Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 45
Vegna aukinna verkefna leitum við nú að efnaverkfræðingi til starfa á starfsstöð
okkar á Akureyri.
Meðal verkefna viðkomandi má nefna:
Rannsóknir og þróun endurnýjanlegs eldsneytis í samvinnu•
við atvinnulíf og háskóla
Orkulíftækni•
Vinna tengd loftslagsmálum•
Meðhöndlun úrgangs og nýting•
Ýmis vöruþróun•
Hæfniskröfur:
Meistaragráða í efnaverkfræði með áherslu á framleiðslu•
(e. process engineering)
Gott vald á skrifaðri og ritaðri íslensku og ensku•
Færni í mannlegum samskiptum•
Frumkvæði og sjálfstæði í starf•
Starfsreynsla úr atvinnulí nu er æskileg•
Mannvit hf. I Grensásvegi 1 I 108 Reykjavík I s: 422 3000 / f: 422 3001 I www.mannvit.is
Efnaverkfræðingur
Mannvit verkfræðistofa er með um 400 starfsmenn sem sinna ölbreyttum og kre andi verkefnum hér á
landi og erlendis. Fyrirtækið er leiðandi í tækniráðgjöf á Íslandi og stefnir á ö uga starfsemi á alþjóðamarkaði.
Mannvit leggur áherslu á fyrsta okks starfsumhver þar sem saman fer reynsla, nýsköpun, framsýni
og símenntun. Markmið Mannvits er velferð á grunni þekkingar og vísinda en viðhorfum til verkefna og
viðskiptavina verður best lýst með gildum fyrirtækisins: Traust, víðsýni, þekking og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 9. nóvember nk.
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Mannvits, www.mannvit.is
Nánari upplýsingar veitir
Drífa Sigurðardóttir, starfsmannastjóri, í síma 422-3338.
Á starfsstöð Mannvits á Akureyri vinna nú tveir efnaverkfræðingar. Auk þess
vinna mm efnaverkfræðingar í Reykjavík. Mannvit hefur rekið rannsóknarstofu á
Akureyri síðan vorið 2008 þar sem m.a. hefur verið haft eftirlit með malbikslögnum
og tilraunaframleiðsla lífdísils.
ÞJÓÐGARÐURINN Á ÞINGVÖLLUM
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Þingvallanefnd auglýsir laust til umsóknar starf fram-
kvæmdastjóra fyrir þjóðgarðinn á Þingvöllum sem
jafnframt er þjóðgarðsvörður
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er á heimsminjaskrá
UNESCO og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu
sem verndarsvæði vegna einstaks menningarlandslags.
Þjóðgarðurinn er undir stjórn Þingvallanefndar sem
hefur m.a. það hlutverk að varðveita ásýnd þjóðgarðsins,
viðhalda þar upprunalegu náttúrufari og dýralífi , stuðla
að verndun Þingvallavatns og lífríkis þess og hafa eftirlit
og umsjón með framkvæmdum innan þjóðgarðsins.
Starf þjóðgarðsvarðar felst í að annast og bera ábyrgð
á rekstri þjóðgarðsins á Þingvöllum í umboði Þing-
vallanefndar. Þjóðgarðsvörður ber ábyrgð á fjárreiðum
þjóðgarðsins og annast m.a. ráðningu starfsfólks, gerð
fjárhags-, rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir þjóð-
garðinn og er tengiliður á milli almennings, lóðarleigu-
hafa, ábúenda, sveitarfélagsins o.fl . og Þingvallanefndar.
Hann hefur eftirlit með innheimtu lóðarleigugjalda
og gjalda svo sem vegna tjaldsvæða og veiðileyfa.
Þjóðgarðsvörður er ábyrgur fyrir þjónustu við ferða-
menn og aðra gesti, sér um og skipuleggur fræðslustarf
og viðhald göngustíga. Þjóðgarðsvörður sinnir öðrum
verkefnum sem Þingvallanefnd felur honum og falla
innan starfssviðs hans skv. reglugerð nr. 848/2005 um
þjóðgarðinn á Þingvöllum, verndun hans og meðferð og
í samræmi við lög um þjóðgarðinn á Þingvöllum
nr. 47/2004.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu og þekkingu
verða hafðar til viðmiðunar við mat á hæfni umsækj-
anda og ráðningu í starfi ð:
• Háskólamenntun sem nýst getur í starfi , framhalds
menntun er kostur
• Þekkingu á Íslandi, sögu lands og þjóðar, íslensku
náttúrufari og íslenskri ferðaþjónustu
• Reynsla af stjórnunarstörfum, almennum rekstri,
fjármálastjórn og mannaforráðum
• Þekking á umhverfi smálum, náttúrutúlkun og/eða
landvörslu er kostur
• Reynsla eða þekking á fræðslu til mismunandi hópa
• Góð íslensku- og enskukunnátta auk Norðurlanda
máls, frekari tungumálakunnátta er kostur.
Stefnt er að því að ráða í starfi ð frá og með áramótum
en fyrr ef kostur er. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Bæði
konur og karlar eru hvött til að sækja um starfi ð.
Skrifl egri umsókn með upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist til Þingvallanefndar, Austurstræti 8,
150 Reykjavík, eigi síðar en 20. nóvember n.k. Upplýs-
ingar um starfi ð veitir Álfheiður Ingadóttir, formaður
Þingvallanefndar, netfang alfheiduri@althingi.is, sími
8938866. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin.
Spænskukennari óskast
Menntaskólinn Hraðbraut óskar að ráða vanan
spænskukennara í hlutastarf næstu vorönn.
Áhugasamir sendi upplýsingar
á netfangið ohj@hradbraut.is.
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441