Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 31. október 2009 9
Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is
Starfssvið
Við leitum að öflugum liðsmanni í samhentan hóp þar sem helstu verkefni eru:
Hönnun og þróun veflausna
Þróun á vefþjónustulagi félagsins
Viðhald á hugbúnaðarkerfum með áherslu á veflausnir
Menntun og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun
Æskileg þekking og reynsla: Python / C# / ASP.Net 2.0 / SQL / HTML / CSS / JS
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Nánari upplýsingar veitir Stefán Baxter, deildarstjóri netlausna, í síma 560 5195, (stefanb@vis.is).
Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi allar umsóknir og fyrirspurnir.
Umsóknum skal skilað á heimasíðu VÍS, vis.is, fyrir 6. nóvember næstkomandi.
VÍS er öflugt þjónustufyrirtæki og á djúpar rætur í íslensku samfélagi. Markmið VÍS er að vera alltaf í
fremstu röð tryggingafélaga á Íslandi og er ánægja starfsfólks og viðskiptavina lykilatriði í velgengni
félagsins. Hjá VÍS starfar framúrskarandi hópur einstaklinga sem saman mynda sterka liðsheild.
Stjórnendur VÍS vilja fela starfsfólki störf við hæfi , þannig að hæfileikar þess og frumkvæði fái notið
sín við áhugaverð og krefjandi verkefni.
VÍS LEITAR AÐ
HUGBÚNAÐARSÉRFRÆÐINGI
Í NETLAUSNADEILD
Embætti landlæknis
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar
embætti landlæknis.
Landlæknir er skipaður af heilbrigðisráðherra til
fi mm ára í senn að fengnu mati nefndar skv. 9. gr.
laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Nefndin
metur hæfni umsækjenda en fulltrúar í nefndinni
hafa þekkingu á rekstri, starfsmannamálum, stjórn-
sýslu og heilbrigðisþjónustu.
Umsækjendur um stöðu landlæknis skulu hafa sér-
fræðimenntun í læknisfræði og víðtæka reynslu
eða menntun á sviði stjórnunar.
Um embætti landlæknis fer samkvæmt lögum um
landlækni nr. 41/2007, lögum um heilbrigðisþjón-
ustu nr. 40/2007 og öðrum lögum eftir því sem við
á.
Embætti landlæknis er undir yfi rstjórn heilbrigð-
isráðherra og er markmið með starfrækslu þess
að tryggja gæði heilbrigðisþjónustu og stuðla að
heilbrigði landsmanna.
Landlæknir ber ábyrgð á því að embættið starfi í
samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Hann
ber jafnframt ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og
rekstrarafkoma embættisins sé í samræmi við fjár-
lög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Hlutverk landlæknis er m.a. eftirfarandi:
• Að veita ráðherra og öðrum stjórnvöldum,
heilbrigðisstarfsfólki og almenningi ráðgjöf
um heilbrigðismál.
• Að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu.
• Að hafa eftirlit með heilbrigðisstarfsmönnum.
• Að hafa eftirlit með lyfjaávísunum og fylgjast
með og stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun
landsmanna.
• Að veita starfsleyfi til einstaklinga sem
uppfylla skilyrði laga og reglugerða til
notkunar starfsheita löggiltra heilbrigðisstétta.
• Að safna og vinna upplýsingar um heilsufar og
heilbrigðisþjónustu.
• Að fylgjast með heilbrigði landsmanna.
• Að vinna að gæðaþróun innan heilbrigðis-
þjónustu.
• Að sinna kvörtunum almennings vegna
heilbrigðisþjónustu.
• Að stuðla að því að menntun heilbrigðisstarfs
manna sé í samræmi við kröfur heilbrigðis
þjónustunnar á hverjum tíma.
• Að stuðla að rannsóknum á sviði heilbrigðis
þjónustu.
• Að sinna öðrum verkefnum sem honum eru
falin samkvæmt lögum, stjórnvaldsfyrirmælum
eða ákvörðun ráðherra.
Skipulag og verkaskipting stjórnsýslustofnana
ráðuneytisins er nú til endurskoðunar, m.a. í þeim
tilgangi að efl a eftirlit með gæðum heilbrigðisþjón-
ustu og forvarnir og kann það að leiða til breytinga
á starfsemi embættisins. Lögð er áhersla á að nýr
landlæknir taki þátt í þeirri vinnu.
Skipað verður í stöðuna til fi mm ára frá 1. janúar
2010. Um kjör landlæknis fer samkvæmt ákvörð-
un kjararáðs, sbr. lög um kjararáð nr. 47/2006.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvött til að sækja um
embættið.
Upplýsingar um starfi ð veita Berglind Ásgeirs-
dóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis
(berglind.asgeirsdottir@hbr.stjr.is) og Sigurjón Ingi
Haraldsson, skrifstofustjóri heilbrigðisráðuneytis
(sigurjon.ingi.haraldsson@hbr.stjr.is)
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist heilbrigðisráðuneytinu, Vegmúla
3, 150 Reykjavík eða á postur@hbr.stjr.is eigi
síðar en 19. nóvember 2009.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um skipun liggur fyrir.
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
Í boði eru störf í vaxandi og
metnaðarfullu fyrirtæki.
Umsóknir sendist l:
starf@mentor.is
Tekið er við umsóknum l
8. nóvember.
Gæ verður fyllsta trúnaðar
við meðferð umsókna og
fyrirspurna.
Mentor er þekkingarfyrirtæki
sem hefur það meginhlutverk
að leggja skólasamfélaginu
l lausnir, þekkingu og
þjónustu l aukins árangurs.
Fram ðarsýn Mentors er
að verða ei virtasta fyrirtæki
Evrópu á sviði
upplýsingakerfa fyrir skóla.
Rúmlega 800 skólar nýta sér lausnir frá Mentor í þremur
löndum, Íslandi, Svíþjóð og Sviss og framundan er
innleiðing Mentorkerfisins í fyrstu skólunum í Þýskalandi.
Mentorkerfið er smíðað í ASP.NET C# ofan á Oracle
gagnagrunn. Unnið er e ir Agile hugmyndafræði í
tveggja vikna spre um.
Mentor leitar að öflugum forriturum l að vinna að
áframhaldandi þróun kerfisins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Tölvunarfræðingur, kerfisfræðingur eða
sambærileg menntun
- Þekking og reynsla af ASP.NET og C#
- Metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
Mentor hefur hlotið Vaxtarsprotann s.l. tvö ár
fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis.