Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 44
31. október 2009 LAUGARDAGUR4
Græni risinn heitir nýr veitinga-
staður sem var opnaður nýlega
í Ögurhvarfi í Kópavogi. Þar er
hollustan í fyrirrúmi að sögn
eigenda.
„Í dag er tískan íslenskt, ódýrt,
gott og hollt. Það erum við að
gera,“ segir Arnþór Þorvalds-
son, Addi kokkur, á glænýjum
veitingastað, Græna risanum í
Ögurhvarfi í Kópavogi. „Við köll-
um okkur heilsusetur og reynum
auðvitað að standa undir nafni.
Það er engin óhollusta á matseðl-
inum, engin olía nema kókosolía,
engin egg, sykur og hvítt hveiti.
Bara ferskt grænmeti og sem fitu-
minnst hráefni.“
Addi lærði kokkinn í Múlakaffi
fyrir 23 árum og hefur komið víða
við síðan. Síðasta hálfa árið vann
hann á hinum vinsæla veitinga-
stað Saffran í Glæsibæ og sá um
daglegan rekstur. Á nýja staðnum
segist hann vera að fínpússa ýmsa
þætti í rekstrinum sem honum
fannst mega fínpússa. „Ég held við
séum einn af glæsilegri stöðunum
í þessum geira, erum á tveimur
hæðum og útsýnið er frábært.“
Á fjölbreyttum matseðli má
meðal annars finna vefjur, fletj-
ur, salöt, „pottaða rétti“ úr tand-
oori-potti og ristaða rétti. Að
ógleymdu bústinu. „Nú þarf ekki
að fara niður í bæ eftir bústinu
sínu,“ segir Addi. „Við reynum að
gera vel í hverfisþjónustunni. Ég
held að allir sem skoða matseðil-
inn okkar muni sjá að við erum
sanngjörn.“ - drg
Íslenskt hráefni,
ódýrt, gott og hollt
Tveir keikir kokkar, Torfi Arason og Addi kokkur, á Græna risanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Munir úr smiðju Jóns Guðmundssonar
verða til sýnis í félagsmiðstöðinni
Hraunbæ 105 um helgina í tilefni af
Menningardögum í Árbæ.
Jón Guðmundsson er plöntulífeðlisfræð-
ingur og trérennismiður og vinn-
ur eingöngu úr innlendum viði
auk rekaviðar.
Á sýningunni gefur að líta
fjölbreytta muni, skálar, lampa,
vasa og styttur. Í tilkynningu
frá Jóni lýsir hann vinnslu verka
sinna þannig: „Innlendur/heima-
ræktaður viður getur verið mik-
ilvægt hráefni í listsköpun svo
og framleiðslu nytjahluta. Nýt-
ing þessa hráefnis er sjálf-
stætt markmið. Í lauftrjám má
finna margs konar áferð, liti og
mynstur. Við vinnslu viðarins er
ávallt reynt að ná fram sérstöðu
hvers viðarbútar, svo sem ein-
stakt viðarmynstur. Suma viðar-
búta er hægt að renna það þunnt
að hægt er að nota þá í lampa-
skerma og nærri allir henta í
skálar og krúsir. Einkenni reka-
viðarins er að þar má finna
maðksmogna búta, sem við viss-
ar aðstæður fegrar hlutinn.“ - sg
Renndir og tálgaðir trémunir
Bækurnar
Karitas án tit-
ils og Óreiða
á striga eru á
meðal þess
sem fjallað
verður um á
ritþingi helg-
uðu Kristínu
Marju Bald-
ursdóttur rit-
höfundi í Gerðbergi í dag.
Þar mun Silja Aðalsteinsdótt-
ir bókmenntafræðingur lesa upp
brot úr verkum Kristínar Marju.
Ármann Jakobsson íslenskufræð-
ingur og Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri verða í hlutverki spyrla.
Sýning Þórunnar Elísabetar
Sveinsdóttur, Óreiðan – Sögu-
heimur Karitasar, verður opnuð
að þinginu loknu. Sýningin bygg-
ir á fyrrnefndum bókum Kristínar
Marju um listakonuna Karitas
og stendur til 3. janúar. Þess má
geta að ókeypis aðgangur er á
ritþingið, sem fer fram frá klukk-
an 13.30 til 16.
Kristín Marja
krufin til mergjar
RITÞING HELGAÐ KRISTÍNU MARJU
BALDURSDÓTTUR.
Listakonurnar eru þær stöllur Þór-
unn Elísabet Sveinsdóttir eða Tóta
eins og hún er kölluð, Þorbjörg Hall-
dórsdóttir sem gengur undir nafn-
inu Tobba og Hrafnhildur Arnar-
dóttir. Þær takast á við ólík mál þótt
ýmislegt sameini þær einnig.
„Þetta ár hefur verið mikið
kvennaár hjá safninu ef svo má
segja,“ segir sýningarstjórinn
Hannes Sigurðsson. Hann útskýrir
því næst að listaárið á safninu hafi
hafist á sýningu á verkum Mar-
grétar Jónsdóttur leirlistamanns
en í tilefni sýningarinnar gaf safn-
ið út 200 síðna bók. Því miður verð-
ur að teljast harla óvenjulegt að safn
veiti leirlistakonu svo mikla upp-
hefð og segir Hannes að leirlist sé
eitt þeirra listforma sem oft verði
útundan og talað um á niðrandi hátt
sem hannyrðir. Fleiri konur sýndu
svo listir sínar á safninu í ár og þótti
Hannesi við hæfi að listaárinu lyki á
svipaðan hátt og það hófst, það er að
segja með verkum sem eiga það til
að verða útundan þegar rætt er um
listir og eru eftir konur. Sýning Evu-
dætra sé ein heildstæð innsetning
en með þremur ólíkum konum sem
sameinist þó á vissum sviðum.
Það er um Evudætur að segja að
Þórunn hefur starfað innan leik-
hússins í hartnær þrjátíu ár og getið
sér gott orð fyrir búningahönnun og
sviðsmyndir. Tilfinning og efnis-
meðferð í myndlist Þórunnar hefur
í öllum sínum fjölbreytileika og lita-
dýrð lengst af verið nátengd ástríðu
hennar fyrir búningum.
Hrafnhildur hefur búið og starf-
að í New York um langt skeið. Lista-
mannsnafn hennar er Shoplifter,
sem gæti útlagst búðarhnuplari á
íslensku. Í verkum hennar er tekist á
við fyrirbæri eins og hégóma, sjálfs-
mynd, fegurð og tísku og kemur hún
með margvíslegum hætti inn á þrá-
hyggju og blæti, afsprengi nútíma-
lifnaðarhátta. Á undanförnum árum
hefur hún unnið mikið með gervi-
hár og náttúrulegt hár og búið
til skúlptúra og veggmyndir sem
minna á klifurplöntur. Úr verður
skreytikennd fegurð sem býr jafn-
framt yfir ógnvekjandi draugaleg-
um áhrifum, eins og segir í fagur-
lega hannaðri sýningarskránni.
Þorbjörg hélt ung til Mexíkó
þar sem hún dvaldi í tólf mánuði
og stundaði tónlistarnám og starf-
aði sem tónlistarþerapisti. Tíma-
mót urðu í hennar lífi þegar hún
kynntist Önnu í versluninni Fríðu
frænku. Hún hóf að þróa myndlist
sína í gegnum kynni sín af búðinni
og vinnur hún nú mest með inn-
setningar og gjörninga, þá gjarnan
í samvinnu við aðra listamenn.
Rithöfundurinn Sjón skrifar smá-
sögu í sýningarskrána, sem er hönn-
uð af Kviku ehf. Sýningin stend-
ur til 13. desember. Listasafnið á
Akureyri er opið frá klukkan 12-17
alla daga nema mánudaga. Ókeypis
aðgangur er í boði Akureyrarbæjar.
karen@frettabladid.is
Evudætur prýða Akureyri
Þrjár vinkonur sem allar hafa unnið í fornversluninni Fríðu frænku í Reykjavík hafa opnað sýningu í
Listasafni Akureyrar. Þar ganga gamlir hlutir í endurnýjun lífdaga og andi hins liðna svífur yfir vötnum.
Evudæturnar hafa allar
starfað í verslunni Fríðu
frænku þar sem gamlir
hlutir koma upp úr glat-
kistunni.
M
YN
D
/T
Ó
M
A
S
JÓ
N
SS
O
N
/K
VI
K
A
.IS
Nýkomið glæsilegt
úrval af kvenskóm
úr leðri og fóðraðir
með flís.
Margar gerðir.
Stærðir: 36–42
Verð: 17.500.-
Stærðir: 36–41
Verð: 17.500.-