Fréttablaðið - 31.10.2009, Qupperneq 42
MÁLSTOFA UM GALILEO GALILEI verður haldin í Þjóðminjasafn-
inu í dag klukkan 13. Í ár eru 400 ár liðin frá því að Galileo gerði merkar upp-
götvanir á sviði stjörnufræði. Málstofan er haldin í tengslum við árlega viku
ítölskunnar sem haldin er víða um heim. www.hi.is
Þær Rakel Hlín Bergsdóttir og
Helga Bestla Baldursdóttir stýra
barnafataversluninni Fiðrildinu
sem opnar í Faxafeni 9 í dag en
Rakel lýsir tilurð verslunarinn-
ar með eftirfarandi hætti: „Ég
útskrifaðist úr viðskiptafræði
árið 2007 og fór að vinna á endur-
skoðunarskrifstofu. Ég fann fljót-
lega að það átti ekki við mig og
langaði að gera eitthvað lifandi og
hitta fólk. Hugmyndin að verslun-
inni skaut upp kollinum og fékk ég
vinkonu mína Helgu Bestlu Bald-
ursdóttur í lið með mér.“
Rakel og Helgu grunaði að mikið
væri til af heillegum
barnafötum sem
væru komin
úr notkun
í skápum
og skúff-
um landsmanna og kom
það svo sannarlega á
daginn þegar þær
fóru að grennsl-
ast fyrir. „Við
auglýstum á
Barnalandi
og í kring-
um okkur,
og erum
komnar
með fínan
lager af
fallegum
fötum. Við
borgum kílóverð fyrir
fötin og förum vand-
lega í gegnum þau. Þau
eru síðan þvegin og straujuð og eru
mörg hver eins og ný.“
Þær Rakel og Helga selja einn-
ig nýjar samfellur, teppi, sokka-
buxur og sokka. „Þetta eru fötin
sem eru næst barninu og eru auk
þess mikið notuð og þvegin svo
við ákváðum að hafa þau ný. Við
reynum að kaupa þau inn á hag-
stæðu verði því við viljum halda
verði í versluninni í lágmarki til
að sem flestir geti átt kost á því
að koma.“
Í versluninni eru einnig
barnavörur í umboðs-
sölu. „Við tökum við
vögnum, kerrum,
bílstólum, ömmu-
stólum, bumbo-
stólum,
göngugrind-
um, hjólum
og fleiru sem
viðkemur börnum en
okkur finnst hafa
vantað vettvang fyrir
notaðar vörur af
þessu tagi. Þá finnst
okkur um að gera
að nýta það sem er
heillegt í stað þess
að flytja stöðugt inn
auk þess sem við teljum okkur
vera að leggja okkar að mörkum
til umhverfisins. „Við erum þó líka
með leikföng en þá eingöngu tré-
leikföng og má þar nefna dúkku-
hús, eldavélar og púsl,“ segir Rakel
og bendir á að í versluninni sé
einnig að finna íslenskt handverk
eins og spangir og prjónahúfur.
Þær Rakel og Helga vilja að
börn hafi ánægju af því að koma
í búðina og hafa lagt sig fram
um að gera umgjörðina litríka og
skemmtilega. Þær hafa útbúið lítið
leikhorn og í tilefni opnunarinn-
ar verður boðið upp á blöðrur og
sleikjó. vera@frettabladid.is
Notað og nýtt á börnin
Barnafataverslunin Fiðrildið opnar í dag en þar fá vel með farin barnaföt nýtt líf. Þar er einnig boðið upp
á nýja smávöru, tréleikföng, barnavörur í umboðssölu og íslenska hönnun.
Í versluninni má finna íslenskt hand-
verk eins og þessa prjónahúfu, Fjör-
kálfinn, eftir Þóru Kristínu Bjarnadóttur.
Helga og Rakel eru báðar miklar barnagælur. Helga vinnur í hlutastarfi á leikskóla og Rakel á von á sínu þriðja barni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fötin eru
þvegin og
straujuð og
eru mörg
hver eins og
ný.
Uppfinningamennirnir Rúi og Stúi skemmta börn-
um í Leikhúsinu í Kópavogi næstu þrjár helgar.
Barnaleiksýningin Rúi og Stúi sem frumsýnd var hjá
Leikfélagi Kópavogs síðastliðið vor hefur verið tekin
upp að nýju. Kynning og sala sýningarinnar er í sam-
starfi við Kópavogsdeild Rauða krossins og rennur
þriðjungur af miðaverði til barna- og ungmennastarfs
Rauða krossins.
Rúi og Stúi fjallar um sérkennilega uppfinninga-
menn sem hafa fundið upp vél sem getur búið til eða
lagað hvað sem er. Bæjarbúar eru afar ánægðir með
vélina en blikur eru á lofti þegar vélin bilar og bæj-
arstjórinn hverfur. Samtímis fer skuggaleg persóna á
kreik í bænum og undarlegustu hlutir fara að hverfa
úr fórum bæjarbúa.
Höfundar verksins eru Skúli Rúnar Hilmarsson og
Örn Alexandersson. Sex leikarar taka þátt í sýning-
unni sem er í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar.
Aðstoðarleikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir, Berg-
rún Íris Sævarsdóttir sér um leikmynd og lýsingu
annast Arnar Ingvarsson og Skúli Rúnar Hilmars-
son.
Sýningar fara fram í Leikhúsinu Funalind 2. Miða-
verð er 1.500 kr. Miðapantanir eru í síma 554 1985
eða á netfanginu midasala@kopleik.is. Sex sýningar
eru eftir en tvær verða nú um helgina, á laugardag
og sunnudag klukkan 14.
Rúi og Stúi á fjalirnar á ný
Rúi og Stúi eru litríkir uppfinningamenn.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
www.elin.is • Bæjarhrauni 2 Hfj. • Sími: 696 4419
Rope Yoga
Námskeið hefjast 2. og 3. nóvember
Slys og veikindi barna
Námskeiðsgjald: 6.500 kr. á mann en 5.000 krónur ef maki eða
eldra systkini tekur líka þátt.
Leiðbeinandi er Sigrún Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Innifalin eru námskeiðsgögn og þátttökuskírteini.
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 www.redcross.is/kopavogur opið virka daga kl. 10-16
Skráning er til 14.mars
Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið
Slys og veikindi barna 9. og 11. nóvember kl. 18-21 í
Hamraborg 11, 2 hæð.
Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og
orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri.
Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu
tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna
á sjúkrahús o.fl.
Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 eða
með tölvupósti á kopavogur@redcross.is.
Skráning er til 5. nóvember.
Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðið og
félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið fá 10% afslátt.