að lifa. Án blóðs deyja þær, blóðið veitir þeim orku og eilíft líf. Vampírur nærast einungis á blóði. ■ Vampírur fara á kreik að næt- urlagi og hræðast sólarljósið. Í mörgum vampírusögum brenna vampírur upp til agna ef sólarljós skín á þær. ■ Vampírur drepa oftast fólk með því að bíta það á háls og tæma úr því blóðið. Vampíra getur hins vegar kosið að skapa aðra vampíru með því að tappa blóði af mann- eskju og láta hana svo drekka af sínu blóði. ■ Vampírur styrkjast með árunum og þær vampírur sem hafa lifað öldum saman eru voldugastar. ■ Vampírur eru oftast hávaxnar, grannvaxnar með sítt hár, ljós og undarleg augu og föla húð. ■ Vampírur geta breytt sér í dýra- líki, oftast leðurblökur, rottur, ketti, hrafna og úlfa. ■ Vampírur lifa ofan í gröfinni eða sofa í kistum sínum að degi til. ■ Vampírur hafa enga spegilmynd. ■ Vampírur hræðast oft krossa,kirkjur og Biblíur; slíkt er þó ekki algilt. ■ Vampírur geta einungis dáið ef þær fá viðarstjaka í gegnum hjart- að, eru brenndar eða afhöfðaðar. Í sumum sögum er hægt að skjóta þær með silfurkúlu í hjartað. ■ Vampírur eru oftast sýndar með vígtennur í bíómyndum en slíkt er sjaldnast tekið fram í þjóðsögum um vampírur. Nokkrar staðreyndir um vampírur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.