Fréttablaðið - 31.10.2009, Síða 66
38 31. október 2009 LAUGARDAGUR
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Mér er nokk sama. Ég
hugsa einungis um núið og ellina.
Hins vegar eru nokkrir hlutir sem
ég vona innilega að téður stóri-
Arnar komi í verk svo sá aldraði
geti litið til baka sáttur. Til dæmis
má hann vinsamlegast skrifa bók,
koma að nokkrum plötum til við-
bótar, eignast börn á réttum tíma,
verða fullur í Asíu og safna gáfu-
legu alskeggi.
Sauðárkrókur – Selfoss norð-
ursins? Þvert á móti, ef ég skil
þessa spurningu rétt. Ég man eftir
nákvæmlega tveimur hnökkum í
fimm ára radíus af Króknum. Þeir
þóttu mjög sérkennilegir.
Von eða Spútnik? Ég og mínir
höfum haft svo mikil persónuleg
kynni af Von í tengslum við flest
sem viðkemur tónlist að ég held
þeir fái mitt atkvæði. Þeir eru
dýrlingar. Kristján Gísla, söngvari
Spútnik, fann okkur samt eftir tón-
leika í sumar og sparaði ekki fögru
orðin og fyrir það er ég mjög þakk-
látur. Þetta jaðrar við jafntefli.
Geirmundur eða Auðunn Blön-
dal? Þetta er ósanngjörn spurn-
ing. Sverrir Bergmann gegn Audda
væri sanngjarnt, en þetta ekki
sambærilegt. Spurðu mig eftir tut-
tugu ár og sjáum hvort Auddi verði
enn að gera það sem hann gerir í
dag og það af jafnmiklum krafti og
ástríðu. Þá fyrst geta þeir dregið
fram boxhanskana.
Hefurðu slegist á balli í Mið-
garði? Nei, ég er annar af þeim
tveimur sem gerðu það aldrei. Ég
hef gert tilraun til þess, öskrað á
ímyndaða óvini og hótað öllu illu,
en ekki rekið hnefann í nebbann
á nokkrum þar né annars staðar.
Einu sinni var ég kýldur á Akur-
eyri og það var bara tómt vesen.
Ég var fullur og hamingjusamur
en féll ekki í kramið hjá einhverj-
um rudda svo hann sendi mig upp
á spítala með skurð á hökunni. Það
þótti mér dónalegt af honum.
Hver er mest framandi staður-
inn sem þú hefur komið til? Ég er
ekki veraldarvanur, svo ég verð að
segja hótelið sem ég gisti á í Lond-
on. Ég og kærastan skipulögðum
ferðina sjálf og enduðum á ein-
hverju prinsessuhóteli. Þar var
allt bleikt og skreytt með blómum
og fyrir utan okkur voru gestirnir
flestir komnir á eftirlaun. Það var
súrrealískt að ganga um það, líkt
og maður væri bresk yfirstéttar-
dama árið 1800.
Besta bókin? Góði dátinn Svejk
eftir Jaroslav Hašek. Það er dæmi-
gert að nefna hana þar sem annar
hver maður í heiminum er á sama
máli, en það er líka góð ástæða
fyrir því. Ég get litið í hana og
lesið kafla handahófskennt og allt-
af skemmt mér jafn vel. Í öðru
sæti kemur The Pleasure of the
Damned, ljóðasafn Bukowskis.
Besta bíómyndin? Ég keypti mér
nokkrar japanskar Gojira-myndir
á VHS af Amazon fyrir mörgum
árum og eiga þær alltaf sinn stað
í hjarta mér. Þær eru samt ömur-
legar.
Hvert er versta starf sem þú
hefur unnið? Það er ekkert starf
verst, en versti vinnudagurinn var
þegar ég mætti strax í Steinullina
eftir að rifnir voru úr mér tveir
jaxlar. Ég stóð á sama fermetran-
um allan daginn í lyfjamóki og slef-
aði blóði og lét hlæja að mér.
Hvar er fallegast á Íslandi? Við
Botnstjörn í Ásbyrgi.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Blóðmörinn hennar mömmu
með kartöflustöppunni hans
pabba.
Hvenær táraðist þú síðast?
Óljóst, en ég komst nálægt því um
daginn þegar bláókunnugur náungi
söng Alice með Tom Waits upp við
eyrað á mér á Næsta bar. Bókstaf-
lega allt lagið, orð frá orði. Svo verð
ég alltaf klökkur þegar mínir menn
í Liverpool fara illa með Manchest-
er United.
Hvenær fékkstu síðast hlátur-
skast? Í gær lenti ég í geðshrær-
ingarhláturskasti þegar ég villtist
í Grafarvogi og þurfti að láta leið-
beina mér í gegnum síma. Leiðbein-
andinn lét mig keyra fram og aftur
sömu göturnar því hann vissi ekki
hvernig ég sneri á ja.is kortinu sem
hann hafði fyrir framan sig, því
hann rataði engu betur en ég. Þetta
var eins og léleg gamanmynd. Ann-
ars hlæ ég mest að eigin fyndni.
Uppáhaldsorðið þitt? Ég er mjög
veikur fyrir fallegum íslensk-
um orðum og á mér reglulega upp-
áhaldsorð. Í dag er það líklega aft-
urbatapíka því um daginn tókst mér
eftir áralanga baráttu að koma því
fyrir innan setningar, án þess að
hljóma eins og drulluhali.
Hvað myndi fullkomna líf þitt?
Ef tónleikarnir um helgina ganga
vel og platan heldur áfram að selj-
ast verð ég mettur næstu vikurn-
ar. Ég geri ekki of miklar kröfur
til lífsins.
Hverjum er kreppan að kenna?
Til andskotans með kreppuna! Ég
hef aldrei átt neitt og finn því lít-
inn sem engan mun. Mín persónu-
lega kreppa er bara áfengisverðið,
svo ég kenni ríkinu um. Thor fer
frá 99 krónum í 169! Mér er skapi
næst að grenja.
Hver er leiðin út úr kreppunni?
Ég get ekki svarað þessu án þess
að hljóma fávís, sem ég er. Er ekki
bara hægt að bakka sömu leið út?
Ha?
Hvað er næst á dagskrá? Reyna
að standa sig í skóla, spila úti um
allt, semja nýtt efni, vekja lukku
og fara svo í heimsókn til ömmu
og rökræða um skegg. Endilega
mætið á Sódóma kl. 22 í kvöld.
Þetta verður sögulegt.
Rökræður um skegg
Arnar Freyr Frostason syngur og rappar með Bróður Svartúlfs, rapprokksveitinni frá Sauðárkróki
sem vann Músíktilraunir í vor. Hljómsveitin hefur gefið út sex laga disk og kynnir hann á Sódómu í
kvöld. Arnar vílaði ekki fyrir sér að grillast í Þriðju gráðunni.
ANNAR AF ÞEIM TVEIMUR SEM ALDREI HAFA SLEGIST Í MIÐGARÐI Arnar Freyr Frostason í Bróður Svartúlfs er hrifinn af orðinu afturbatapíka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FULLT NAFN OG HVAÐ ERTU KALLAÐUR? Arnar Freyr Frosta-
son. Aldrei verið kallaður neitt annað en Arnar Freyr sökum
algengi fornafnsins á Sauðárkróki. Millinöfnin voru alltaf
notuð til að aðgreina okkur nafnana í barnæsku, og ég veit
ekki betur til en svo að hinir hafi heldur aldrei hlotið merki-
leg gælunöfn.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐIST ÞÁ HELST Í VERALDARSÖG-
UNNI: 1988. Straight Outta Compton með NWA kom út.
LÍF ÞITT Í HNOTSKURN: Sat bæði grunnskóla og framhalds-
skóla á Sauðárkróki, reyndar einn vetur í VMA. Lauk næstum
við smiðinn en útskrifaðist svo af félagsfræðibraut. Flutti
suður seinasta ágúst og hóf ritlistarnám í HÍ. Vann nokkur
sumur sem handlangari hjá byggingarfyrirtæki en seinustu
þrjú í Steinullarverksmiðjunni á Króknum. Shout out til allra
þar. ÞR
IÐ
JA
G
R
Á
Ð
A
N
■ Á uppleið
Sýndarveruleiki. Á vefnum habbo.
com getur þú farið í partí, út að borða
og opnað bar. Tölvan er hinn nýi
Kaffibar.
Kjölfar Airwaves. Það eru allir að
tala um hvað muni koma í kjölfar
Airwaves og nú er spennandi að sjá
hvað það verður.
Fléttur. Hliðarfléttur eru skemmtileg
leið til að kljást við sítt hár og flottar
út á lífið.
Hrekkjavakan.
Allra sálna messa
er í dag og um
að gera að fara
að skella sér í
búningapartí.
■ Á niðurleið
Ókeypis sjónvarp. Þegar allir fara
að rukka fyrir sjónvarp í kreppunni er
óhjákvæmilegt að lítið verði eftir til
að horfa á.
Laufin. Vindar blása og bráðum
verður ekkert eftir af laufguðum trjám
og grænu grasi.
Hikorð hjá sjónvarpsfólki. Að
segja „þúst“ inn á milli allra orða er
alls ekki töff.
Skógarhöggsmannaskyrtur. Voru
voða krúttlegar til að byrja með en
þetta er nú orðið leiðigjarnt.
MÆLISTIKAN