Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 68

Fréttablaðið - 31.10.2009, Side 68
40 31. október 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is EINAR BENEDIKTSSON SKÁLD FÆDDIST ÞENNAN DAG 1864. „Geðið ber ugg þegar gengi er hátt. Gleðin er heilust og dýpst við það smáa.“ Einar Benediktsson var sýslu- maður, athafnamaður og eitt af höfuðskáldum þjóðarinnar. MERKISATBURÐIR 1517 Marteinn Lúther heng- ir 95 greinar á kirkjudyrn- ar í Wittembergkastala og hefur með því siðbótina. 1931 Akstur Strætisvagna Reykjavíkur hefst og er fyrsta leiðin Lækjartorg- Kleppur. 1963 Lagið You´ll Never Walk Alone með Gerry and the Pacemakers kemst í efsta sæti breska vinsældalist- ans. 1964 Á Miklatúni í Reykjavík er afhjúpuð stytta af Einari Benediktssyni til að minn- ast aldarafmælis skálds- ins. 1984 Indira Gandhi, forsætis- ráðherra Indlands, er myrt af lífvörðum sínum. Þjóðviljinn hóf göngu sína sem dagblað þennan dag árið 1936. Hann studdi Kommúnistaflokkinn og síðar Sósíalista- flokkinn og Alþýðubandalagið. Einar Olgeirsson var fyrsti rit- stjórinn og til að byrja með störfuðu einn eða tveir blaða- menn með honum. Áður hafði komið út blað með sama nafni, gefið út af Skúla Thoroddsen en Theodóra Thoroddsen, ekkja hans, og börn hennar gáfu nýja blaðinu nafnið. Þjóðviljinn var í upphafi fjórar síður. Þar var framhalds- saga og annað létt efni í bland við fréttir og pólitík. Þjóðviljinn var fyrst prentaður í prentsmiðju Jóns Helga- sonar á Bergstaðastræti 27 sem kommúnistarnir kölluðu Jesúprent vegna þess að þar voru líka gefin út kristileg rit. Blaðið var skrifað, sett og brotið um á um það bil 50 fer- metra plássi í kjallara hússins en prentað í nýbyggingu við hliðina. Heimild/Nýjustu fréttir/Guðjón Friðriksson AFMÆLI PÉTUR EINARS- SON leikari er 69 ára í dag. MARCO VAN BASTEN, knatt- spyrnumaður og þjálfari, er 45 ára í dag. HJÖRLEIFUR GUTTORMS- SON, fyrrum alþingismaður og iðnaðar- ráðherra, er 74 ára í dag. Árleg sýning Egilsbúðar og klúbbsins BRJÁN (Blús-, rokk- og jazzklúbbsins á Nesi) verður frumsýnd í kvöld. Hún heitir Manstu hvar þú varst? og verð- ur helguð því að tuttugu ár eru liðin frá því að fyrsta sýningin var drifin upp á fjölum Egilsbúðar. Rokkveislan hefur verið fastur liður í menningar- og skemmtanalífi Austfirð- inga á haustin allar götur síðan og nú verður farið yfir söguna í myndum, tali og að sjálfsögðu tónum. Auk þess verður snæddur glæsilegur þriggja rétta máls- verður og dansað fram á rauða nótt. „Við erum gríðarlega stolt af því að geta boðið upp á tónlistarveislu ár eftir ár þar sem Austfirðingar eiga allan heiðurinn að flutningi, matargerð, þjón- ustu og öllu sem að sýningunni snýr,“ segir Jón Hilmar Kárason, sem rekur Egilsbúð um þessar mundir ásamt konu sinni, Heiðu Berglindi Svavarsdóttur. Jón Hilmar kennir við Tónlistarskóla Neskaupstaðar sem hann segir jafnan spila stóra rullu í rokksýningunum. „Ágúst Ármann skólastjóri hefur verið driffjöður í sýningunum og kennarar og nemendur oft verið fjölmennir á svið- inu. Þeir eru ótrúlega margir sem hafa komið að uppsetningunum gegnum árin og allar tegundir tónlistar verið kann- aðar.“ Jón Hilmar kveðst ekki taka þátt í sýningunni í ár enda í mörg horn að líta hjá honum sem verts í undirbún- ingi stórsamkomunnar. Hversu marga skyldi Egilsbúð rúma í einu? „Á svona sýningum verða allir að geta horft á sviðið og látið fara vel um sig, þannig að við takmörkum fjöldann við 250 á hverju kvöldi,“ útskýrir hann og segir aðsóknina með eindæmum góða. „Það er uppselt á allar sýningarnar fimm sem fyrirhugaðar eru en hið óvenjulega gerðist að verst gekk að selja á frum- sýninguna.“ Sýningarnar í Egilsbúð hafa alltaf verið þematengdar og Jón Hilmar rifjar upp nöfn nokkurra: Stríðsáratónlistin, Stuðmenn, Bíómyndaveisla, Enska úr- valsdeildin, Sólstrandaveislan, Queen, Country, Abba og Lög unga fólksins. Rokkveislan hefur verið sett upp á Broadway nokkrum sinnum við góðan orðstír og einu sinni í Færeyjum og Queen-sýningin var sett upp í Players í Kópavogi. „Það var fjölmennasta helg- in á Players það ár,“ rifjar Jón Hilm- ar upp. Nú á að horfa til baka og velja lög úr fyrri sýningum. „Eitt er víst,“ lofar Jón Hilmar. „Stuðið verður í fyrirrúmi eins og ávallt áður.“ gun@frettabladid.is ROKKVEISLAN Í EGILSBÚÐ: HELDUR UPP Á TVÍTUGSAFMÆLIÐ Í KVÖLD Stuðið í fyrirrúmi eins og áður Á SVIÐINU Margir hafa komið fram á sýningunum í Egilsbúð. MYND/ÚR EINKASAFNI ÞETTA GERÐIST: 31. OKTÓBER 1936 Dagblaðið Þjóðviljinn kom fyrst út Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, Svala Árnadóttir Ekrusmára 1, Kópavogi, andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 29. október. Björn Pálsson Margrét Erla Björnsdóttir Sverrir Guðmundsson Björn Fannar Björnsson Sandra Dögg Björnsdóttir Hafþór Davíð Þórarinsson Bjarki Rúnar Sverrisson Björn Þór Sverrisson og systkini. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson MOSAIK Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir, bróðir, stjúpi og afi, Þorlákur Gestur Jensen Skúlagötu 64, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi fimmtudaginn 22. október, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 3. nóvember kl. 15.00. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Blóm og kransar afbeðin. Þeim sem vilja minnast hans láti Krabbameinsfélög njóta þess. Sérstakar þakkir til Sigurðar Björnssonar læknis og Kristjönu hjúkr- unarfræðings ásamt öllu starfsfólki líknardeildar í Kópavogi fyrir alla ástúð og hlýju er þið sýnuð honum og okkur. Guð blessi ykkur öll. Hólmfríður Jónsdóttir Hálfdán Ingi Jensen Soffía Sveinbjörnsdóttir Hulda Margrét Þorláksdóttir Davíð Ingvason Guðni Óskar Jensen Kristbjörg Sveinsdóttir Jón Múli Franklínsson börn og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Aðalheiðar Maríu Oddsdóttur Espigrund 15, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Höfða, Heimahjúkrunar og A-deildar Sjúkrahúss Akraness. Guðný Ársælsdóttir Helga Jóna Ársælsdóttir Þráinn Ólafsson Sigþóra Ársælsdóttir Björn Björnsson og ömmubörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigurbjargar Sigvaldadóttur Sjávargrund 4a, Garðabæ. Við þökkum af hlýhug starfsfólki heimahjúkrunar í Garðabæ, heimahlynningu Krabbameinsfélagsins og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og þeim læknum og hjúkrunarfólki sem önnuðust hana í veikindum hennar. Börn, tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.