Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 64

Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 64
36 31. október 2009 LAUGARDAGUR Sú kynslóð sem kynntist nasisman- um af eigin raun er að hverfa og við sem erum að taka við höfum í raun litla tengingu við þessa atburði. Við erum því ekki að rogast með samviskubit yfir þjóðerni okkar. D aniel Brühl leikur eitt aðalhlutverkanna í Kóngavegi 7 eftir Valdísi Óskarsdótt- ur. Þar leikur hann á móti góðvinum sínum úr Vestur porti en Brühl og Nína Dögg Filippusdóttir kynntust sem vonar- stjörnur á kvikmyndahátíð í Berlín fyrir allmörgum árum og hafa hald- ið nokkuð góðu samband síðan. Brühl kynntist síðan Vesturportsfólkinu þegar hann var að leika í London á sama tíma og íslenski leikhópurinn tók borgina með trompi. Daniel fékk dæmigert íslenskt kvef þegar nokkuð var liðið á tökurn- ar enda eilítið kaldara hér heldur en á meginlandi Evrópu. Hann kaus að bjarga sér sjálfur, fór daglega á veit- ingastaðinn Asíu, fékk sér kjúklinga- súpu og slatta af chili og svo danska brjóstdropa í eftirrétt. Og þetta kemur víst heilsunni í lag, að mati Daniels. „Kjúklingasúpan er náttúrulega við- urkennd sem einhvers konar lækn- ingarmeðal en chili-skálin var rúsín- an í pylsuendanum. Hún gerði það að verkum að allar bakteríur hurfu með svitanum. Ég veit ekki með dönsku brjóstdropana, það voru Íslending- arnir sem mæltu með þeim,“ útskýr- ir Daniel. Hann fékk líka að kynnast rammíslenskri haustlægð því síðasta tökudaginn tóku veðurguðirnir málin í sínar hendur og björgunarsveitir urðu að hafa sig allar við til að bjarga hús- þökum og fjúkandi lausamunum. Samkynhneigður umboðsmaður En víkjum þá að Kóngavegi 7. Daniel viðurkennir að persóna hans hafi breyst mikið frá því sem handritið sagði fyrir um í upphafi. Hann er sam- kynhneigður umboðsmaður frá Þýska- landi sem blekktur er til Íslands af skjólstæðingi sínum. Sá er leikinn af Gísla Erni Garðarssyni. „Ég lagði allt í sölurnar til að koma honum á fram- færi en þegar ég get ekki borgað þá peninga sem ég fékk lánaða til baka Fékk alvöru, íslenskt kvef Daniel Brühl veiktist þegar hann var í tökum á Kóngavegi 7 og læknaði sig með kjúklingasúpu frá veitingastaðnum Asíu, fullri skál af chili og dönskum brjóstdropum. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þýska leikarann um hjólhýsahyski, kvikmyndadraum- inn og það að vera Þjóðverji. Daniel talar jafnframt um efnahagshrunið á Íslandi en hann fylgdist náið með atburðunum í fyrra. EKKI MEÐ SAMVISKUBIT Daniel Brühl segir Þjóðverja af sinni kynslóð ekki rogast með samviskubit yfir því einu að vera Þjóðverjar. Þeir séu stoltir af sögu sinni og menningu þótt auðvitað muni þeir aldrei gleyma hörm- ungum seinni heimsstyrjaldarinnar. eru góð ráð dýr,“ útskýrir Daniel. Per- sóna Gísla, sem heitir Junior, upplýs- ir að hann eigi voðalega ríkan pabba heima á Íslandi og þeir geti auðveld- lega slegið hann um lán. „En að sjálf- sögðu er pabbi hans ekkert ríkur held- ur býr í hjólhýsahverfi.“ Og þegar talið berst að fölskum fyr- irheitum og lánum sem ekki er hægt að greiða er varla hægt að sleppa Daniel við hina sígildu spurningu; hvort hann hafi fylgst vel með þegar Ísland fór á hausinn í fyrra. „Við í Þýskalandi héld- um að þetta gæti bara gerst í Suður- Ameríku eða Afríku. Ekki í Evrópu. En auðvitað voru allir að hugsa fyrst og fremst um sinn hag, það voru ein- hverjir Þjóðverjar sem áttu peninga í íslenskum bönkum. Ég á samt mjög bágt með að skilja hvernig þetta gat farið svona, hvernig einhverjir ein- staklingar komust upp með að leika sér með ímyndaðan pening og stjórn- völd voru hvorki á varðbergi né reyndu að stöðva þetta,“ segir Daniel og bætir því við að hann verið í góðu sambandi við Gísla Örn á meðan mestu hörmung- arnar riðu yfir. „Mér skilst að Ísland skuldi þrefalt á við Versala-samning- ana sem Þjóðverjar þurftu að glíma við eftir fyrri heimstyrjöldina. Ég las auðvitað allt um Versala-samninginn í skóla og þá fannst manni þær skuldir stjarnfræðilegar. Versala-samningarn- ir voru mikil niðurlæging fyrir Þjóð- verja og það vita allir hvað gerðist í framhaldinu.“ Stoltur af þjóðerninu Og það sem gerðist í framhaldinu var að Adolf Hitler komst til valda, þriðja ríkið varð að veruleika og nasisminn tók öll völd í Þýskalandi með skelfileg- um afleiðingum. Daniel leikur einmitt nasista í kvikmynd Quentins Tarantino, Inglorious Basterds, og leikarinn hlær þegar hann rifjar upp brandara sem jafnan er hafður í flimtingum í þýsk- um leikaraheimi. „Sagan segir að á einum eða öðrum tímapunkti verði allir þýskir leikarar að leika nasista.“ Þótt leikarinn sé yfirleitt ekki hrifinn af því hvernig Hollywood hefur nálgast þetta tímabil, nefnir þar sérstaklega Valkyrju Toms Cruise, hreifst hann af hugmyndum Tarantinos. Húmor og galsi væru í aðalhlutverkum, sveigt og beygt út af sögunni, eitthvað sem hefur ekki átt sér stað í háa herrans tíð þegar nasismi er annars vegar. „Ég hreifst strax af handritinu og af þeirri hugmynd að Tarantino ætlaði að leyfa Þjóðverjum að leika stór hlutverk,“ útskýrir Daniel. Og leikarinn segir það ekki hafa verið erfitt að leika nasista í ljósi mannkyns- sögunnar. Hann sé hluti af nýrri kyn- slóð Þjóðverja, kynslóð sem líti vissu- lega á nasmismann sem svartan kafla í sinni sögu. Þetta sé hins vegar fyrst og fremst kafli, ekki sagan í heild sinni. „Það er alveg rétt, mín kynslóð skamm- ast sín ekki fyrir það eitt að vera Þjóð- verjar. Við höfum jákvæða sýn á sögu þjóðarinnar, menningu hennar og list- ir. Við vitum auðvitað hvað gerðist og fáum aldrei að gleyma því en það er svo margt annað sem Þjóðverjar geta verið stoltir af,“ segir Daniel. „Sú kyn- slóð sem kynntist nasismanum af eigin raun er að hverfa og við sem erum að taka við höfum í raun litla tengingu við þessa atburði. Við erum því ekki að rogast með samviskubit yfir þjóð- erni okkar.“ Ánægður í Evrópu Frá nasismanum liggur leiðin til Holly- wood þótt Daniel segist ekkert vera á leiðinni þangað í bráð. Hans draumur sé ekki villa í Beverly Hills með sund- laug í garðinum. „Ég er mjög ánægð- ur með að vera í Evrópu, ég hef unnið mikið í enskum, spænskum og þýskum kvikmyndum og er bara mjög ánægður með það. Ég hef náð að skapa mér nafn hérna en í Hollywood yrði ég að byrja algjörlega upp á nýtt.“ Hann bætir því við að það sé mjög erfitt fyrir unga leik- ara frá Evrópu að ná langt í Ameríku því þar sé nóg framboð af ungum leik- urum sem ekki eru með hreim. „Hins vegar virðist alltaf vera góður mark- aður fyrir eldri leikara með evrópskan hreim, þeir fá þá að leika vonda gæj- ann í Bond og aðra þorpara eða sérvitr- an prófessor.“ Daniel hlær þegar hann er spurður hvort æðsti draumur evr- ópskra leikara sé einmitt að leika vonda gæjann í Bond. „Ég ætla að vona ekki. Ég vona hins vegar að þeir biðji Chris- toph Waltz um að leika hann, Waltz var stórkostlegur í Inglorious.“ … er fæddur hinn 16. júní 1978 í Barcelona. Á því sama afmælisdag og Tupac Shakur og Stan Laurel. … heitir fullu nafni Daniel César Martín Brühl González Domingo. … talar bæði þýsku og spænsku reiprennandi og getur einnig tjáð sig á katalónsku, frönsku og ensku ef svo ber undir. … fyrsta hlutverk hans var götustrákurinn Benji í óperunni Verbotene Liebe árið 1995. … fékk alls fimm verðlaun fyrir leik sinn í Good Bye Lenin. … var valinn maður ársins af GQ árið 2007. … var í sambúð með þýsku leikkonunni Jessicu Schwarz í fimm ár. Þau hættu saman árið 2006. Hún kallaði hann oftast Gollum. … leikur nasista í kvikmyndinni In Transit á móti John Malkovich. … var aðalsöngvari í hljómsveit sem hét Purge. … á bæði bróður og systur. ➜ TÍU ATRIÐI SEM ÞÚ VISSIR EKKI UM DANIEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.